Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Síða 13
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2008 13Fréttir
Stór hluti Feneyja fór undir vatn í gær:
Indverskir rannsóknaraðilar vegna
hryðjuverkanna í Mumbaí á Ind-
landi, sögðu í gær að hryðjuverka-
mennirnir sem stóðu að árásum
víða um borgina, hefðu notið margra
mánaða þjálfunar í Pakistan. Um-
mæli þeirra eru talin auka hættuna
á aukinni spennu á milli landanna
tveggja.
Atburðirnir hafa leitt til afsagn-
ar Shivraj Patil, innanríkisráðherra
landsins, auk þess sem yfirmaður
öryggismála sagði af sér á sunnu-
daginn. Mikillar reiði gætti meðal
Indverja sem telja að sofandaháttur
leyniþjónustu landsins hafi gert tíu
íslömskum tilræðismönnum kleift að
myrða hátt í tvö hundruð manns og
ráða lögum og lofum í Mumbaí, mið-
stöð fjármála landsins, í þrjá daga.
Auk þeirra sem voru myrtir særðust
fleiri hundruð manns í árásunum.
Fleygur rekinn í
batnandi samband
Talið er að árásirnar, sem beindust
að tveimur íburðarmestu hótelum
Mumbaí, og fleiri mikilvægum stöð-
um í borginni, séu mikið áfall fyr-
ir samskipti Pakistans og Indlands,
sem hafa farið skánandi undanfarið.
Tveir háttsettir indverskir rann-
sóknaraðilar, sem ekki vildu láta
nafns síns getið, sögðu í viðtali við
fréttastofu Reuters, að upplýsing-
ar sem fengist hafa við yfirheyrslu
Azam Amir Kasav, eina eftirlifandi
hryðjuverkamannsins sem vitað
er um, sýndu svo ekki væri um að
villast að herskáir Pakistanar hefðu
haft hönd í bagga við árásirnar. Azam
Amir Kasav sagði að lið hans hefði
tekið við skipunum frá „yfirmönnum
sínum í Pakistan“.
Óttast að árásarmenn
hafi verið fleiri en tíu
Opinberlega segja yfirmenn öryggis-
sveita Indlands að árásarmennirnir
hafi verið tíu og af þeim hafi níu ver-
ið felldir. Engu að síður hefur sá orð-
rómur verið á kreiki að árásarmenn-
irnir hafi verið fimmtán, og því leiki
fimm þeirra enn lausum hala í borg-
inni.
Til að komast óséðir inn í Indland
rændu hryðjuverkamennirnir ind-
verskum fiskibáti og var áhöfn báts-
ins tekin af lífi. Þegar báturinn fannst
á reki úti fyrir ströndum Mumb-
aí fannst í honum útbúnaður fyrir
fimmtán manns.
Að sögn heimildamanns úr röð-
um lögreglunnar fundust í bátn-
um fimmtán yfirhafnir og „meira að
segja fimmtán tannburstar“.
Ein kenning þeirra sem rannsaka
málið byggist á því að ef um sé að
ræða fimm menn sem ekki er vitað
um hafi þeir tekið þátt í undirbún-
ingi árásanna, þáttum sem sneru að
flutningum og könnun á væntanleg-
um skotmörkum. Að mati sérfræð-
inga hefði verið mögulegt fyrir tíu
einstaklinga að standa að aðgerðum
af þeirri stærðargráðu sem um ræð-
ir, en einungis eftir viðamikla þjálf-
un og með utanaðkomandi stuðn-
ingi.
Þjálfaðir í Pakistan
Yfirmaður innan indversku lögregl-
unnar sagði í viðtali við Reuters að
hryðjuverkahópurinn hefði hlotið
þjálfun hjá Lashkar-e-Taiba, herská-
um samtökum með bækistöðvar í
Pakistan sem væru undir stjórn fyrr-
verandi hermanns pakistanska hers-
ins.
„Þjálfunin fór fram í nokkrum
stigum, sem tóku til vopnameð-
ferðar, sprengjugerðar, þjálfunar í
að komast af, einnig á hafi úti, og
jafnvel sérstöku mataræði,“ hafði
Reuters eftir öðrum háttsettum for-
ingja.
Lashkar-e-Taiba-samtökin gátu
sér nafn þegar þau börðust gegn
yfirráðum Indverja í Kasmír-hér-
aði. Þeim var einnig kennt um árás
á indverska þingið 2001, sem kom
þessum tveimur kjarnorkuveldum
á barm styrjaldar árið eftir.
Öryggissérfræðingar á Indlandi
segja að Lashkar-e-Taiba hafi á árum
áður haft tengsl við njósnastofnun
pakistanska hersins. Stjórnvöld í Is-
lamabad, höfuðborg Pakistans, full-
yrða hins vegar að þau berjist gegn
samtökunum, sem og öðrum her-
skáum íslömskum samtökum á pak-
istanskri grundu.
Öryggisviðbúnaður
á „styrjaldarstig“
Indversk stjórnvöld lýstu því yfir fyrir
helgi að öryggisviðbúnaður landsins
væri kominn á „styrjaldarstig“, sem
grundvallaðist á sönnunum fyrir
tengslum Pakistans við hryðjuverkin
í Mumbaí.
Stjórnvöld í Pakistan svöruðu með
því að hóta að binda enda á aðgerð-
ir gegn herskáum íslamistum, þeirra
á meðal talibönum og al-Kaída, sem
hafast við á landamærum Pakistans
og Afganistans.
Stjórnvöld á Indlandi hafa ekki
gengið svo langt að saka hina borg-
aralegu ríkisstjórn Pakistans um að-
ild að árásunum í Mumbaí, en hafa
lýst yfir miklum vonbrigðum með að
nágrannaríki hafi verið um megn,
eða ekki viljað, að koma í veg fyrir að
herskáir hópar undirbyggju í Pakist-
an árásir á indverskar borgir.
Forseti Pakistans, Asif Ali Zard-
ari, bað stjórnvöld Indlands að refsa
ekki pakistönsku þjóðinni vegna
árásanna, og sagði að herskáir hópar
gætu komið af stað stríði. Hann ítrek-
aði að pakistönsk stjórnvöld berðust
gegn Lashkar-e-Taiba-samtökunum.
Vatnshæð í Feneyjum hefur ekki verið
meiri um tveggja áratuga skeið og var
vatnsyfirborð í gær rúmlega einum
og hálfum metra hærra en vanalega.
Margar af götum Feneyja fóru undir
vatn áður en sjatnaði.
Flóð eru engin nýlunda fyrir Fen-
eyjar og flóð upp að einhverju marki
eiga sér stað um tvö hundruð daga á
ári, en yfirvöld hyggjast bregðast við
flóðum með því að ljúka gerð neðan-
sjávarstíflugarða til varnar borginni
fyrir 2011. Stíflugarðarnir eiga að vera
sjötíu og átta talsins og á hjörum. Þeir
eiga að vera þannig úr garði gerðir að
hægt verði að reisa þá ef tilefni telst
til.
Vatnshæð náði í gær 1,56 metra
hæð vegna sterkra vinda, og fór
stærstur hluti borgarinnar undir
vatn, þar á meðal Markúsartorgið.
Vatnsborð hafði ekki verið hærra síð-
an 1986, en þá náði það 1,58 metra
hæð.
Borgarstjórinn, Massimo Cacci-
ari, hvatti fólk til að halda sig heima,
en fyrir þá sem þurftu að vera á
ferðinni var komið upp planka-
kerfi. Borgarstjórinn sendi einnig
út viðvaranir til þeirra sem hugðust
sækja borgina heim, og sagði þeim
að „endurskoða“ ákvörðun sína.
Það var ekki til að einfalda málin
að samgöngur á vegum „síkjastræt-
isvagna“ lágu niðri sökum verk-
falls.
Búið var að vara við því að vatns-
yfirborð gæti náð 1,66 metra hæð yfir
sjávarmál, en sú varð ekki raunin því
með breyttri vindátt lækkaði vatns-
borðið fyrr en ætlað var.
Árið 1979 náði vatnshæð 1,66
metra hæð og árið 1966 misstu um
fimm þúsund manns heimili sín
þegar vatnshæð í borginni náði 1,94
metra hæð.
Vatnshæð ekki meiri í 20 ár
Þönglabakka 4 - sími 557 4070 - myndval@myndval.is www.myndval.is
Persónuleg jólagjöf
myndadagatal með
myndunum
þínum
Borðdagatal 2.900kr.
Veggdagatal 3.900kr.
FÁNAPRENTUN
AFGREIÐUM FÁNA SAMDÆGURS
EIGUM ÍSLENSKA FÁNAN Á LAGER!
SILKIPRENT
HAFNAFIRÐI
S: 544 2025
Feneyjar á floti Borgarbúum
var ráðlagt að halda sig heima.
Taj Mahal-hótelið í Mumbaí Reyk lagði
út um glugga hótelsins 27. nóvember.
ÁrÁsarmenn
þjÁlfaðir í Pakistan
Til að komast óséðir inn í Indland rændu hryðju-
verkamennirnir indverskum fiskibáti og var
áhöfn bátsins tekin af lífi. Þegar báturinn fannst
á reki úti fyrir ströndum Mumbaí fannst í hon-
um útbúnaður fyrir fimmtán manns.
NÚ GETUR
ÞÚ LESIÐ DV
Á DV.IS
DV er aðgengilegt
á dv.is og kostar
netáskriftin 1.490 kr.
á mánuði