Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Síða 16
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 200816 Ættfræði
70 ára í dag
30 ára
n Rodney Orongan Manloloyo Rjúpufelli 34, Reykjavík
n Silvia Vieceli Laugarási, Egilsstaðir
n Robert Piotr Tomczyk Hveratúni, Selfoss
n Jón Bjarni Guðmundsson Sporhömrum 12, Reykjavík
n Guðmundur Óli Helgason Selvaði 3, Reykjavík
n Íris Palmqvist Svendsen Rohde Lambhaga 11,
Álftanes
n Heimir Þór Guðjónsson Rauðarárstíg 28, Reykjavík
n Guðjón Pétursson Mosgerði 8, Reykjavík
n Burkni Maack Helgason Klapparstíg 7, Reykjavík
n Soffía Sigurðardóttir Gaukshólum 2, Reykjavík
40 ára
n Reynir Ólafur Þráinsson Staðarhrauni 29, Grindavík
n Grétar Jón Pálmason Steinahlíð 3i, Akureyri
n Magnús Þorsteinn Magnússon Lækjasmára 23,
Kópavogur
n Einar Gunnar Einarsson Hverfisgötu 114, Reykjavík
n Kristín Randrup Vesturgötu 71, Akranes
n Björgvin Björgvinsson Túngötu 8, Eskifjörður
n Kristján P Sigmundsson Garðaflöt 19, Garðabær
n Hafdís Þorvaldsdóttir Suðurvíkurvegi 6, Vík
50 ára
n Jintana Chareonwong Gnoðarvogi 20, Reykjavík
n Janina Sidlinskaite Fjarðarseli 22, Reykjavík
n Magnús Björgvin Tryggvason Fagrabæ 9, Reykjavík
n Gréta Benediktsdóttir Lyngbergi 27, Hafnarfjörður
n Anna Guðlaugsdóttir Borgabraut 9, Hólmavík
n Gunnar Tryggvason Strandgötu 19b, Akureyri
n Axel Gústafsson Merkigerði 2, Akranes
n Hjálmtýr Sæmundur Halldórsson Jóruseli 9,
Reykjavík
n Elísabet Sigurðardóttir Austurhofi 4, Flúðir
n Hólmfríður Rósa Jósefsdóttir Fjarðarhorni, Staður
n Sigurjón Jónsson Laufengi 180, Reykjavík
n Sigmundur H Sigmundsson Látrum, Ísafjörður
n Ófeigur Sturla Eiríksson Skipasundi 51, Reykjavík
60 ára
n Hjálmfríður Sveinsdóttir Lækjargötu 28, Hafnarfjörður
n Gísli Jónsson Hlíðarvegi 6, Siglufjörður
n Halldór Kristján Júlíusson Lokastíg 11, Reykjavík
n Haukur Angantýsson Kristnibraut 77, Reykjavík
n Valgeir Ásmundsson Laufvangi 2, Hafnarfjörður
n Fanney Jónasdóttir Vallargerði 12, Kópavogur
n Kristján Már Jónsson Háaleiti 1c, Reykjanesbær
n Jón Kristinn Ólafsson Sæbakka 14, Neskaupstaður
n Ragnheiður Snorradóttir Sævarlandi 10, Reykjavík
70 ára
n Sigurjóna M Lúthersdóttir Ferjuvaði 11, Reykjavík
n Bergljót Ólafsdóttir Reykjavíkurvegi 40, Hafnarfjörður
n Einar Örn Gunnarsson Þingvallastræti 27, Akureyri
n Reynir Jónsson Drekagili 28, Akureyri
75 ára
n Halldóra Andrésdóttir Gullsmára 11, Kópavogur
n Hálfdan Ármann Björnsson Hlégarði, Húsavík
n Guðbjörg Ágústsdóttir Hraunbæ 102e, Reykjavík
n Sigríður Einarsdóttir Efra-Holti, Hvolsvöllur
80 ára
n Hólmdís Jóhannesdóttir Vallholtsvegi 5, Húsavík
85 ára
n Guðrún V Gísladóttir Selvogsgrunni 26, Reykjavík
n Ólafur Jónsson Sævargörðum 5, Seltjarnarnes
n Gunnar Ingimarsson Barðaströnd 49, Seltjarnarnes
Gunnsteinn siGurðsson
fyRRv. SJóMAÐUR oG vERktAkI, BúSEttUR í BolUnGARvík
Gunnsteinn fæddist á Ísafirði og ólst
þar upp í foreldrahúsum. Hann var
í barnaskóla á Ísafirði og starfaði í
rækjuverksmiðju þar á unglingsár-
unum. Gunnsteinn fór fimmtán ára
til Reykjavíkur og starfaði í vélsmiðj-
um fyrstu árin í Reykjavík, m.a. hjá
Björgun, Hamri og í Keili um tíma.
Hann fór aftur til Ísafjarðar tveimur
árum síðar og var þá háseti á Ísa-
fjarðartogaranum Sólborgu í rúmt
ár.
Gunnsteinn flutti síðan aft-
ur suður og starfaði þá við þunga-
vinnuvélar hjá Vélasjóði ríkisins og
lærði þar á þungavinnuvélar og við-
gerðir á þeim. Þá starfaði hann hjá
Vitamálastjórn á árunum 1959-61.
Gunnsteinn stundaði jafnframt sjó-
inn í fjölda ára, einkum á vetrum og
var m.a. á saltfisktúrum við Græn-
land á togurum en slíkir túrar tóku
allt að fjórum mánuðum með sölu-
ferðum til Danmerkur.
Gunnsteinn hóf síðan störf á
skurðgröfu hjá Reykjavíkurborg en
keypti sér sjálfur gröfu 1961 og síð-
an aðrar þungavinnuvélar og starf-
aði að verkefnum á vegum Reykja-
víkurborgar allt til ársins 1974. Árið
1978 hóf Gunnsteinn vörubílaakst-
ur ók hjá vörubílastöðinni Þrótti í
fimmtán ár. Hann er nú búsettur í
Bolungarvík.
Fjölskylda
Kona Gunnsteins er Margrét Ósk-
arsdóttir, f. 11.6. 1935, d. 1992, hús-
móðir. Margrét var dóttir Óskars
Gunnlaugssonar, verkamanns hjá
Eimskip í Reykjavík, og Brandfríðar
Baldursdóttur.
Kjördóttir Gunnsteins og Mar-
grétar er Sigríður Gunnsteinsdóttir,
f. 2.12. 1963, veitingamaður á Ísa-
firði en maður hennar er Magnús
Guðmundur Samúelsson sjómaður
og á hún fjögur börn.
Gunnsteinn átti fimm systkini en
á nú tvö systkini á lífi. Þau eru Þórir
Bent Sigurðsson, búsettur í Reykja-
vík, og Kolbrún Sigurðardóttir, bú-
sett í Reykjavík
Foreldrar Gunnsteins: Sigurður
Bentsson, skipasmiður á Ísafirði, og
Bjarney Þórðardóttir.
Gunnsteinn verður að heiman á
afmælisdaginn
Til
hamingju
með
afmælið!
Stefán fæddist á Belgsá í Fnjóskadal
í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var á
fyrsta ári er faðir hans fórst í snjó-
flóði og ólst Stefán upp hjá móður
sinni á Akureyri.
Stefán varð stúdent frá MA 1948,
nam við Hafnarháskóla frá 1948 og
við HÍ 1954--55, Uppsalaháskóla
1955 og Oslóarháskóla 1956. Hann
lauk meistaraprófi í norrænum
málum frá Hafnarháskóla 1961.
Stefán var stundakennari við
MA 1951-52, við Samvinnuskólann
og Kvennaskólann í Reykjavík 1954-
55, var á sumrin í kaupavinnu og
byggingavinnu og við landmæling-
ar til 1958, var starfsmaður við Det
arnamagnæanske institut í Kaup-
mannahöfn 1957-70 og fastráð-
inn þar frá 1962, aðstoðarkennari
í Hafnarháskóla 1961-69, sérfræð-
ingur við Handritastofnun Íslands,
síðan Stofnun Árna Magnússonar á
Íslandi, frá 1970, stundakennari við
HÍ frá 1981, var skipaður forstöðu-
maður Stofnunar Árna Magnússon-
ar á Íslandi 1994 og jafnframt skip-
aður prófessor við heimspekideil
HÍ.
Stefán var formaður Félags ís-
lenskra stúdenta í Kaupmannahöfn
1951, 1953 og 1958, formaður Stúd-
entafélags Akureyrar 1951-52, for-
maður Þjóðvarnarfélags stúdenta
1954-55, formaður Íslendingafé-
lagsins í Kaupmannahöfn 1963-70,
í stjórn Hins íslenska fræðafjelags í
Kaupmannahöfn 1963-70, í stjórn
Háskólabíós 1970-71, í miðnefnd
Samtaka herstöðvarandstæð-
inga 1971-72, formaður Félags ís-
lenskra fræða 1971-73, varafor-
maður útvarpsráðs 1971-75, var
ritari Íslandsdeildar Norræna sum-
arháskólans 1972-73, í stjórn Félags
háskólakennara 1975-77, í háskóla-
ráði 1977--79, var formaður Ísl.-
dansks orðabókarsjóðs frá 1976, í
stjórn Íslenzka málfræðifélagsins
1979-82, í Sögunefnd Þingeyingafé-
lagsins í Reykjavík frá 1980, í stjórn
Orðabókar HÍ 1982-88 og í stjórn
Dansk-íslenska félagsins frá 1984.
Stefán samdi mikinn fjölda
fræðilegra ritgerða, einkum um
íslensk fornhandrit, sat í ritnefnd
tímarits Íslenska málfræðifélags-
ins, Íslenzkt mál, og ritstjórn Ís-
lenzkra miðaldahandrita. Man-
uscripta Islandica medii aevi
1981.
Meðal þýðinga Stefáns: Is-
landske orginaldiplomer indtil
1450, Editiones Arnamagnæanæ
A 7 og Suppl. 1, Khöfn 1963; Sagas
of Icelandic Bishops, Fragments of
Eight Manuscripts, Early Iceland-
ic Manuscripts in Facimile VII,
Khöfn 1967; Guðmundar sögur
biskups, Editiones Arnamagnæa-
næ B 6, Khöfn 1983. Þá þýddi hann
leikritið Skipið, eftir Steinbjørn B.
Jacobsen, sem sýnt var í Þjóðleik-
húsinu 1977. Stefán var heiðurs-
félagi Félags íslenskra stúdenta í
Kaupmannahöfn frá 1968, bréfa-
félagi í Vísindafélagi Norðlend-
inga frá 1975 og félagi í Vísinda-
félagi Íslendinga frá 1975. Hann
hlaut viðurkenningu frá Kungliga
Gustav Adolfs Akademien í Upp-
sölum, Dag StrömbŠcks belön-
ingsfond, 1983.
Dóttir Stefáns er Steinunn Stef-
ánsdóttir, aðstoðarritstjóri Frétta-
blaðsins.
stefán Karlsson
f. 2. DESEMBER 1928, D. 3. MAí 2006
„Það verður bara smá kaffi fyr-
ir nánustu,“ segir Jón Bjarni Guð-
mundsson, vélsmiður hjá Marel,
hógvær þegar hann er spurður um
plön dagsins. Boðið verður þó ekki
í dag því Jón Bjarni hefur í nógu að
snúast þar sem tvö próf eru fram
undan þessa vikuna en ásamt starfi
sínu leggur hann einnig stund á
véliðnfræði í Háskólanum í Reykja-
vík.
Jón Bjarni segist ekki vera mik-
ið afmælisbarn í eðli sínu og aldrei
hafa haldið stórt upp á daginn.
Spurður hvað sé helst á óskalist-
anum fyrir þrítugsafmælið stendur
ekki á svörum. „Bara eitthvað í bíl-
skúrinn, verkfæri eða eitthvað ann-
að nytsamlegt.“ Hann viðurkennir
að hann sé mikill dellukarl og hafi
gaman af því að ditta að jeppan-
um sínum sem hann er búinn að
breyta töluvert.
Spurður um sína fjölskyldu-
hagi segir Jón Bjarni stoltur frá því
að von sé á erfingja í byrjun næsta
árs og að fyrir eigi hann eina tíu
ára stúlku sem muni án efa standa
sig vel sem stóra systir. DV óskar
Jóni Bjarna innilega til hamingju
með daginn.
kolbrun@dv.is
merkir íslendingar
Jón Bjarni Guðmundsson er þrítugur í dag:
Langar í eitthvað í bíLskúrinn
Tvíburasystur 50 ára:
Alda og Bára
Þorsteinsdætur
Tvíburasysturnar Alda og Bára
Þorsteinsdætur, Vesturbergi 50,
Reykjavík, urðu 50 ára í gær. Vegna
tæknilegra mistaka féll nafn Báru
út af afmælislistanum í gær. Það er
hér með leiðrétt og hún beðin vel-
virðingar á mistökunum.
Kaffi fyrir nánustu Jón Bjarni er
ekki mikið fyrir að halda stórt upp á
afmælið sitt og ætlar því bara að
bjóða sínum nánustu í smá kaffi.