Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Qupperneq 10
föstudagur 5. desember 200810 Fréttir
KALT VOR
Fritz Már Jörgensson
- íslenskur krimmi -
Fritz M
ár Jörgensson
K
A
LT V
O
R
Fritz Már Jörgensson er hér með nýja bók sem
svo sannarlega hefur slegið í gegn.
Kalt Vor er frábær skáldsaga eftir einn allra
vinsælasta spennusagnahöfund þjóðarinnar.
Kalt Vor er ein af þessum bókum sem þú leggur
ekki frá þér fyrr en hún er lesin upp til agna.
KALT VOR
Brunnur bókaútgáfa
–bókaútgáfan þín
Þetta er þriðja skáldsagan eftir Fritz
Már Jörgensson. Fyrri bækur hans
vöktu verðskuldaða athygli og fengu
báðar bækurnar mjög lofsamlegar
umsagnir og frábærar viðtökur lesenda.
ERFIÐUR NÁGRANNI
SEKUR UM MORÐ
Hæstiréttur staðfesti í gær 16 ára fangelsisdóm Héraðsdóms Reykjavíkur frá því í maí yfir Þórarni Gíslasyni.
Hann varð Borgþóri Gústafssyni að bana við Hringbraut í Reykjavík 7. október 2007. Allt frá því Þórarinn var
fyrst færður í gæsluvarðhald þar til dómur féll í gær hélt hann fram sakleysi sínu.
Þórarinn Gíslason sætir fangelsisvist
í allt að sextán ár fyrir að hafa myrt
Borgþór Gústafsson á heimili þess
síðarnefnda við Hringbraut í októb-
er. Morðið framdi Þórarinn 7. októb-
er á síðasta ári en hann hefur statt og
stöðugt haldið fram sakleysi sínu.
Slökkvitæki var morðvopnið
Það var um hádegisbil 8.október 2007
sem lögreglu var tilkynnt um það
sem í fyrstu virtist vera alvarleg lík-
amsárás í íbúð við Hringbraut. Borg-
þór Gústafsson fannst meðvitund-
arlaus og blóðugur á heimili sínu.
Hann reyndist hafa verið laminn ítr-
ekað með slökkvitæki og höfuðkúpa
hans var margbrotin. Áður en dag-
urinn var liðinn var Borgþór látinn.
Endanlegt banamein hans var heila-
blæðing eftir höfuðkúpubrot.
Borgþór og Þórarinn höfðu set-
ið að drykkju um kvöldið en sá síð-
arnefndi var handtekinn á staðnum,
ofurölvi. Grunur beindist fljótt að
Þórarni en á myndskeiðum úr ör-
yggismyndavélum í anddyri hússins
mátti sjá þá takast á. Þórarinn var
úrskurðaður í gæsluvarðhald í kjöl-
farið. Nú hefur Hæstiréttur staðfest
dóm héraðsdóms. Sextán ára fang-
elsi fyrir manndráp.
Játaði aldrei
Í aðdraganda voðaverksins höfðu
mennirnir báðir setið að neyslu
áfengis og lyfja. Upptökur úr mynda-
vélum í anddyri hússins sýna hvar
mennirnir áttu í erjum. Þórarinn
Gíslason bjó í íbúð í sama húsi og
fórnarlambið. Í íbúð Þórarins fund-
ust meðal annars föt með dufti úr
slökkvitæki auk þess sem rafmagns-
rofar í íbúð Þórarins voru kámugir
með blóði Borgþórs.
Í vitnaleiðslum sagði Þórarinn að
hann hefði talið að magi Borgþórs
hefði sprungið af því að hann hefði
drukkið spritt. Blóðið á fötum sínum
sagði Þórarinn að væri vegna þess að
Borgþór hefði frussað á hann. Seinna
í skýrslutökum fór minni Þórarins að
skýrast. Þórarinn var viðstaddur alla
aðalmeðferð málsins fyrir dómi á
sínum tíma og hlýddi á vitnisburð. Í
lok aðalmeðferðar var hann spurð-
ur hvort málið væri farið að rifjast
eitthvað upp fyrir honum. Þórarinn
kvað svo ekki vera og játaði aldrei
verknaðinn.
Úrskurðaður sakhæfur
Þórarinn var úrskurðaður sakhæf-
ur að lokinni geðrannsókn. Hann er
talinn eðlilega gefinn og ósturlað-
ur. Engin einkenni fundust um al-
varlegar persónuleikaraskanir eða
heilaskaða. Læknir mat það öruggt
að hann væri haldinn kvíðaröskun
og óyndi. Hann hafi enda verið í sí-
felldri áfengis- og fíkniefnaneyslu.
Héraðsdómara þótti fullsann-
að að Þórarinn hefði framið morð-
ið, jafnvel þótt vandséð væri hvað
honum hafi gengið til. Hann ætti sér
engar málsbætur. Þórarinn þarf að
greiða aðstandendum Borgþórs ríf-
lega hálfa milljón í miskabætur auk
málskostnaðar.
Íbúðin varð að greni
Skömmu fyrir morðið fjallaði DV
um það að Félagsbústaðir Reykja-
víkur, sem áttu íbúðina sem Borg-
þór bjó í, hefðu reynt að fá hann
borinn út. Ástæðan var ítrekaðar
kvartanir nágranna Borgþórs sem
töldu hann mjög erfiðan nágranna.
Dómari hafnaði kröfunni vegna
þess að Borgþór hafði aðeins feng-
ið eina formlega viðvörun en hefði
þurft að fá tvær samkvæmt leigu-
samningi.
Nágrannar sögðu að Borgþór
hefði breytt heimili sínu í nokkurs
konar greni og stóð stuggur af hegð-
un hans en hann og gestir hans skildu
eftir sig sprautur og nálar í húsinu.
Borgþór átti nær sleitulausan
sakaferil frá árinu 1983. Hann hafði
hlotið þrjátíu dóma fyrir brot á hegn-
ingarlögum, flesta vegna þjófnaða en
einu sinni vegna líkamsárásar. Hann
var síðast dæmdur í tveggja mánaða
fangelsi í febrúar síðastliðinn fyr-
ir að hafa pantað mat fyrir sautján
þúsund krónur á veitingastaðnum
Indókína, án þess að borga.
SiGurður Mikael JónSSon
blaðamaður skrifar: mikael@dv.is
erfiður
nágranni
barinn til bana
ógæfumaður barinn til bana á heimili sínu við hringbraut:
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð
þriðjudagur 9. október 2007 dagblaðið vísir 161. tbl. – 97. árg. – verð kr. 235
FRÉTTIR
nágrannar mannsins sem lést eftir barsmíðar á heimili sínu við Hringbraut höfðu lengi kvartað undan hávaða og látum. félagsbústaðir reyndu að fá borgþór borinn út fyrir skemmstu en tókst ekki. Maðurinn var í óreglu og illa á sig kominn. „Ég vildi gjarnan hjálpa honum en vissi ekki hvað ég gat gert,“ segir georg Viðar björnsson
húsvörður. Sjá bls. 2.
>> Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í fótbolta, er í þjálfaranámi með Roy Keane. Að loknu námi verður hann mennt-aðasti starfandi þjálfari í landinu, kominn
með UEFA-PRO gráðuna. Eini Íslendingurinn sem er með hana í dag er Teitur Þórðarson.
Hálfgert
trúboð
>> „Ég er svo sannarlega forfallinn
aðdáandi og búinn að vera það í
þó nokkurn tíma,“ segir
Þröstur Helgason. Hann hefur
skrifað bók um tónlistar-
manninn Tom Waits sem
hann birtir endurgjaldslaust á
heimasíðu sinni. Hann segir
skrifin hálfgert trúboð.
í námi með
roy keane
>> Ólöf Ósk Erlendsdóttir, sem
kærði Guðmund Jónsson í Byrginu
fyrir kynferðisbrot og sætir nú
ákæru fyrir að kefla og pynta mann,
er farin að hjálpa til í sunnudaga-
skóla. Hún lýsti sig seka í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær af ákæru
um húsbrot ásamt fjórum öðrum.
Snúa bökuM SaMan
SjálfStæðiSMenn bundu enda á
deilur Sínar uM reykjaVik energy
inVeSt og ákVáðu að Selja fÉlagið.
borgarfulltrúarnir Sex SeM deildu á
VilHjálM Þ. VilHjálMSSon borgarStjóra
Hafa tekið Hann í Sátt. kauprÉttar-
SaMningar Við StarfSMenn og
Stjórnendur ollu Mikilli óánægju.
dV birtir nöfn allra Þeirra SeM áttu
uppHaflega að fá kauprÉtt.
>> Tugir manna bíða
við dyrnar á Góða
hirðinum hvern dag
eftir að búðin verði
opnuð til að missa
ekki af því nýjasta
sem er í boði. DV tók
nokkra nokkra
þeirra sem stóðu í
biðröðinni tali.
bíða í
röðuM
Fólk
Hjálpar
til í kirkju 9. október 2007
Vettvangur voðaverksins
Vímuæði endaði með morði.
Mynd: dV - SiGtryGGur ari JóhannSSon