Dagblaðið Vísir - DV - 02.12.2008, Blaðsíða 22
ÞRIÐJUDAGUR 2. DESEMBER 200822 Fólkið
Hinn fjórtán ára Andri Karel, nem-
andi í Áslandsskóla í Hafnarfirði,
sem hefur nú þegar samið tvö lög í
hinum geysivinsæla sjónvarpsþætti
Dagvaktinni heldur áfram að slá í
gegn en Andri átti einnig heiðurinn
af laginu sem frumflutt var í loka-
þætti Dagvaktarinnar, Benidorm.
Andri hefur verið að dunda sér við
að gera tónlist í tæp tvö ár í tónlist-
arforriti í tölvunni sinni en einnig á
kappinn hljómborð sem hann tengir
við tölvuna sína og býr þannig til
tónlistina sem slegið hefur í gegn í
einum vinsælasta sjónvarpsþætti
fyrr og síðar. Hægt er að hlusta á
tónlist Andra á heimasíðu hans:
myspace.com/andrikarel.
Egill „Gillzenegger“ Einarsson hef-
ur uppgötvað nýjan heim ef marka
má heimasíðu hans. Hann stofnaði
Facebook-síðu á dögunum og segist
með reglulegu millibili fá skilaboð
frá frönskum hommum. „ Ég skil
það ekki alveg. Þýðir það að ég sé
rjómi? En einn homminn er búinn
að vera aggressívari en aðrir og hann
heimtaði að fá að gefa mér webcam
action. Þannig ég hjólaði honum inn
á MSN-ið, fékk mér popp og kók og
hallaði mér aftur í sófanum. Held ég
hafi ekki hlegið svona mikið í sirka
14 ár. Ég hló meira en þegar ég skellti
mér á Dumb&Dumber í fyrsta skipt-
ið,“ lýsir Gillz á síðu sinni.
Gillz oG
frönsku
hommarnir
spilaðu á
kvótakerfið
„Markmið spilsins er að verða
kvótakóngur eða -drottning
Vestfjarða,“ segir 31 árs Ísfirð-
ingurinn, Páll Ernsisson, og
höfundur spilsins Vestfirksa
kvótasvindlið. „Ég fékk hug-
myndina að nafninu í febrú-
ar,“ en formleg vinna við spilið
hófst fyrir tveimur mánuðum.
„Kvótasvindlið er spil fyrir alla
fjölskylduna,“ segir Páll sem
nemur landafræði við Háskól-
ann í Reykjavík milli þess sem
hann semur borðspil.
„Spilið gengur í megindrátt-
um út á að braska með kvóta
og báta. Þú byrjar með
litla tryllu. Vinnur þig
síðan upp í línubát,
togara og loks fjöl-
veiðiskip. Fólk
fer svo á miðin í
kringum Vest-
firði og fiskar
þorsk, ýsu eða
rækju.“ Spil-
endum gefst
tækifæri til þess
að landa aflanum
í mismunandi pláss-
um á Vestfjörðum þar sem
svo er hægt að braska með
kvótann og byggja upp út-
gerðarveldi sitt.
„Í reglum spilsins er bein-
línis kvatt til þess að fólk
braski með kvótann eins og
það mögulega getur. Á viss-
um reitum dregur maður
svo spil þar sem fram koma
ýmsir menn sem hafa brask-
að með kvóta á Vestfjöðrum
í gegnum tíðina.“ Í fyrra gaf
Páll út spilið Ísafjörður-Ein-
okun en það seldist upp í ein-
um grænum. „Það var í raun
ísfirsk útgáfa af Matador en
þetta spil samdi ég alveg frá
grunni.“
Páll segist hafa hugleitt að
útfæra spilið fyrir landið allt
en ætlar að byrja á Vestfjörð-
um. „Það gæti vel hugsast að
útfæra spilið á allt landið en
ég er ekki kominn svo langt
í bili.“ Spilið kemur út í 200
eintökum fyrir jól og verður
aðeins selt fyrir vestan. „Það
verður fáanlegt annaðhvort
í Hamraborg eða Samkaup-
um á Ísafirði. Jafnvel á báðum
stöðum,“ segir Páll að lokum.
asgeir@dv.is
Ísfirðingurinn Páll Ernisson sendir frá sér frum-
samið spil fyrir jólin. Það kallast Vestfirska
kvótasvindlið en Páll sendi í fyrra frá sér spilið
Ísafjörður-Einokun. Vestfirska kvótasvindlið
verður aðeins fáanlegt í 200 eintökum en Páll
útilokar ekki að yfirfæra það á landið allt.
„Þetta er undarlegasti staður sem ég
á eftir að syngja á,“ segir Hera Björk
Þórhallsdóttir söngkona. En í kring-
um miðjan mánuðinn mun Hera
halda tvenna hátíðartónleika í há-
loftunum á vegum Iceland Express.
„Vonandi kemst ég í Mile high-klúbb-
inn með þessu,“ segir hún hlæjandi
og bætir við: „Mér fannst þetta svo
fyndin hugmynd að ég ákvað að slá
til. Svo á ég mér líka leyndan draum
um að verða flugfreyja. Ég er að upp-
fylla hann núna,“ segir Hera en tón-
leikarnir eru partur af kynningarstarfi
Frostrósatónleikanna. Söngkon-
urnar munu halda tvenna tónleika
í Reykjavík 13. desember næstkom-
andi, en einnig munu söngkonurnar
ferðast um landið og syngja.
Hera, ásamt fleiri tónlistarmönn-
um, mun halda hátíðartónleika í há-
loftunum. Hera segist ætla að hjálpa
farþegum að komast í rétta jólaskap-
ið á milli þess sem hún spjallar við
farþegana um hitt og þetta. „Ég ætla
að hafa rosalega gaman af þessu og
ýta undir jólastemninguna hjá fólki,“
segir hún og hefur litlar áhyggjur af
farþegum sem ekki hafa áhuga á há-
tíðartónleikunum. „Það verða ör-
ugglega einhverjir fussarar og sveiar-
ar, en ég hef ekki miklar áhyggjur af
þeim. Fýla þeirra er á eigin ábyrgð.“
Aðspurð hvort hún óttist ókyrrð
í háloftunum er Hera fljót að svara.
„Nei, ég er ekkert hrædd. Ég fer þá
bara upp á háa C-ið og læt sem ekk-
ert sé,“ segir hún brosandi.
uppfyllir Gamlan draum
Söngkonan HEra Björk ÞórHallSdóttir mun Halda HátÍðartónlEika Í Háloftunum:
Hera Björk Ætlar að
skemmta farþegum
Iceland Express um
miðjan mánuðinn.
Vestfirska kVótasVindlið
heldur
áfram að
slá í GeGn
Kvótasvindlið
Páll útilokar ekki
að gera Íslenska
kvótasvindlið.
Páll Ernisson Höfundur
spilsins Vestfirska
kvótasvindlið