Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Page 13
föstudagur 5. desember 2008 13Helgarblað Ekki hlustað á aðvaranir Landsbankinn bað breska sérfræð- inga um að gera skýrslu um íslenska bankakerfið og fékk hana í hend- ur í apríl. Geir H. Haarde forsætis- ráðherra sagði við fjölmiðla í maí að botninum væri náð. Það reyndist fjarri lagi. Ríkisstjórnin fékk skýrsl- una í hendur í byrjun júlí en lítið var að gert til að fyrirbyggja það sem síð- ar gerðist. Þorgerður Katrín Gunn- arsdóttir menntamálaráðherra sagði að breskur bankasérfræðingur sem spáði fyrir um hrunið þyrfti að fara í endurmenntun. Þorgerður hefur beðist afsökunar á þessum ummæl- um. Þrátt fyrir afsökunarbeiðnina, skellti hún skollaeyrum við aðvör- unum á þeim tíma sem nauðsyn- legt hefði verið að hlusta. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði að það væri engin kreppa, þegar hún var búin að sjá skýrslu bresku sérfræðinganna. Ingibjörg Sólrún, Þorgerður Katr- ín, Geir H. Haarde og fleiri úr ríkis- stjórninni hafa haldið því fram að eng- inn hefði getað séð hrun efna- hagskerfisins fyrir. Skýrsla bresku sérfræðinganna, aðvaranir Þorvalds Gylfasonar, Gylfa Magnússonar og annarra íslenskra hagfræðinga ári fyrir hrunið eru þó skýr dæmi um það að margir sáu veikleika kerfis- ins fyrir. Aðgerðaleysi leiðir til landflótta Björgvin G. Sigurðsson fór á fund með Alasdair Darling, fjármálaráð- herra Bretlands. Sá síðarnefndi lýsti yfir þungum áhyggjum af Lands- bankanum og IceSave. Björgvin mun hafa útskýrt sýn íslenskra ráða- manna á stöðunni. Atli Gíslason segir marga telja að ákvörðunin um setningu hryðjuverkalaga til þess að frysta eigur Landsbankans í Bret- landi hafi verið viðbragð við boð- skap íslenskra ráðamanna á þessum fundi. Viðbrögð og svör ís- lensku sendinefndarinnar við fyrirspurnum breskra ráðamanna hafi þótt ótrú- verðug og vakið tortryggni. „Það ríkti algjört aðgerðaleysi af þeirra hálfu gagnvart þessari stöðu,“ segir Atli varðandi forsvarsmenn ríkisstjórn- arinnar. Bankarnir hafi verið komn- ir langt yfir þrek íslensks efnahags. Bankarnir voru komnir í lausafjár- kreppu strax á árinu 2007 og fóru þá í kjölfarið að afla sér lausafjár fyrir mikinn áhætturekstur. Atli segir það hafa verið sitt mat að frá þeim degi sem skýrslan barst hafi áframhaldandi viðskipti með Ic- eSave-reikningana verið „glæpsam- leg“. „Það hafi verið í síðasta lagi sem þeir vissu eða máttu vita að þetta gekk ekki upp hjá þeim,“ segir hann. Samkvæmt heimildum DV mun Geir H. Haarde einmitt hafa látið svip- uð orð falla eftir bankahrunið. Atli segir að ef gengið verði að IceSave- reikningunum verði á Íslandi mikil þáttaskil á næstu tuttugu árum. „Við verðum dæmd til atvinnuleysis og landflótta.“ Hann segir ríkisstjórnina hafa sofið á verðinum allt of lengi. Fjármunir hverfa í vörslu framsóknarmanna Tryggingafélagið Samvinnu- tryggingar var stofnað árið 1946 en það sameinaðist svo Brunabótafélaginu í VÍS árið 1989. Þeir sem tryggðu hjá Samvinnutrygging- um árið 1987 til 1988, og héldu áfram að tryggja hjá VÍS fram í júní 2006, áttu að fá hlut sinn greiddan í hluta- bréfum Giftar. VÍS varð verulega umdeilt þegar Finnur Ingólfs- son, ásamt Helga S. Guðmunds- syni og fleiri framsóknarmönn- um, var sakaður um að misnota sjóðinn í fjárfestingar, þar á meðal til kaupa á Bún- aðarbanka Íslands, síðar Kaup- þingi, árið 2003. Margir vildu meina að þar hefði átt sér stað stærsta bankarán sögunnar. Samvinnutryggingar urðu alræmd- ar í ljósi þess að framsóknarmenn stjórna sjóðnum, þar ber hæst Finn Ingólfsson, Helga S. Guðmunds- son, og svo Valgerði Sverrisdóttur sem nú situr í fulltrúaráði félagsins. Öll komu þau að einkavæðingarferli Búnaðarbankans, Valgerður var þá viðskiptaráðherra, Helgi og Finnur kaupendur. Hrundi með fjármálakerfinu Það var svo í júní á síðasta ári sem fulltrúaráð Eignarhaldsfélagsins Samvinnutrygginga, samþykkti að stofna dótturfélagið Gift. Þá var jafn- framt samþykkt að leggja allar eign- ir inn í félagið sem voru 60 milljarðar en eigið fé var 30 milljarðar. Gjörn- ingurinn varð umdeildur, þá sérstak- lega í ljósi þess að um fimmtíu þús- und manns, sem greiddu tryggingar þar árum saman, eiga eignarrétt í félaginu. Heildarupphæðin sem al- menningur á tilkall til er þrjátíu millj- arðar, fé sem nú virðist vera tapað. Í kjölfarið hefur Gift farið um víð- an völl og fjárfest í mörgum félögum og fyrirtækjum. Þar ber hæst Exista og Kaupþing, en bankinn var þjóð- nýttur í október. Þá átti Gift einn- ig í Landsbankanum og Glitni, sem einnig hafa verið þjóðnýttir. Gift átti síðan hluta í Straumi-Burðarás, sem skilaði nýlega tapi, vel yfir tuttugu milljarða. Því er ljóst að Gift er komið í veruleg vandræði með fé almenn- ings. Kreppan er næstum búin að knésetja félagið áður en það kemst í hendur þeirra fimmtíu þúsund ein- staklinga sem hafa eignarrétt í því. Skilanefndin skilar engu „Með því að samþykkja skilanefnd- ina án þess að fá löggildingu, er full- trúarráðið komið í þá stöðu að það gæti verið að brjóta lög,“ sagði hæsta- réttarlögmaðurinn Sigurður G. Guð- jónsson, sem gagnrýndi tilurð Giftar á sínum tíma harðlega, við DV. Hann sagði skilanefndina svokölluðu, sem átti að vinna að slitum Giftar, ekki vera löglega. „Ég veit ekki til þess að það sé einhver löggilding sem þeir hafa fengið og því engar lagalegar forsendur til þess að annast þessi störf,“ segir Sigurður um skilanefnd- ina en formaður hennar er Kristinn Hallgrímsson hæstaréttarlögmaður. Samkvæmt heimasíðu Samvinnu- trygginga kemur fram í pistli á síð- asta ári að skilanefndin myndi slíta félaginu í fyrsta lagi í október á síð- asta ári. Það var Þórólfur Gíslason, þáverandi formaður stjórnar Giftar, sem það skrifaði, en hann sagði sig úr stjórn í mars síðastliðnum. Ekkert bólar á skilum skilanefndarinnar og nú er raunveruleg hætta á að verð- mætin hafi tapast í því efnahagslega fárviðri sem hefur ríkt hér á landi undanfarið. Engir fundir „Ég get bara ekkert sagt um það,“ svaraði Valgerður Sverrissdóttir þegar DV spurði hana út í alvarlega stöðu Giftar og þýðingu þess fyrir hana. Hún staðfesti hins vegar við blaðamann að hún hefði verið stödd á fundi fulltrúaráðs Samvinnutrygg- inga þegar ákvörðunin um Gift var tekin í júní á síðasta ári. Hún sagði að enginn hefði kallað til fundar vegna ástandsins núna, síðasti fundur hefði verið haldinn í upphafi árs. Þá komst hún ekki vegna þess að hún var stödd erlendis. Þegar haft var samband við fram- kvæmdastjóra Giftar, Benedikt Sig- urðsson, vildi hann ekki svara spurn- ingum um fjárhagsstöðu Giftar. Ríkislögreglustjóri sakaður um líflátshótun Sjö ára gamalt mál úr embættis- mannakerfinu er áhugavert í ljósi þess hvernig það var ekki tekið fyrir og í rauninni þaggað niður. 4. febrú- ar 2001 var lögreglan kölluð til vegna uppákomu á Vínbarnum. Þá sak- aði heildsali nokkur í Reykjavík Har- ald Johannessen ríkislögreglustjóra um að hafa hótað sér lífláti. Í grein í Mannlífi sem birtist í október 2005 segir: „Sá sem varð fyrir hótuninni, Ingvar Karlsson heildsali, upplýsti að sá sem ætti hlut að máli væri Harald- ur Johannessen ríkislögreglustjóri sem hefði skvett framan í sig úr vín- glasi og síðan hótað sér lífláti. Vitnin, Guðmundur F. Jónsson og Kristinn Pétur Magnússon, staðfestu fram- burð Ingvars.“ Þau sjónarmið voru uppi að lög- um samkvæmt bæri lögreglu að rannsaka málið og vísa því til sak- sóknara þar sem hótanir um líflát teljast til alvarlegra brota. Sú væri vinnureglan, hvort sem þolandi vildi kæra eða ekki, enda dæmi þess að þeir sem verða fyrir hótunum hætti við að kæra af einskærum ótta. Í hegningarlögum er skýrt kveðið á um að slík mál skuli sæta opinberri kæru. Ekkert varð þó af henni og málið þurrkað af borði lögreglunnar. Í grein Mannlífs kemur fram að sam- kvæmt heimildum tímaritsins hafi Haraldur beðist afsökunar á skvett- unni og boðið Ingvari hreinsun á fötunum. Ingvar sjálfur lagði ekki í hart við sjálfan ríkislögreglustjóra og dró sig í hlé. HINIR ÁBYRGÐARLAUSU Hlutabréf hurfu Kaup birnu einarsdótt- ur, bankastjóra glitnis, upp á 184 milljónir voru skráð í Kauphöllina, þau hurfu hins vegar úr kerfi bankans. Vill kaupa banka í Lúx sigurður einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, virðist ennþá eiga nóg af peningum, en hann hefur áhuga á því að kaup Kaupþing í Lúxemborg. Umdeildur formaður Verkalýðs- forkólfurinn gunnar Páll Pálsson samþykkti afskráningu skulda hjá stjórnendum Kaupþings. Hávær krafa sífellt fleiri eiga það á hættu að missa íbúðir sínar vegna þess ástands sem ríkir í kjölfar hrunsins. Krafa margra er uppstokkun í fjármálafyrir- tækjum, seðlabanka og í ríkisstjórn. Framhald á næstu síðu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.