Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Qupperneq 18
föstudagur 5. desember 200818 Helgarblað
Heildsalar, verslunarmenn,
framleiðendur og aðrir íslendingar
„Mér var einfaldlega sagt að ég fengi
ekki að dreifa greiðslum vegna þess
að ég væri útlendingur,“ segir Rafal
Ziolkowski, 34 ára Pólverji, sem hef-
ur búið á Íslandi í sjö ár.
Hann var á dögunum staddur í
Bræðrunum Ormsson þar sem hann
hugðist festa kaup á uppþvottavél.
Hann staðgreiddi hluta upphæðar-
innar og óskaði því næst eftir því að
fá að skipta greiðslunum og afhenti
VISA kreditkort. Þá var honum sagt
að það væri ekki hægt vegna þess
að verslunin væri í viðskiptum við
greiðslumiðlunarfyrirtækið Borgun
hf., en fyrirtækið lánar ekki útlend-
ingum.
Synjun í Elko
„Ég er búinn að búa hérna í sjö ár
og hef aldrei upplifað þetta áður. Því
fannst mér þetta mjög leiðinlegt og
upplifði mig sem annars flokks borg-
ara,“ segir Rafal sem hefur, allt frá því
hann kom til landsins, starfað á Far-
fuglaheimilinu í Reykjavík.
Rafal fór því næst í raftækjaversl-
unina Elko. Þar fann hann aðra vél
sem hann ætlaði að kaupa. Þegar
hann kom að kassanum var honum
einnig synjað um að dreifa greiðsl-
um á nokkra mánuði. Ástæðan var
sögð sú sama og áður, Elko skipti við
Borgun hf.
Gekk vel að skipta við Valitor
Það var ekki fyrr en hann hafði tal-
að yfirmann í versluninni sem hann
fékk að vita að fyrirtækið væri einnig
í viðskiptum við Valitor. Honum gekk
greiðlega að semja við það fyrirtæki
og gat því eignast vélina. Hann segist
aldrei hafa svikist um greiðslur enda
hafi hann alla tíð haft trygga og góða
vinnu.
Í 180. grein almennra hegningar-
laga segir meðal annars: „Hver sem
í atvinnurekstri eða þjónustustarf-
semi neitar manni um vörur eða
þjónustu til jafns við aðra á grund-
velli þjóðernis hans, litarháttar, kyn-
þáttar, trúarbragða eða kynhneigðar
skal sæta sektum eða fangelsi allt að
6 mánuðum.“
Rafal segist ekki geta annað séð
en að Borgun hf. brjóti í bága við
lögin. Honum hafi verið mismunað
vegna þjóðernis síns.
Reglunum verður breytt
Haukur Oddsson, forstjóri Borgun-
ar hf., segir að því miður hafi fyrir-
tækið þurft að hafa þær reglur að
lána einungis íslenskum ríkisborg-
urum. „Við lentum í því í stórum
stíl að útlendingar versluðu sér af
ásetningi áður en þeir fluttu af landi
brott. Jafnvel þeir sem höfðu aðeins
búið hér í mjög skamman tíma. Eft-
ir að þeir voru farnir var engin leið
að innheimta skuldirnar. Við gátum
einfaldlega afskrifað þær strax,“ seg-
ir Haukur en bætir við að fyrirtækið
vilji alls ekki gera upp á milli fólks
eftir þjóðerni. „Við erum að vinna að
nýjum reglum sem eiga að koma í
veg fyrir að svona gerist,“ segir hann.
Hann segir að reglurnar muni kveða
á um að fólki verði lánað ef það hefur
búið á landinu í ákveðið mörg ár og
sé ekki á vanskilaskrá. Ekki sé búið
að ganga frá nákvæmum árafjölda
en stefnt sé að því að miðað verði við
fjögur ár.
Fleiri dæmi um synjanir
Beata Czajkowska, vinkona Rafals,
starfar sem túlkur á Íslandi en er
pólsk að uppruna. Hún hefur einnig
búið á Íslandi í sjö ár og hefur svip-
aða sögu að segja. „Ég ætlaði um
daginn að kaupa mér hrærivél í raf-
tækjaversluninni Max. Þegar ég kom
að kassanum var mér synjað um að
skipta greiðslunni, eins og ég hef
margoft gert. Það var löng röð af við-
skiptavinum á eftir mér og þetta var
mjög niðurlægjandi,“ segir hún og
bætir því við að hún hafi ávallt greitt
skatta til samfélagins og tekið fullan
þátt í því eins og aðrir. Því hafi hún
tekið þetta mjög nærri sér.
Þegar DV hafði samband við
Neytendasamtökin fengust þær
upplýsingar að samskonar mál
hefðu komið inn á borð til þeirra og
þau mál væru til skoðunar. Þá sagði
Gísli Tryggvason, talsmaður neyt-
enda, að hann ynni að undirbúningi
tilmæla vegna þessa. Þeirra mætti
vænta fljótlega.
Rafal Ziolkowski og Beata Czajkowska eru frá Póllandi en hafa búið á Íslandi í sjö ár. Þau hafa bæði lent í því
nýlega að vera synjað um greiðsludreifingu þrátt fyrir að hafa fullgild kreditkort. Ástæðan er sú að greiðslu-
miðlunarfyrirtækið Borgun hf. lánar ekki útlendingum. Haukur Oddsson, forstjóri fyrirtækisins, harmar
þetta og segir unnið að nýjum reglum.
Útlendingar fá ekki lánað
BALDUR GUÐMUNDSSON
blaðamaður skrifar baldur@dv.is
„Það var löng röð af
viðskiptavinum á eftir
mér og þetta var mjög
niðurlægjandi.“
Hafa búið á Íslandi í sjö ár rafal
Ziolkowski og beata Czajkowska segja
niðurlægjandi að vera synjað um
greiðsludreifingu vegna þjóðernis þeirra.
MyND SiGtRyGGUR ARi