Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 16
í bo
rg
in
n
i
föstudagur 5. desember 200816 Helgarblað
í la
n
d
sm
á
lu
m
í seð
la
ba
n
k
a
n
u
m
Hæðir og lægðir
Nokkur kosNiNgaúrslit og eiN skoðaNaköNNuN í lífi davíðs
57,8%
47,4%
52,5%
52,7%
60,4%
38,6%
37,1%
40,7%
33,7%
10,0%
19821978
1974 1986
1990
1991
1995 1999
2003
2008
allar tölur 1974 til 2003 miðast við úrslit þeirra kosninga þar sem davíð oddsson var í framboði, hann
var frá og með árinu 1982 ávallt efstur á framboðslista. tölurnar fyrir 2008 miðast við skoðanakönnun
fyrir fréttastofu stöðvar 2 um hversu stór hluti vildi að davíð oddsson héldi áfram sem seðlabanka-
stjóri, svarhlutfall var aðeins 40 prósent sem er rétt rúmlega helmingur þess sem telst æskilegt.
Davíð Oddsson seðlabankastjóri lét
strax í októberbyrjun þau skilaboð
ganga til samflokksmanna sinna í
Sjálfstæðisflokknum að hann myndi
snúa aftur í stjórnmálin ef honum
yrði vikið úr Seðlabankanum.
Heilu mótmælafundirnir hafa
verið haldnir á undanförnum vik-
um þar sem þess er krafist að Davíð
víki. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, ut-
anríkisráðherra og formaður Sam-
fylkingarinnar, hefur lagt það til auk
annarra flokksmanna sinna sem eru
í ríkisstjórn. Geir H. Haarde forsæt-
isráðherra hefur þó veigrað sér við
að víkja Davíð úr sæti og uppskorið
furðu margra.
Loks hefur Davíð nú opinberlega
komið þessum yfirlýsingum sínum
á framfæri. Hann ræddi þó ekki við
íslenska fjölmiðla sem ítrekað hafa
reynt að ná tali af honum undanfar-
ið heldur fór hann í viðtal í danska
blaðið Fyens Stiftstidende liðna helgi
og gerði hug sinn ljósan.
Bankaleynd í tísku
Davíð mætti á fund viðskiptanefndar
Alþingis í gærmorgun í fylgd lögreglu
og lífvarða. Davíð átti að gera grein
fyrir orðum sem hann lét falla á fundi
Viðskiptaráðs Íslands 18. nóvember.
Þar sagðist hann vita af hverju Bretar
hefðu beitt hryðjuverkalögum gegn
íslensku bönkunum. Davíð vildi ekk-
ert tala við fjölmiðlamenn fyrir fund-
inn en aðspurður hvaða maður það
væri sem skuldaði bönkunum þús-
und milljarða sagði Davíð: „Ég nefni
þann mann ekki á nafn.“
Fundurinn tók óvenju langan tíma
sérstaklega í ljósi þess að Davíð gaf
ekkert upp á fundinum annað en að
ítreka það að Seðlabanki Íslands hafi
varað ráðherra ríkisstjórnarinnar við
að bankarnir hefðu 0% möguleika
á að lifa af. Árni Páll Árnason, þing-
maður Samfylkingarinnar sem fór
fram á að Davíð sæti fundinn, sagði
hann hafa borið fyrir sig bankaleynd
þegar hann var spurður út í hryðju-
verkalögin. Árni Páll var augljóslega
vonsvikinn með fundinn en sagði þó
að nefndin myndi ekki aðhafast frek-
ar í málinu.
Davíð eitt og tvö
Davíð virðist vera í hrópandi mót-
sögn við sjálfan sig því á fundi Við-
skiptaráðs Íslands sagði hann með-
al annars: „Sú reiði sem kraumar í
þjóðfélaginu og hægt er að beina í
ýmsar áttir af áróðursmaskínum er
ekki síst kraumandi vegna þess að
það er ekki verið að upplýsa almenn-
ing um eitt eða neitt.“
Davíð gagnrýndi einnig banka-
leyndina á fundi viðskiptaráðs en í
gær bar hann hana fyrir sig. Davíð
stóð því sjálfan sig að því að upplýsa
ekki almenning - eitthvað sem hann
gagnrýndi fyrir rúmum tveimur vik-
um. Þá vildi Davíð ekkert ræða við
fjölmiðlamenn að fundi loknum í
gærmorgun en veitti samt sem áður
kínverska ríkissjónvarpinu langt og
gott viðtal í fyrradag. Íslenskir fjöl-
miðlar eru vægast sagt ósáttir við
framkomu Davíðs því svo virðist sem
Davíð velji sér þá fjölmiðla sem hann
vill ræða við.
Blaðamaður DV hitti Árna Mathie-
sen fjármálaráðherra á Alþingi stuttu
eftir fund viðskiptanefndarinnar og
sagði Árni að Davíð hefði ekki borið
fyrir sig bankaleynd þegar hann innti
Davíð eftir svörum um þær ástæður
sem liggja að baki beitingu hryðu-
verkalaganna.
Ólöglegar færslur Kaupþings
„Ég hef spurt hann sjálfur að þessu
og þá bar hann ekki fyrir sig banka-
leynd. Eftir því sem hann hefur sagt
mér voru grunsemdir um það að
Kaupþing hefði flutt fjármuni ólög-
lega til Íslands en eftir því sem ég
best veit hefur það ekki verið stað-
fest,“ sagði Árni og bætti við að hann
sæi ekki að að aðrar ástæður gætu
komið til greina. „Þeir höfðu grun
um það á þessum tíma.“
Aðspurður hvort Seðlabanki Ís-
lands væri orðinn of pólitískur sagði
Árni: „Seðlabankinn á að vera sjálf-
stæður og óháður þannig að það er
auðvitað ekki gott ef hann bland-
ast við pólitíkina en það má kannski
segja að það hafi verið aðrir sem hafi
haft frumkvæði að því en Davíð.“
Hvað endurkomu Davíðs varð-
ar og hvort Árna hugnist það sagði
hann einfaldlega: „Það fer eftir því
hvernig hann gerir það.“
Geir H. Haarde forsætisráð-
herra kallaði blaðamenn á sinn
fund í stjórnarráðinu í gær þar sem
hann talaði um fleytingu krónunn-
ar. Blaðamenn vildu þó lítið tala um
krónuna og snerist fundurinn á ör-
skömmum tíma í fyrirspurnir vegna
ummæla Davíðs.
Geir sagðist ekki líta svo á að Dav-
íð væri að hóta sér með þeim um-
mælum að hann myndi snúa aft-
ur í stjórnmál ef honum yrði vikið
úr starfi sem seðlabankastjóra. Geir
vildi einnig meina að ummæli Dav-
íðs í fjónska fréttablaðinu hefðu ver-
ið tekin úr samhengi.
Man ekki eftir aðvörun
Geir var einnig spurður út í þau orð
sem Davíð lét falla á fundi viðskipta-
nefndar í gærmorgun. Þar sagði
Davíð að hann hefði í sumar greint
ráðamönnum frá því að það væru
0 prósent líkur á því að bankarn-
ir myndu lifa af aðsteðjandi hætt-
ur í efnahagslífinu. Svar Geirs vakti
vægast sagt athygli en hann sagði
að Davíð væri að vitna í símtal sem
þeir hafi átt í sumar. Geir man þó
ekki eftir símtalinu sjálfur og virðist
því treysta því að hann hafi átt þetta
samtal yfirhöfuð við Davíð.
Geir sagði einnig á fundinum að
hann treysti Davíð fullkomlega og
að hann hafi aldrei hugleitt að víkja
honum úr starfi. Hvað varðar hugs-
anlega endurkomu Davíðs í stjórn-
málin sagði Geir að hann myndi ekki
standa í vegi fyrir honum.
Geir vissi ekki af hverju Dav-
íð hefði borið fyrir sig bankaleynd
á fundi viðskiptanefndar og benti
blaðamönnum á að spyrja réttan
mann. Geir tók hins vegar fram að
Davíð hefði talað tæpitungulaust við
sig um þær ástæður sem lágu á bak
við beitingu hryðjuverkalaganna.
Ástæðurnar eru þær sömu og Davíð
greindi Árna Matthiesen frá - að það
væri vegna þess að Bretar hefðu haft
grunsemdir um það að Kaupþing
hefði flutt fjármagn frá Bretlandi á
ólöglegan hátt.
Björgvin G. Sigurðsson viðskipta-
ráðherra segir bankaleynd Davíðs
orka tvímælis.
Verður að upplýsa þjóðina
„Mér finnst það orka tvímælis, sér-
staklega þar sem Davíð hafði áður
boðað að hann vissi hvað olli þessu.
Það verður þá að skoða það alveg
sérstaklega hvort það sé ekki hægt að
aflétta einhverri leynd af þessu máli
ef Davíð telur að bankaleyndin sé að
þvælast fyrir honum,“ segir Björg-
vin og bætir við: „Það er einboðið að
hann upplýsi þjóðina.“
Aðspurður hvort hann hafi spurt
Davíð segir Björgvin að það hafi ekki
hvarflað að honum: „Hann getur
upplýst það á opinberum vettvangi.“
Hvort Kaupþing hafi flutt fjár-
magn ólöglega úr Bretlandi eður ei
sagði Björgvin að það væri í rann-
sókn.
„Verið er að rannsaka allar hreyf-
ingar innan bankanna, þær vikur og
mánuði fyrir fall þeirra. Ég hef ekki
fengið neinar upplýsingar um það
að Kaupþing hafi gert eitthvað ólög-
legt.“
Björgvin segir það mjög óheppi-
legt hversu pólitísk umræðan er um
Seðlabankann: „Sérstaklega þegar
við stöndum í jafnmikilvægu verk-
efni og því að koma aftur verði á
gjaldmiðilinn.“
Hvað yfirlýsingar Davíðs varð-
ar um endurkomu í stjórnmál segir
Björgvin: „Tímasetningin er óheppi-
leg.“
Davíð dáleiðir
Hallgrímur Helgason rithöfundur
hefur aldrei farið leynt með álit sitt
á hægri öflum samfélagsins og hef-
ur verið tíðskrifað um bláu höndina.
Hallgrímur hefur þó trú á að ef Davíð
fer í framboð eigi hann möguleika á
að komast aftur á þing.
Leynimakk Davíðs
Davíð Oddsson seðlabankastjóri talaði tæpitungulaust við Árna Mathiesen fjármála-
ráðherra og Geir H. Haarde forsætisráðherra um þær ástæður sem lágu að baki beit-
ingu breskra stjórnvalda á hryðjuverkalögunum en bar fyrir sig bankaleynd á fundi við-
skiptanefndar í gærmorgun. Þá sagði Davíð einnig að hann hafi varað ráðamenn við
hruni bankanna. Það staðfesti Geir H. Haarde og sagði Davíð vera að vitna í símtal sem
Geir man þó ekki eftir. Rithöfundurinn Hallgrímur Helgason segir að Davíð sé yfirfor-
sætisráðherra og að hann búi yfir miklum dáleiðslumætti sem verður til þess að fólk
hlusti á hann. Davíð náði hins vegar ekki að dáleiða ríkisstjórnina.
GRAFÍK JÓN INGI
AtlI MÁR GylFAsON OG
eRlA HlyNsDÓttIR
blaðamenn skrifa: erla@dv.is og atli@dv.is