Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Síða 17
föstudagur 5. desember 2008 17Helgarblað
„Ég held að hann geti alveg komið
sér á þing. Hann hefur dáleiðslumátt
sem fáir aðrir hafa og þegar hann
byrjar að tala um pólitík eru margir
sem hlusta og margir sem verða dá-
leiddir þótt hann sé reyndar búinn
að reyna svolítið á þolrifin undanfar-
ið,“ segir Hallgrímur.
Einar Mar Þórðarson stjórnmála-
fræðingur hefur hins vegar litla trú
á mögulegri endurkomu Davíðs í
stjórnmál. „Ég held að nú þegar í dag
sé meira framboð af Davíð en eftir-
spurn í íslenskri pólitík,“ segir hann.
„Í fyrsta lagi held ég að þetta
séu mjög óeðlileg ummæli að hálfu
embættismanns og seðlabanka-
stjóra. Það má kannski segja að þetta
sé undirliggjandi hótun til hans yfir-
manns sem er forsætisráðherra, að ef
hann fái ekki að vera í friði ætli hann
að fara aftur í pólitík. Hann gefur það
í skyn að hann ætli þá að reyna að
skáka forsætisráðherra, hvort sem
það yrði gert innan Sjálfstæðisflokks
eða þá með nýju framboði,“ segir
Einar.
Reka ekki Davíð
Hannes Hólmsteinn Gissurarson,
prófessor í stjórnmálafræði við Há-
skóla Íslands og náinn vinur Dav-
iðs, segist ekki túlka sem hótun þau
orð Davíðs um að snúa aftur í stjórn-
mál ef honum verður vikið úr Seðla-
bankanum. „Ég hef enga trú á, að
ríkisstjórnin reki Davíð Oddsson úr
Seðlabankanum, enda var hann eini
maðurinn í ábyrgðarstöðu, sem var-
aði við þróuninni. Við erum núna að
súpa seyðið af því, að ekki var á hann
hlustað. En væri hann rekinn þyrfti
enginn að furða sig á því, að hann
svaraði fyrir sig,“ segir Hannes.
Hann telur heldur ekki að Geir
óttist endurkomu Davíðs í stjórn-
málin og því hafi hann ekki vikið
honum frá. „Geir Haarde veit eins
og margir aðrir, að Davíð er réttur
maður á réttum stað. Þeir vinna vel
saman, enda eru þeir báðir drengir
góðir, traustir og heiðarlegir. Það er
fátt fjær Geir Haarde en að láta und-
an lýðskrumurum og keyptum þjón-
um auðjöfranna, sem gera nú hróp
að Davíð,“ segir Hannes.
Aðspurður hvort hann telji Dav-
íð geta tekið við forystu Sjálfstæðis-
flokksins að nýju eða hvort vænlegra
væri fyrir hann að stofna nýjan flokk
segir Hannes: „Ég hef þegar svar-
að þessu: Ég hef enga trú á, að rík-
isstjórnin reki Davíð Oddsson, enda
þyrfti að setja sérstök lög til þess.“
Of auðvelt með að tala
Fanney Birna Jónsdóttir, formað-
ur Heimdallar, hefur litlar áhyggjur
af því að Davíð Oddsson geti ógnað
stöðu núverandi forystu Sjálfstæð-
isflokksins. „Honum er náttúrulega
frjálst að bjóða sig fram eða koma
aftur inn í stjórnmálin,“ segir hún.
Fanneyju finnst erfitt að leggja mat á
hvort skilja skuli orð Davíðs þannig
að hann hyggi á endurkomu í próf-
kjör Sjálfstæðisflokksins eða sér-
framboð. „En hann er velkominn í
prófkjör hér eins og aðrir. Þetta er
lýðræðislegur flokkur,“ segir Fanney.
Hún segist ekki hafa forsend-
ur til að meta hvort túlka megi orð
Davíðs þannig að hann sé í raun
að hóta Geir ef hann víki honum úr
Seðlabankanum. Fanney hefur hins
vegar mikla trú á Geir. „Ég held að
Geir standi traustum fótum innan
flokksins og hef persónulega engar
áhyggjur af því að það verði vanda-
mál ef Davíð eða einhver annar
fari á móti honum, eða á móti for-
ystu flokksins yfirhöfuð. Ég held að
endurkoma Davíðs í stjórnmál með
hvaða hætti sem það yrði myndi ekki
ógna henni,“ segir Fanney.
Yfirlýsing Davíðs um að hann ætli
aftur í stjórnmál verði honum bol-
að út úr Seðlabankanum bera hins
vegar skýr skilaboð að mati Hall-
gríms. „Mér finnst að með því að tala
svona sé hann að undirbúa brottför
úr Seðlabankanum. Það er eins og
hann sé að búa þjóðina undir það.
Mér finnst hins vegar að Davíð verði
að sýna þá ábyrgð sem hann vill ekki
axla. Davíð er sterkur og dómíner-
andi karakter sem á allt of auðvelt
með að tala við þjóðina.“
Davíð yfirforsætisráðherra
Hallgrímur segir það hafa geigvæn-
legar afleiðingar ef Davíð ætlar sér
að koma að stjórn landsins. „Hann
kemur þá eins og fyrrverandi maki
inn á heimili sem er í sárum, heim-
ili þar sem er verið að byggja upp
nýtt hjónaband. Hann kemur eins
og fyrrverandi maki inn í mjög brot-
hætta stöðu sem er mög slæmt. Með
því myndi hann einnig persónugera
ástandið um of. Nú þurfum við að
byggja upp nýtt þjóðfélag en ekki
láta allt snúast um persónu Davíðs
Oddssonar. Mér finnst hann skulda
þjóðinni frí frá sjálfum sér,“ segir
hann.
Hallgrímur telur að ástæðan fyr-
ir því að Geir hefur ekki vikið Dav-
íð frá störfum í Seðlabankanum sé
ótti hans við að Davíð snúi aftur í
stjórnmálin. „Það blasir við öllum.
Geir skortir kjark. Hann er of mikil
gunga til að vera forsætisráðherra.
Ég hef reynt að skýra þetta út fyr-
ir erlendum blaðamönnum þannig
að þegar Margaret Thatcher hætti
í stjórnmálum hefði hún ekki hætt
í raun heldur skipað sig sem seðla-
bankastjóra og John Major verið for-
sætisráðherra. Þá skilja menn úti
hvaða staða er í stjórnmálunum hér
heima. Þetta er búið að vera absúrd.
Við erum búin að búa til einhvern
yfirforsætisráðherra sem Davíð hef-
ur verið. Geir er ekki nógu sterkur,“
segir Hallgrímur.
Viðtalið við Davíð í Fyens Stiftsti-
dende hefur vakið gífurlega athygli.
Í samtali við mbl.is í gær sagði hann
hins vegar að ummælin sem hann
lét þar falla hafi verið sett í annað
samhengi í blaðinu en tilefni var til
og fólk læsi úr þeim annað og meira
en ástæða væri til. Davíð skýrði mál
sitt þó ekki frekar.
Leynimakk Davíðs
Bankaleynd davíð vildi hvorki tala við
fjölmiðla né viðskiptanefnd alþingis.
Hann bar fyrir sig bankaleynd og yfirgaf
fundinn í fylgd lífvarða og lögreglu.
MynD KRistinn MagnússOn
SNERU AFTUR Í STJÓRNMÁL
alBeRt guðMunDssOn sjálfstæðismaður var
iðnaðar- og fjármálaráðherra í ríkisstjórn steingríms
Hermannssonar 1987 þegar heildsölufyrirtæki hans
varð uppvíst að skattamisferli. Hann sagði af sér
fyrri hluta árs 1987, klauf sig frá sjálfstæðisflokknum
og stofnaði borgaraflokkinn nokkru síðar.
borgaraflokkurinn hlaut 7 þingsæti og tók sæti í
þriðju ríkisstjórn steingríms Hermannssonar 1989.
sveRRiR HeRMannssOn sjálfstæðismaður var
menntamálaráðherra í fyrstu ríkissjórn steingríms
Hermannssonar 1983 til 1987. Hann varð
bankastjóri Landsbankans (ríkisbanki) árið 1988.
Hann hrökklaðist undan davíð Oddssyni og finni
Ingólfssyni úr bankastjóraembætti vorið 1998
ásamt tveimur öðrum bankastjórum, sakaður um
spillingu. sverrir stofnaði þá frjálslynda flokkinn
sem náði tveimur mönnum á þing í kosningunum
1999. sjálfur var sverrir þingmaður eitt kjörtímabil.