Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 8
föstudagur 5. desember 20088 Fréttir
Af er það sem áður var er milljarða-
mæringar margir hverjir flíkuðu
auð sínum við hvert tækifæri sem
gafst.
Johnnie L. Roberts hjá banda-
ríska tímaritinu Newsweek gerir
málið að umtalsefni í fyrsta tölu-
blaði desember. Einn þeirra sem
í greininni er nefndur til sögunn-
ar er margmilljarðamæringurinn
Michael Hirtenstein. Nefndur Hirt-
enstein var, segir í greininni, van-
ur að fjölyrða oft og tíðum um þær
íburðarmiklu lúxusfasteignir sem
honum hafði tekist að koma hönd-
um yfir. „Ég safna heimilum því
mér líkar það,“ er haft eftir Hirten-
stein úr viðtali við Dans Hamptons.
com. Með orðum sínum skírskotaði
Hirtenstein til átta fasteigna sinna.
en á meðal þeirra er íbúð á 76. hæð
Time Warner Center á Manhatt-
an. Sú íbúð er metin á litlar tuttugu
og sjö milljónir bandaríkjadala,
eða um fjóra milljarða íslenskra
matadorpeninga.
Í ágúst á síðasta ári hafði Hir-
tenstein, sem auðgaðist á sviði
símafyrirtækja, uppi áform um að
láta byggja glerhýsi mikið í Tribe-
ca á Manahattan, með leðurklædd-
um veggjum, þremur stofum og
sundlaug með innbyggðum sjón-
varpskjá, undir vatnsborðinu. En
kreppan skall á og um leið dró úr
fasteignaviðskiptum Hirtensteins.
Hægt og hljótt dró hann í land með
Tribeca-áform sín og tapaði gríð-
arhárri fyrirframgreiðslu. Hirten-
stein er samt engan veginn orðinn
blankur og farinn að selja eldspýtur
í anda litlu stúlkunnar H.C. And-
ersen. „Ég gæti gengið niður núna
og keypt mér Ferrari,“ sagði Hirten-
stein þar sem hann sat í svítu sinni
í Las Vegas. „En margir vina minna
eiga bágt núna. Ég hef ekki löng-
un til að kaupa leikföng út í loftið,“
sagði hann.
Blingið skilið eftir heima
Víða í Bandaríkjunum er farið að
örla á nýrri tilfinningu á meðal fólks
sem tilheyrir auðmannsstéttinni.
Tilfinningin er framandi og birtist í
skömm vegna íburðar. Coco Chan-
el heitin, drottning tísku tuttugustu
aldar, sagði að lúxus væri andstæða
smekkleysis, ekki fátæktar. En nú
er svo komið á tímum efnahags-
lægðar að það virðist smekklaust
að flíka íburðarmiklum lífsstíl. Auð-
menn sleppa blinginu, Rolex-úrinu
og forðast verslunarflipp gylltu ald-
arinnar eins og heitan eldinn, og
óhætt að segja að þessi nýju viðhorf
ríkra komi illa við kaunin á lúxus-
markaðinum. Hann hefur nú þegar
ekki farið varhluta af því að pyngjur
margra auðmanna hafa lést, en þó
keyrir um þverbak, nú þegar jóla-
vertíðin er handan hornsins, ef þeir
sem þó eiga nægt fé í handraðanum
halda að sér höndum með þeim af-
leiðingum að umboð sem versla
með Bentley- og BMW-bifreiðar
geta ekki haldið jólin hátíðleg. Að
ekki sé minnst á Neiman Marcus,
Saks og uppboðsfyrirtækin Christ-
ie‘s og Sotheby‘s.
Þeir sem áður höfðu lifibrauð
af því að auglýsa lúxusvarning rétt
skrimta og fallið hefur ótæpilega á
glans auglýsingatímaritanna sem
höfða til þeirra sem gildir voru á
velli, og böðuðu sig í athygli þeirra
sem minna höfðu milli handanna.
Samkvæmt fréttabréfi fjölmiðlaiðn-
aðarins, Media Industry Newslett-
er, hefur auglýsingum í stærstu lúx-
ustímaritunum fækkað um tuttugu
og tvö prósent frá því fyrir ári.
Conde Nast, útgefandi Vanity
Fair, W og Vogue, hefur skorið nið-
ur karlmannaútgáfu Vogue og nýtt
glansviðskiptatímarit, Portfolio.
Auglýsingatekjur Robb Report, sem
hefur til margra ára verið biblía
þeirra sem telja sig sérfræðinga í
smekkvísi, og naut velmegunar á
tímum vogunarsjóða-milljarða-
mæringa, hafa frosið. Sömu sögu
er að segja um mýmörg tímarit sem
einkum var beint að fólki sem vissi
ekki hvað það átti að gera við auð
sinn.
Óhóf datt úr tísku
Óopinberlega urðu óhóf og íburður
úrelt fyrir um tveimur mánuðum,
þegar Richard Fuld, stjórnarfor-
maður Lehman Brothers-fjárfest-
ingarbankans, kom fyrir þingnefnd
í kjölfar sex hundruð milljarða dala
gjaldþrots hans. Fuld var forsmáð-
ur vegna launauppbótar sem nam
hálfum milljarði dala og lífsstíls sem
dró dám af lífsstíl kóngafólks. Meðal
þess sem nefnt var til sögunnar við
yfirheyrslur þingnefndar voru þak-
íbúð á Park Avenue, að verðmæti
tuttugu og einnar milljónar banda-
ríkjadala, landareign í Greenwich í
Connecticut að verðmæti tuttugu
og fimm milljóna bandaríkjadala
og safn listmuna að verðmæti tvö
hundruð milljóna bandaríkjadala,
samtals um þrjátíu og sjö milljarðar
íslenskra króna. Þingnefndarmað-
urinn og repúblikaninn Henry Wax-
man sagði við yfirheyrsluna: „Ég
spyr þig aðeins einnar spurningar:
Er þetta réttlátt?“ Risið var víst ekki
hátt á Fuld við þessa spurningu.
Vart hafði fennt yfir þessa opin-
beru afhjúpun á Richard Fuld þeg-
ar upp komst að æðstu menn trygg-
ingarisans AIG, sem þá var kominn
að fótum fram, höfðu notið hvíldar
í heilsulind á St Regis, fimm stjörnu
lúxushóteli. Dvölin kostaði 440.000
dali, um sextíu milljónir íslenskra
króna, og átti sér stað eftir að ríkið
hafði hlaupið undir bagga vegna
slæmrar fjárhagsstöðu fyrirtækisins
og látið af hendi rakna eitt hundr-
að og fimmtíu milljónir dala, um
tuttugu og þrjá milljarða íslenskra
króna, af fé skattborgara.
Iðrunarsút auðkýfinga
Fólk sem áður skirrðist ekki við að
eyða háum fjárhæðum í afmæl-
isveislur eða önnur teiti er niður-
lútt og sýnir iðrun við hvert tæki-
færi sem gefst. Einn þeirra er Steve
Schwarzman hjá eignarhaldsfélag-
inu Blackstone Group. Hann lýsti í
síðasta mánuði yfir mikilli eftirsjá
vegna þeirra þriggja milljóna dala
sem hann eyddi í sextugsafmæli sitt
í febrúar 2007.
Fjölmiðlar og stjórnmálamenn,
margir hverjir, eru ekki á þeim
buxunum að láta þá veislu falla í
gleymskunnar dá. „Ég hefði, auð-
vitað, síður kosið að gera þetta og
verða, þið vitið, einhvers konar
tákn þess tíma,“ sagði Schwarzman
á blaðamannafundi í New York.
Blackstone sem metið var á átta
milljarða dala í júní 2007 er á papp-
írum metið á tvo til þrjá milljarða
dala nú um stundir vegna hruns á
hlutabréfamörkuðum.
Hollywood er ekki undanþegið
þessari nýtilkomnu hógværð auð-
ugra í Bandaríkjunum. Einn ónafn-
greindur kvikmyndamógúll segist
ekki myndu kaupa eitthvað íburð-
armikið eins og málum er háttað.
„Ekki á svona tímum. Það myndi
virka sem mont,“ sagði hann.
Í herbúðum Disney eru menn í
öngum sínum vegna myndar sem
áformað var að frumsýna á degi
elskenda. Myndin heitir Játningar
verslunarfíkils og fjallar um unga
konu sem er veik fyrir merkjavöru.
Til tals hefur komið að endurskrifa
textann þannig að hann dragi dám
af hinum harða raunveruleika efna-
hagskreppunnar.
Það er ekki lengur flott vestanhafs að flíka auð sínum. Efnahagslægðin hefur fætt af sér framandi tilfinn-
ingu á meðal auðmanna og iðrunar gætir á meðal þeirra sem uppvísir hafa orðið af því að halda afmælis-
veislur sem kostað hafa milljónir dala. Rándýrt glys er skilið eftir heima og þeir sem áður keyptu sér dýra
bíla til að flíka óendanlegum auði sínum hugsa sig tvisvar um.
Iðrun auðkýfInga
Þeir sem áður höfðu
lifibrauð af því að aug-
lýsa lúxusvarning rétt
skrimta og fallið hefur
ótæpilega á glans aug-
lýsingatímaritanna
sem höfða til þeirra
sem gildir voru á velli
og böðuðu sig í at-
hygli þeirra sem minna
höfðu milli handanna.
Bentley Ný viðhorf auðmanna til
eyðslu hafa haft mikil áhrif á sölu
framleiðenda lúxusbifreiða.
Richard Fuld
„er þetta réttlátt?“ stjórnarfor-
maður Lehman brothers var
gagnrýndur fyrir óhófslífsstíl
þegar bankinn riðaði til falls.
KolBeInn þoRsteInsson
blaðamaður skrifar: kolbeinn@dv.is
Góðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
Góðar gjafirGóðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Góðar gjafir
Handprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is
Ha dprjónasambandið
Skólavörðustíg 19 • Iðu, Lækjargötu 2A.
s. 552 1890 • www.handknit.is