Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Qupperneq 17
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 2008 17Sport
NO MORE MR. NICE GUY
Luiz Felipe Scolari, þjálfari Chelsea í ensku úrvaldsdeildinni, hefur frá komu sinni til
liðsins vakið athygli fyrir yfirvegaða og ekki síst vinalega framkomu við bæði fjölmiðla
og andstæðinga. Sem dæmi hrósaði hann Arsene Wenger fyrir að eldast vel, fyrir leik
Chelsea og Arsenal. En svo virðist sem velviljastíflan hafi brostið eftir leikinn. Eftir tapið
gegn Arsenal fór Scolari hamförum. Hann sakaði Mike Dean, dómara leiksins, um að
ráða úrslitum leiksins með dómgæslunni og að hann skuldaði sér afsökunarbeiðni. Að
auki hélt hann því fram að eitthvað baktjaldamakk væri í gangi sem hyglaði Arsenal.
Kærleiksbangsinn brasilíski gæti átt von á banni fyrir ummæli sín.
GRINdavík
sIGRaðI sNæfEll
Grindavík tók á móti Snæfelli í
Iceland Express-deildinni í
körfubolta í gær. Fyrir leikinn var
Grindavík í 2. sæti og hafði aðeins
tapað fyrir KR. Snæfellingar voru
aftur á móti í 6. sæti með jafnmarga
sigra og töp. Jafnræði var með
liðunum í fyrsta leikhluta en í öðrum
sigu heimamenn fram úr og staðan
53-42 í hálfleik. Snæfell kom grimmt
inn í 3. leikhluta og minnkaði
muninn niður í 3 stig en þá settu
heimamenn í fluggírinn og náðu 12
stiga forskoti fyrir upphaf síðasta
leikhluta og héldu því til leiksloka.
Lokatölur 93-81 og Grindavík gefur
ekkert eftir í toppbaráttunni. Arnar
Freyr Jónsson var stigahæstur
Grindavíkur með 22 stig en hjá
Snæfelli var Sigurður Þorvaldsson
stigahæstur með 26 stig.
REadING á flUGI
Sannkallaður Íslendingaslagur fór
fram í ensku Championship-
deildinni í gærkvöldi þegar Reading,
lið Ívars Ingimarssonar og Brynjars
Björns Gunnarssonar, fékk Coventry,
lið Arons Gunnarssonar, í heimsókn
á Madejski Stadium. Ívar og Aron
byrjuðu inn á.
Það voru gestirnir sem byrjuðu betur
og á 26. mínútu skoraði Daniel Fox 0-
1 fyrir Coventry. Markið virtist vekja
Reading því 5 mínútum síðar jafnaði
Noel Hunt og skömmu seinna
skoraði Kalifa Cisse og staðan 2-1
fyrir Reading. Aron kom við sögu á
43. mínútu þegar hann fékk
áminningu. Honum var svo skipt út
af í seinni hálfleik og í kjölfarið komst
Reading í 3-1 með öðru marki Noels
Hunt. Þar við sat og Reading komið í
3. sæti deildarinnar.
UMSJóN: tóMAS ÞóR ÞóRÐARSoN, tomas@dv.is / SvEINN WAAGE, swaage@dv.is
ICElaNd ExpREss kaRla
Fsu - ÍR 71:75
Grindavík – Snæfell 93:81
Stjarnan – Breiðablik 87-91
Staðan
Lið L U J t M St
1.KR 9 9 0 0 877:672 18
2.Grindavík 9 8 0 1 885:735 16
3.tindastóll 9 6 0 3 721:723 12
4.Njarðvík 9 5 0 4 703:751 10
5.Keflavík 9 5 0 4 758:707 10
6.Snæfell 9 4 0 5 711:667 8
7.Þór A. 9 4 0 5 751:781 8
8.Breiðablik 9 4 0 5 699:764 8
9.ÍR 8 3 0 5 643:632 6
10.FSU 8 3 0 5 698:696 6
11.Stjarnan 9 2 0 7 744:780 4
12.Skallagr. 9 0 0 9 547:829 0
Liverpool freistaði þess að ná þriggja stiga forskoti á toppnum þegar síðasti leikur 14.
umferðar ensku Úrvalsdeildarinnar fór fram á Anfield Road. Liverpool tók á móti West
Ham í leik hinna glötuðu tækifæra.
LIVERPOOL TÆPT
Á TOPPNUM
Rafa Benitez gat ekki stillt upp aðal-
framherja sínum, Fernando Torres,
sem tognaði enn á ný aftan í læri og
verður frá í 3 vikur. Athygli vakti að
Daniel Agger var settur á bekkinn og
kempan Sami Hyypia var í byrjunar-
liðinu. Hinn lánlitli Robbie Keane kom
inn fyrir Torres í framlínuna og Doss-
ena byrjaði í vinstri bakverðinum í
stað Aurelios sem var meiddur. Meiðsli
hafa hrjáð West Ham á þessu tímabili
en fyrrverandi leikmaður Liverpool,
Craig Bellamy, er kominn í gang og var
í byrjunarliði West Ham sem ekki hafði
unnið á Anfield síðan 1963.
Varúð einstefna
Heimamenn byrjuðu leikinn af krafti
og sóttu stíft á gestina. Á 6. mínútu
reyndi Yossi Benayoun að senda
boltann fyrir markið en hann hafn-
aði í hendinni á Herita Illunga, varn-
armanni West Ham, sem stóð innan
teigs en ekkert dæmt. Þetta reynd-
ist aðeins fyrsta af sex tilvikum sem
Illunga handlék knöttinn í leiknum.
Gestirnir björguðu á línu á 14. mín-
útu eftir skot frá Albert Riera og ein-
stefna Liverpool orðin alger.
Hyypia hættulegur
Sami Hyypia leiddist strax þófið og
reyndi sitt til að brjóta ísinn í fyrri
hálfleik með tveimur góðum sköll-
um á stuttum tíma. Yfirburðir heima-
manna voru algerir en úrræðaleysi
og klaufaskapur á síðustu metrunum
háði liðinu. Þetta átti þó bara eftir að
versna. Gerrard tætti sig í gegnum
vörnina en skaut í hliðarnetið. West
Ham svaraði með skyndisókn. Bella-
my skeiðaði upp völlinn og lét vaða
fyrir utan teig, boltinn small í stöng-
inni og Liverpool-menn voru minnt-
ir á að það þarf aðeins eitt skot til að
skora. Kuyt svaraði hinum megin
með góðum skalla en inn vildi bolt-
inn ekki.
0-0 í hálfleik og hægt hefði verið
að kæra staðgengill Torres, Robbie
Keane, fyrir glæp þar sem hann hafði
enga fjarvistarsönnun. Honum brá
ekki fyrir í mynd sem verður að telj-
ast afrek þar sem gestirnir léku leik-
kerfið 1-10-0 lengst af fyrri hálfleik.
Gerrard á Youtube
Í seinni hálfleik var sama sagan.
Liverpool sótti og West Ham varðist.
Kuyt lét vaða á markið og á 56. mín-
útu sýndi Green ótrúlega takta þegar
hann varði frábært skot Benayouns
sem stefndi upp í þaknetið. Sóknar-
þungi Liverpool jókst jafnt og þétt en
engu máli virtist skipta hversu góð
skotfæri buðust. Skotmenn eins og
Gerrard og Alonso voru úti á túni og
telja má víst að tilraun Gerrards á 69.
mínútu þegar hann einfaldlega hitti
ekki boltann í upplögðu færi, fari
beint á YouTube.
Markaþurrð á anfield
West Ham minnti á sig um miðj-
an seinni hálfleik þegar góður skalli
Carlton Cole hafnaði í hliðarnet-
inu. West Ham var annars mætt til
að halda stiginu og eiga allan heiður
skilið fyrir vinnusemi og baráttu sem
átti eftir að skila sér í stigi. Heima-
menn reyndu hvað þeir gátu í restina
en allt kom fyrir ekki. Enn eitt marka-
lausa jafnteflið á heimavelli gegn liði
í neðri hluta deildarinnar. Samt sem
áður dugar stigið úr leiknum til að
komast á toppinn en ef þetta er það
sem koma skal á Anfield er aðeins
tímaspursmál hvenær hin stóru lið-
in ná Liverpool og sigla fram úr. Lið
sem klárar ekki svona leiki og það
fleiri en einn og tvo verður aldrei
Englandsmeistari.
Keane í tjóni
Eftir leikinn er West Ham í 13. sæti
með 18 stig og getur vel við unað.
Liverpool fer á toppinn en hefur nú
misnotað tvö gullin tækifæri að ná
þriggja stiga forskoti á Chelsea. Rafa
Benitez hlýtur að hafa áhyggjur af
liðinu þrátt fyrir stöðuna þar sem
þrír síðustu lekir liðsins, sem allir
hafa verið á Anfield, hafa verið væg-
ast sagt slakir hjá liðinu. Liðið virðist
sakna Torres mjög og nú er ljóst að
Robbie Keane fer að flokkast undir
verstu kaup ársins. Hann var sjálfum
sér og liðinu til skammar í gærkvöldi
og verður sannarlega að fara girða sig
í brók ef hann á ekki að fá frímerki á
rassinn innan tíðar.
SVeinn waaGe
blaðamaður skrifar: sveinn@dv.is
Vonlaus Það verður að teljast
afrek af ljósmyndara að hafa
fundið Robbie Keane á vellinum.