Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Síða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Síða 20
XLoksins er eitthvað að gerast í pólitíkinni. Davíð Odds-son seðlabankastjóri hefur opinberað í viðtali við danskt bændablað og gott ef ekki kínverskt svæðisútvarp að hann ætli að snúa aftur í pólitík. Svarthöfði viðurkennir hér með að hann er aðdáandi náhirð- arinnar sem er að baki Dabba kóngi í blíðu jafnt og stríðu. Þegar Heim- stjórnarflokkurinn verður stofnaður með pompi og prakt á Gráa kettinum stefnir Svarthöfði á að vera þar í innsta hring, klökkur af hrifningu. Það verður að viðurkennast að Svarthöfði er með sérkenni-legar stjórnmálaskoðanir. Þegar Saddam Hussein var á flótta undan bandaríska hernum og íslenskum friðargæsluliðum var Svart- höfði á meðal þeirra sem vorkenndu karlinum. Hann skyldi aldrei hvernig heimsbyggðin öll gat lagst á eitt með að leggja manni, sem hafði samein- að írösku þjóðina, í einelti. Svo fór á endanum að Saddam fannst í holu við bóndabæ og var tekinn höndum af bandaríska hernum. Það var áfall fyrir Svarthöfða og aðra sem fundu til með mannskepnunni. Eftir að hafa verið sendur í bað og neyddur til að skerða skegg sitt voru sýndarréttarhöld yfir leið- toganum. Hann var dæmdur til dauða og á þeirri sorgar- stundu skynjaði Svarthöfði illsku mannkynsins. Vinur Saddams, Eiturefna-Ali, bíður nú ör- laga sinna á bak við rimla. Eineltið sem Saddam varð fyrir var einnig á ábyrgð Dav-íðs Oddssonar og íslenskra stjórnvalda sem höfðu lýst yfir stríði við Írak. Þetta er í eina skipt- ið sem Svarthöfði hefur verið ósam- mála Davíð í nokkru máli. Það er þó huggun harmi gegn að á umræddum tíma gekk Davíð ekki heill til skógar og lét því líklega blekkjast af fagur- gala Bandaríkjamanna. Skömmu eftir fráfall Saddams steypti Davíð sjálfum sér af stóli og svipti þjóðina þannig forsjá sinni. Það voru mikil mistök en tilkomin vegna þess að of stór hluti þjóðarinnar sveik lit í kosningum og varpaði atkvæði sínu á glæ með því að kjósa ólýðræðisleg öfl á borð við Sam- fylkinguna. En Davíð var þó svo hepp- inn að átta sig á því að hann var best til þess fallinn að stjórna Seðlabank- anum. Þar vantaði mann og hann réði sig til að standa vörð um íslenskan efnahag og krónuna okkar. Fall Davíðs var því með þeim hætti að hann lét sig detta. Síðan hefur hann af alúð hækkað og lækkað stýrivexti. Hvað eftir annað hefur hann varað besta vin sinn, norskan skógarkött, við því að hér gæti allt farið í hund og kött í efnahagsmálum. Hann hefur reynt að vara menn við því sama en enginn hlustaði. Það var ekki fyrr en Davíð komst að í danska bændablaðinu að hann náði eyrum íslensks almenn- ings. Og nú veit þjóðin að hann er að koma aftur. Svarthöfði var á Gráa kettinum þegar Davíð, þá forsætisráð-herra, kynnti bók sína, Nokkrir góðir dagar án Guðnýjar. Það var mögnuð stund og ekki síst það að hann tileinkaði móður sinni ritið. Nú er þeirrar stundar beðið í ofvæni að Davíð og lífverðir hans gangi út úr Seðlabankanum þann spöl sem er á Gráa köttinn. Það verður álíka mögn- uð uppákoma og þegar Napóleon Bonaparte sneri frá Elbu forðum og hermenn sem sendir voru til höfuðs honum féllu til jarðar og gengu hon- um á hönd. Verst er að seinna var Napóleon sendur á aðra eyju þaðan sem hann átti ekki afturkvæmt. En það gætu orðið nokkrir góðir dagar með Davíð. föstudagur 5. desember 200820 Umræða Góðir daGar með davíð svarthöfði spurningin „Hann er ekki í framboði,“ segir Hannes Hólmsteinn gissurarson kennari við Háskóla Íslands. davíð sagði í viðtali við danska héraðsblaðið fyens stiftstidende að hann myndi snúa aftur í stjórnmálin yrði honum bolað burt úr seðlabankanum. Ætlarðu að kjósa davíð? sandkorn n Sjálfstæðismönnum er ekki skemmt vegna þeirrar hótun- ar Davíðs Oddsson- ar seðla- bankastjóra í dönsku bændablaði að snúa aftur. Davíð er reyndar fyrir löngu búinn að láta þessi boð berast til forystu Sjálfstæðisflokksins en það kann að hafa haft þau áhrif á Geir H. Haarde að hann hafi fyllts ótta og óöryggi. Nú er staðan sú að Davíð er búinn að upplýsa um pólitískar ambís- jónir sínar. Honum ætti því ekki að vera neitt að vanbúnaði að fara úr bankanum. n Vafasamt er talið að Dav- íð Oddsson muni ná völdum innan Sjálfstæðisflokksins þar sem hann mætir eindreginni andstöðu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur varaformanns og þögulli mótspyrnu Geirs H. Haarde. Hann á því vart annan kost en þann að kljúfa flokkinn. Þar er talið víst að Hannes Hólmsteinn Gissurar- son, sem nefndur er af gárung- um hirðfífl náhirðarinnar, fylgi leiðtoga sínum í nýjan flokk. Þá er Björn Bjarnason dómsmála- ráðherra líklegur til að dingla með Davíð sem og Sigurður Kári Kristjánsson alþingismað- ur. En þá er líka upptalið. n Guðrún Helgadóttir sat lengi á þingi fyrir Alþýðubandalagið og er auk þess frábær barna- bókahöf- undur. Hún var býsna vinstri sinnuð og óþreytandi málsvari þeirra sem minnst mega sín í samfélaginu, einkum í bar- áttu þeirra við skeytingarlausa auðmenn. Svo vildi hins vegar til að þessi harði gagnrýnandi kapítalismans varð tengda- móðir eins helsta útrásarvík- ingsins, Bjarna Ármannsson- ar, sem nú er flúinn með feng sinn til Noregs. Þar bíður Bjarni átekta með- an Íslendingar þjást vegna glannaskapar hans og fleiri útrásarvíkinga. n Guðrún hefur ekki kvatt sér hljóðs um stöðu tengdasonarins en á degi íslenskrar tungu um dag- inn, mátti þó sjá nokkuð átakanlega pillu frá henni í blöðunum. Sumir af helstu rithöfundum þjóðarinnar skrif- uðu stutt skilaboð til þjóðar- innar, og voru það í flestum tilfellum jólakveðjur eða áskor- anir um að láta ekki hugfallast. Nema hvað Guðrún Helgadótt- ir skrifaði þetta: „Fyrirgef oss vorar skuldir, svo sem vér og LyngháLs 5, 110 Reykjavík Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf. Stjórnarformaður: hreinn Loftsson framkvæmdaStjóri: elín Ragnarsdóttir ritStjórar: jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is og Reynir Traustason, rt@dv.is fréttaStjórar: Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is auglýSingaStjóri: ásmundur helgason, asi@birtingur.is dv á netinu: dv.is aðalnúmer: 512 7000, ritstjórn: 512 7010, áskriftarsÍmi: 512 7080, auglýsingar: 515 70 50. Umbrot: dv. Prentvinnsla: landsprent. Dreifing: árvakur. dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. „Þá mun ég snúa aftur.“ n Davíð Oddson seðlabankastjóri sagði í viðtali við danska dagblaðið Fyns Stiftstidende að hann muni snúa aftur í pólítik ef hann verður látinn hætta sem seðlabankastjóri. - Morgunblaðið. „Ég upplifði hann svona mjög manna- eskjulegan og elskulegan.“ n Eva Hauksdóttir, mómælandi Íslands, fór á fund með Davíð Oddssyni. - DV. „Eru engin föt í dag?“ n Spyr kona sem var of sein til að fá fötum úthlutað í fataúthlutun Mærastyrksnefndar. - Morgunblaðið „Ef þetta verður til að ég verð að segja af mér sem keisari í Rokklandi mun ég axla þá ábyrgð.“ n Ólafur Páll, útvarpsmaður á Rás 2, sem segist ætla að axla ábyrgð á því að hafa sagt að starfsmenn Stöðvar 2 hafi skálað í kampavíni þegar heyrðist af uppsögnunum á RÚV. - Fréttablaðið „Núna væri komin rúm vika síðan hann lofaði mér þessu.“ n Smári Garðarsson sem Össur Skarphéðinsson lofaði að fylgja upp í Seðlabanka til þess að krefja Davíð svara vegna hryðjuverkalaganna. - DV Stjórnvöld sviptu þig frelsinu Leiðari Ef þú keyptir heimili síðustu þrjú árin er fjárhagsleg framtíð þín ráðin. Þótt íbúðin hafi aðeins kostað 22 milljónir króna og þótt þú hafir átt fjórar milljónir í henni muntu fyrir lok árs 2011 skulda um 10 milljónir króna í henni umfram virði hennar. Það skiptir engu máli þótt þú hafir ekki gert neitt rangt, þótt þú hafir bara hlustað á stjórnvöld, sem gagnrýndu þá sem vör- uðu við fasteignamarkaðinum eða „töl- uðu hann niður“. Svo það sé á hreinu var það yfirlýst markmið Sjálfstæðisflokksins að koma þér í þessa aðstöðu. Þrjú fyrstu kosn- ingaloforð flokksins í fjölskyldumálum snerust um að koma fólki í eigið hús- næði. Flokkurinn lofaði líka efnahagsleg- um stöðugleika, og varaði við því að aðrir flokkar væru hættulegir í því tilliti, en nú eru svikin ljós. Í sumar greip Jóhanna Sigurðardótt- ir, vinsælasti ráðherra Íslands, til þeirra aðgerða að auðvelda ungu fólki að kom- ast inn á fasteignamarkaðinn í fyrsta sinn. Þetta gerði hún til að koma í veg fyrir að markaðurinn frysi. Þeir sem tóku tilboði Jóhönnu geta útilokað að eignast sparn- að á næstu árum. Þeir munu þvert á móti eignast skuldir, í mörgum tilfellum um 10 milljónir króna, eða sem nemur öllum útborguðum launum meðal-Íslendings í fjögur ár samfellt. Einstaklingar eiga nú að hugsa um sjálfa sig. Það er ekki þitt vandamál að Íbúðalánasjóður lendi í vandræðum ef margir eins og þú hætta að borga. Það er hins vegar þitt vandamál að yfirvöld hafa gert þig að skuldaþræl fyrir lífstíð. Þau hafa afnumið fjárhagslegt frelsi þitt og skert tækifæri þín um ókomna tíð. Ástæða vandræðanna er ekki að Lehman-bræð- ur fóru á hausinn í New York. Það var morgunljóst strax í janúar að stjórnvöld, greiningadeildir og fasteignasalar hefðu eitthvað að fela þegar kom að fasteigna- markaðnum. Þess vegna birti DV ráð- leggingar til lesenda á forsíðu 17. janúar: „Ekki kaupa íbúð.“ En stjórnvöld héldu áfram að tala upp markaðinn. Þú berð ekki ábyrgð á því að stjórnvöld hækkuðu lánshlutfall, þverskölluðust við að viðurkenna yfirvofandi hrun fasteigna- markaðar, neituðu að afnema verðtrygg- inguna, juku á ofþensluna með skatta- lækkunum, stofnuðu til risaframkvæmda í góðæri og stóðu aðgerðalaus frammi fyrir allsherjarhruni íslensks efnahags- lífs. Þetta er ekki alþjóðlegur vandi. Íbú- ar annarra landa, með önnur stjórnvöld, lenda ekki í því að snarhækkandi verð á nauðsynjum hækki fasteignalán um 20 prósent á einu ári, á sama tíma og fast- eignaverð hrynur um þriðjung. Í Banda- ríkjunum getur fólk skilað húsnæðinu og gengið burt. En vegna þess að þú ert Ís- lendingur þarftu að draga skuldahala á eftir þér alla ævi. Nú stendur yfir ein umfangsmesta frelsissviptingin í Íslandssögunni. Rík- isstjórnin er ekki björgunarsveit. Hún er stjórnandi kerfisins sem kúgar þig. jón trausti reynisson ritstjóri skrifar. Nú stendur yfir ein umfangsmesta frelsissviptingin í Íslandssögunni. bókstafLega

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.