Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 4
Sofðu í húmi heimski þræll
kristján hreinsson skáld skrifar. „Okkur er sagt, að ef við látum lækka laun ráðamenna, þá fáist ekki góðir starfskraftar í embættin.“
Auðvitað hefur aðallinn komið sér upp kjaradómi sem ekki kann að lækka laun þeirra sem hafa komið sér þægilega fyrir fremst í goggun-
arröðinni. Það er nefnilega svo, kæra þjóð,
að gráðugu vitleysingarnir sem við lítum upp
til og virðum sem samborgara okkar (vegna
þess að þeir vilja stjórna), verðskulda ekki
virðingu. Það er gæska okkar sem gefur fífl-
unum leyfi til að fara illa með okkur.
Hér á landi stjórna nánast einvörðungu gráð-ugir, siðlausir einstaklingar sem aðeins hafa í hyggju að koma sér og sínum að ríkisjötunni og yfirleitt öllum spenum sem eitthvað gefa af
sér. Múgurinn er látinn halda að réttlæti hafi
eitthvað með aðgerðir ráðamanna að gera.
En hið rétta er svo augljóst og svo sjálfsagt að
augu almúgans ná ekki að nema. Við, þetta
venjulega fólk, erum nefnilega svo blinduð af
ofbirtu alúðar, vináttu, jafnréttis og bræðra-
lags að við sjáum ekki illmennin sem yfir
okkur valta. Við erum með óbragð í munni
eftir ofnotkun á innantómum klisjum og ein-
lægum lofsöngvum um uppbyggingu réttláts
samfélags. Við finnum fnykinn af daunillum
dusilmennum. En við viljum ekki trúa því að
verið sé að fara illa með okkur. Við erum svo
góðhjörtuð og alin upp af slíkri vandvirkni að
við brosum bljúg og þæg á meðan við bjóðum
yfirvaldinu að berja okkur í spað.
Við erum höfðingjasleikjur og hundar í bandi
yfirvalds sem teymir okkur að dalli. Við fót-
skör meistaranna bíður okkar útþynntur vell-
ingur lýðræðis og svo er okkur boðið að naga
bein blekkingar ef það mætti nú verða til þess
að halda okkur frá því að gjamma.
Okkur er sagt, að ef við látum lækka laun ráðamenna, þá fáist ekki góðir starfskraft-ar í embættin. En ef þeir sem núna stjórna landinu eru þeir bestu sem til starfans fást,
þá má mín vegna blása af þann aumingjaleik
sem hið íslenska þjóðlífið opinberar í dagsins
önn. Núna á það að verða krafa alls almenn-
ings að laun allra toppa samfélagsins verði
lækkuð. Þannig má kannski fá klink í bauk-
inn – peninga sem síðan má brúka til að bæta
skaða þeirra sem þurfa að borga brúsann og
virkilega tapa á fylgikvillum kreppunnar.
Ljótir karlar fylla flokk,
þeir flestu gátu tapað
og ganga nú í gapastokk
sem græðgin hefur skapað.
föstudagur 5. desember 20084 Fréttir
Sandkorn
n Höskuldur Þór Þórhallsson
þingmaður veltir nú „alvar-
lega“ fyrir sér að gefa kost á sér
til formannsstöðu í Framsókn-
arflokknum. Höskuldur komst
reyndar fyrst
inn á þing
í síðustu
kosningum,
en vitað er
að metorða-
stiginn í
Framsóknar-
flokknum er
stuttur. Hös-
kuldur hefur þótt skeleggur, og
gagnrýndi meðal annars Sam-
fylkinguna harðlega fyrir að
„tala niður krónuna“ í umræðu
um evru, þegar hann færði
rök fyrir vantrausti á stjórnina.
Kjósendur vita þá við hverju er
að búast af formannsefninu, ef
það kemst til valda. Hann mun
væntanlega tala gjaldmiðil-
inn beinlínis upp. Þessa aðferð
mun Höskuldur væntanlega
geta notað á hlutabréfamark-
aðinn. Hann gæti „talað upp“
fasteignaverð, hlutabréfavísi-
töluna og auðvitað krónuna, og
þar með leyst efnahagsvanda
þjóðarinnar á einu bretti.
n Fleiri geta talað upp. Þannig
er Árni Johnsen, þingmaður
Sjálfstæðisflokksins, nú lagður
af stað í mikla fundaherferð í
kjördæmi
sínu. Þar
ætlar hann
að halda at-
vinnumála-
þing og tala
ástandið
upp frekar
en niður.
Mikill metn-
aður er lagður í fundaherferð-
ina og margir frummælendur
á hverjum stað. Þannig ætti
að vera víst að Árni geti verið í
góðum samskiptum við kjós-
endur. Athygli vekur, nú þegar
Árni skýtur öðrum landsbyggð-
arþingmönnum ref fyrir rass,
að þetta hefur hann gert án
þess að ráða sér aðstoðarmann.
Ein helstu rökin fyrir því að
landsbyggðarþingmenn gætu
ráðið sér aðstoðarmann voru
einmitt að það ætti að auðvelda
þeim að vera í samskiptum við
kjósendur.
n Þegar þetta blað kemur út eru
tvær vikur liðnar síðan Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra og Geir H. Haar-
de forsætisráðherra kynntu
fyrirhugað
lagafrum-
varp um
breytingar á
eftirlauna-
lögum. Þar
segja þau
dregið úr
mismun
á lífeyri-
skjörum stjórnmálamanna
og almennings þó útreikning-
ar DV sýni að ráðamenn hafa
eftir sem áður mun ríkulegri
eftirlaun en aðrir landsmenn.
En breytingarnar voru allavega
kynntar og boðað að frumvarp
yrði lagt fram á Alþingi í vik-
unni eftir kynninguna. Nú er sú
vika liðin og önnur til að renna
sitt skeið á enda en ekkert ból-
ar á frumvarpinu. Það hefur
því tekið þrefalt lengri tíma að
leggja frumvarpið fram en tók
að afgreiða eftirlaunalögin.
Skáldið Skrifar
Haldið til haga
Með dómi um bókina Fíasól
er flottust í bókablaði DV í gær
birtist mynd af annarri bók.
Einnig var nafn Illuga Jökulsson-
ar ritstjóra yfir mynd af bókinni
Algleymi, sem kom þó hvergi
nálægt ritun þessarar bókar Her-
manns Stefánssonar. Hlutaðeig-
endur eru beðnir afsökunar á
mistökunum.
valur grettisson
blaðamaður skrifar: valur@dv.is
„Okkur fannst óþægilegt að heyra
þetta,“ segir Eva Hrundardóttir,
sem var nágranni Jóhanns Sigurð-
arsonar sem var dæmdur í fjögurra
ára fangelsi fyrir að brjótast inn á
heimili á Grettisgötunni í Reykja-
vík og misnota þar fimm ára stúlku.
Jóhann hefur áður verið dæmdur
fyrir svipað brot. Það var árið 2003
þegar hann nam fjögurra ára gamla
stúlku á brott af heimili hennar á
Seyðisfirði. Það varð barninu til
happs að faðir hennar varð var við
manninn og náði dóttur sinni af
honum fyrir utan húsið. Þá hefur
Jóhann, sem er fertugur, verið
dæmdur fyrir að ganga í skrokk á
konu og hafa farið höndum um
kynfæri hennar.
Braust inn og misnotaði barn
Barnaníðingurinn Jóhann Sig-
urðarson var handtekinn í sept-
ember síðastliðnum eftir að hafa
brotist inn í hús á Grettisgötu í
miðbæ Reykjavíkur. Amma fimm
ára stúlkubarns vaknaði og sá þá
manninn með höfuð sitt á milli
fóta barnsins. Um leið og Jóhann
tók eftir ömmunni fór hann í
burtu. Lögreglan var kölluð til og
kom í ljós að Jóhann hafði farið inn
í húsið á annarri hæð. Hann hafði
brotið upp stormjárn og skriðið
inn um glugga, en fyrr um kvöldið
hafði hann setið að drykkju ásamt
bróður sínum, Brynjólfi Sigurðs-
syni. Í ljós kom að Jóhann hafði
fært stúlkuna úr buxunum og
sleikt kynfæri hennar eftir að hann
braust inn. Stúlkan vaknaði við
þetta og reyndi að segja mannin-
um að hætta.
Færður í gæsluvarðhald
Jóhann var handtekinn örfáum
dögum eftir að hann braust inn og
misnotaði stúlkubarnið. Hann var
þá strax hnepptur í gæsluvarðhald
þar sem hann hefur setið síðan þá.
Í dómsorði kemur fram að
amma stúlkunnar hefði verið sof-
andi á neðri hæð hússins þegar
Jóhann braust inn. Hún hefði aft-
ur á móti vaknað við umgang inni í
svefnherberginu þar sem hún svaf
með barnið sér við hlið. Hún hefði
þá séð mann með höfuðið á milli
fóta barnsins. Amman hefði rekið
Jóhann út um framdyrnar og sagði
jafnframt að áfengisstækju hefði
lagt af manninum. Þegar amman
kom aftur til stúlkunnar spurði
barnið hana hvort það væri eðli-
legt að maðurinn hefði verið að
sleikja sig niðri.
Fannst hann dónalegur
„Við urðum ekkert vör við hann,“
segir nágranni hans, Eva, sem seg-
ir lítið hafa farið fyrir Jóhanni við
heimili hans í Hafnarfirði. Þar bjó
hann í félagslegri íbúð þar til hann
var hnepptur í gæsluvarðhald. Hún
segir að hann hafi verið einhleypur
en dóttir hans, sem er sautján ára
gömul, hafi oft verið hjá honum.
Svo virðist sem Jóhann hafi ekki
unnið neitt, heldur drepið tím-
ann með því að gera við bíldruslu
sem var fyrir utan fjölbýlið þar sem
hann bjó.
„Hann heilsaði ekki þó maður
segði hæ við hann, mér fannst það
eiginlega svolítið dónalegt,“ segir
Eva sem er fegin að ekki hafi far-
ið verr með Jóhann búandi sér við
hlið.
Hafði rænt barni áður
Jóhann var dæmdur í fjögurra ára
óskilorðsbundið fangelsi fyrir brot
sitt gagnvart stúlkubarninu. Hann
hafði áður verið dæmdur í tveggja
ára fangelsi þegar hann reyndi að
ræna fjögurra ára gömlu stúlku-
barni á Seyðisfirði. Þá var hann
dæmdur fyrir að hafa veist að konu
á salerni veitingahúss, farið hönd-
um um líkama hennar, fellt hana
í gólfið, barið höfði hennar marg-
sinnis í vegg, dregið buxur henn-
ar og nærbuxur niður að hnjám og
farið höndum um kynfæri hennar.
Jóhanni er gert að greiða stúlku-
barninu átta hundruð þúsund
krónur í miskabætur.
Braust inn á heimili og
misnotaði stúlkubarn
„Hann heilsaði ekki
þó maður segði hæ
við hann, mér fannst
það eiginlega svolítið
dónalegt.“
Barnaníðingurinn Jóhann sigurðarson var dæmdur í fjögurra ára fangelsi í gær fyr-
ir að brjótast inn á heimili við Grettisgötu í miðbæ Reykjavíkur þar sem hann mis-
notaði fimm ára stúlkubarn. Amma barnsins lá sofandi við hlið þess þegar atvikið
átti sér stað. Sami maður var dæmdur fyrir að ræna barni á Seyðisfirði fyrir fjórum
árum. Þá náði faðir barnsins að endurheimta það fyrir utan húsið.
Braust inn og
misnotaði Barn
níðingur í Hafnarfirði barnaníðingurinn
og barnsræninginn Jóhann sigurðarson
eyddi atvinnulausum dögum sínum með
dóttur sinni eða í að gera við bíldruslu.
MYnD: sigtrYggur ari