Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 23
föstudagur 5. desember 2008 23Fókus
Hvað er að
GERAST?
föstudagur
n The Viking Giant Show
á Hverfisbarnum
Heiðar og félagar í the Viking giant show
halda útgáfutónleika sína á Hverfisbarnum í
kvöld klukkan 22.00. Þar munu þeir félagar
spila lög af plötunni the Lost garden of the
Hooligans. the Viking giant show er
hugarfóstur Heiðars Kristjánssonar sem er
betur þekktur sem Heiðar í botnleðju.
n Ingi á NASA
Popparinn Ingi heldur tónleika á Nasa í
kvöld til að fagna útgáfu fyrstu breiðskífu
sinnar, Human Oddities. Ásamt Inga mun
átta manna hljómsveit sjá um að halda
uppi stuðinu. Húsið opnað klukkan níu og
tónleikarnir hefjast klukkan tíu. Það er frítt
inn á tónleikana.
n Guns N’ Roses á NASA
snorri Idol, gunnar bjarni í Jet black Joe,
biggi í Landi og sonum, Hebbi í skítamóral
og bulgetrsky ætla að mynda eilífðarrokk-
sveitina guns N’ roses á Nasa í kvöld.
sveitin ætlar að taka alla helstu slagara
hinnar goðsagnakenndu sveitar guns N’
roses og bjóða þig og alla þína vini
velkomin í frumskóginn í kvöld.
n Frostrósir á Höfn
frostrósirnar ætla að skemmta í íþrótta-
húsinu á Höfn í Hornafirði í kvöld. tónleikar
með frostrósum koma öllum í jólaskapið
og ætti öll fjölskyldan að dressa sig upp í
sparifötin og skella sér saman á hátíðlega
tónleika með frostrósunum.
n Stuðmenn á
Players
stuðmennirnir
síkátu með þau
Jónsa og birgittu
Haukdal í
fararbroddi halda
stórdansleik á
Players í kvöld.
dansleikurinn hefst
á miðnætti og
stendur yfir fram á rauða nótt. Haltu gott
fyrirpartí heima hjá þér og dragðu svo alla
vinina út á dansgólfið á Players.
laugardagur
n Baggalútur og Buff á NASA
b-in tvö, baggalútur og buff, halda
stórtónleika á Nasa í kvöld. sveitirnar
sendu báðar frá sér breiðskífur á dögunum
við góðan orðstír og er því von á
gríðarlegri stemningu á tónleikunum í
kvöld. Húsið opnað klukkan ellefu og er
miðaverð fimmtán hundruð krónur.
n Bermuda á Broadway
gleðisveitin bermuda heldur dansleik á
broadway í kvöld að lokinni madonnu-
sýningunni sem fram fer fyrr um kvöldið.
bermuda kann svo sannarlega að fá fólk til
að hrista á sér líkamann á dansskólfinu svo
reimaðu á þig dansskóna og skelltu þér á
broadway.
n Upplyfting á Kringlukránni
að venju verður hörkustuð á Kringlukránni
í kvöld en það er stuðsveitin upplyfting
sem ætlar að sjá um að halda uppi réttu
stemningunni. Það verður dansað,
djammað, trallað og tjúttað á Kringlu-
kránni í kvöld.
n Leitað að jólunum
í Þjóðleikhúsinu
Leitin að jólunum heldur áfram í
Þjóðleikhúsinu í dag klukkan 13.00 og
14.30. Hér er á ferðinni nýtt aðventuævin-
týri eftir Þorvald Þorsteinsson með tónlist
Árna egilssonar. Jólasveinavísur Jóhannes-
ar úr Kötlum fléttast inn í ævintýrið og
skemmta tveir litlir og skrýtnir náungar
bæði stórum sem smáum.
n Á móti sól á Players
sköllótti rokk-popparinn
magni og félagar hans í Á
móti sól halda dansiball á Play-
ers í kvöld. ef það eru einhverjir
sem kunna að koma fólki í
rétta gírinn eru það
strákarnir í Á móti sól
svo þetta er ball sem
enginn sannur
aðdáandi íslenskra
sveitaballa ætti að
láta framhjá sér fara.
SAGA
mANNSINS
mikill og
góður fengur
að þessari
glæsilegu
bók.
m
æ
li
r
m
eð
...
ARTemIS FowL
Eftir Eoin Colfer
artemis er alltaf
jafnskemmtilegur.
ALGLeymI
Eftir Hermann Stefánsson
Hermann stimplar sig
rækilega inn í
íslenskan bókmennta-
heim með þessari firnasterku og
afar frumlegu skáldsögu.
mAdAGAScAR: eScAPe 2
AFRIcA
betri en
fyrri
myndin ef
eitthvað er.
m
æ
li
r
eK
Ki
m
eð
...
ZAcK ANd mIRI mAKe A
PoRNo
Nokkuð
fyndið en
afskaplega
klisjukennt
klúður.
leikunum í fyrra. „Þetta er frábær
kór sem er skipaður ungum mönn-
um og eru helst þekktir fyrir sinn
frábæra söng í kirkjum landsins.
Óskar Einarsson og Gospel-syst-
ur syngja svo bakraddir auk Eyj-
ólfs Kristjáns og Guðrúnar Gunnars
sem bæði syngja sólónúmer líka.“
Ofan á þetta allt er svo 20 barna kór
frá Kársnessskóla. „Þetta er svona í
stærri kantinum. Með öllu starfs-
fólki og þeim sem koma fram eru á
milli 80 og 90 manns sem koma að
þessu.“ Björgvin er í skýjunum með
leikmyndina sem er í höndum Lúx-
or og Björns G Björnssonar en Bravo
heldur tónleikana. Þórir Baldursson
útsetur tónlistina
Þrátt fyrir þetta mikla umfang
eru þetta ekki stærstu tónleikar sem
Björgvin hefur haldið. „Tónleikarn-
ir með Sinfóníusveitinni voru enn
stærri. Þá voru um 150 manns á
sviðinu. Þegar mest var“
Nýjasta í uppáhaldi
Eftir að hafa gefið út fjórar plöt-
ur með jólagestum og sungið ótal
jólalög segir Björgvin erfitt að gera
upp á milli þeirra. „Þau eru orðin
svo mörg. Þegar maður er búinn að
syngja þessi lög sleppir maður þeim.
Þetta eru eins og börnin manns. Þá
fara þau út í lífið og lifa sjálfstæðu
lífi. En það er þannig með mig að ég
held yfirleitt mest upp á það sem ég
er nýbúinn að gera.“
Björgvin segir gamlan slagara
með Nat King Cole vera í uppáhaldi
þessa stundina. „Það heitir á ís-
lensku Við vöggu í Betlehem og við
vorum að æfa það í gær. Það er mjög
fallegt og hugnæmt lag,“ en Björg-
vin er fyrstur til þess að syngja lagið
á íslensku við texta Jónasar Friðriks
Guðnasonar. „Það kemur sérstak-
lega vel út. Það er með kór, strengj-
um og öllu tilheyrandi.“
Á tónleikunum verða leikin ein
26 lög en mörg þeirra eru af plötum
Björgvins, Jólagestir, sem og lög sem
flytjendur á þessum tónleikum hafa
gert vinsæl í gegnum tíðina. „Við
högum lagavalinu í stíl við hugar-
þel fólks í dag og það fá allir eitthvað
við sitt hæfi,“ en Björgvin segir það
allt öðruvísi að spila á jólatónleikum
heldur en venjulegum popptónleik-
um. „Það er alltaf mjög sérstakt að
flytja svona hátíðarlög. Stemningin
er ljúfsár.“
Kokkagallinn kemur
með jólaskapið
Þó að Björgvin hjálpi þúsundum ís-
lendinga að komast í jólaskapið seg-
ist hann oftast komast sjálfur í gírinn
rétt fyrir jól. „Það er yfirleitt bara á
Þorláksmessu. Þá hittumst við vina-
fólk, fáum okkur að borða og ræð-
um jólin og árið sem er senn á enda.
Svo þegar maður kemst í kokkagall-
ann og fer að elda jólamatinn kemst
maður endanlega í gírinn.“
Björgvin segist fá að vera yfir
pottunum í eldhúsinu á aðfanga-
dag en eins og á öðrum heimilum
ríkir mikil hefð varðandi jólamat-
inn. „Við erum vön því að vera með
kalkún á aðfangadag,“ segir Björgvin
en það er nokkuð frábrugðið öðrum
íslenskum heimilum þar sem rjúpa
og hamborgarhryggur ráða oftar en
ekki ríkjum.
Fjölskyldan í útgáfu
Björgvin hefur undanfarið ver-
ið að vinna að útgáfu en hann að-
stoðaði bæði Krumma son sinn og
Svölu dóttur sína við að gefa út plöt-
ur nýlega. „Ég hjálpaði Krumma og
Danna, sem eru saman með hljóm-
sveitina Esju, með þeirra plötu og
svo voru Svala og Steed Lord að
senda frá sér plötu í vikunni. Ég er
svona á kantinum að hjálpa þeim.
Maður hefur gefið svolítið út sjálfur
í gegnum tíðina og er ýmsum hnút-
um kunnugur.“
Björgvin segist hafa mjög gaman
af því að vinna með þeim Krumma
og Svölu. „Maður er að fara í gömlu
sporin sín og rifja upp hvernig þetta
var. Þó þetta gangi nú allt miklu
hraðar en þegar við vorum að gera
þetta. Þá var ekkert sjónvarp á
fimmtudögum, ekkert internet, eng-
inn gemsi og allt í sauðalitunum.“
Björgvin hefur líka verið að vinna
að plötu með Ladda og eru þeir fé-
lagar komnir vel á veg með hana.
„Við erum hálfnaðir með plötuna
hans og hún kemur sennilega út
snemma á næsta ári.
En Björgvin er ekki bara að að-
stoða aðra við að gefa út heldur er
hann að vinna að tveimur plötum
sjálfum. „Ég er að vinna sólóplötu
sem verður svolítið frábrugðin því
sem ég hef verið að gera.“ Björgvin
segir plötuna enn vera í mótun en
hann lýsir henni sem minimalískri.
„Það er lítið um strengi og lúðra
en mikið af míkrafónum.“ Mikið af
frumsömdu efni eftir Björgvin verð-
ur að finna á plötunni.
„Hin platan verður svolítið leynd-
ardómsfull með gestum. Ég er svo
gestkvæmur og mikil félagsvera,“
segir Björgvin léttur. „Ég hef mjög
gaman af því að fá fólk saman í stór
verkefni. Það er skemmtilegra held-
ur en að spila og syngja allt sjálfur.“
Fyrst og fremst þakklátur
Þegar Björgvin lítur til baka yfir feril
sinn segist hann fyrst og fremst vera
þakklátur. „Það sem stendur upp úr
er að geta ennþá verið að vinna að
þessu og hafa svona gaman af. Að
geta ennþá starfað með þessu frá-
bæra fólki sem ég hef unnið með í
gegnum tíðina. Ég hef nú bara stað-
ið á öxlunum á því fólki.“
Björgvin segist aldrei hafa ætl-
að að leggja sönginn fyrir sig. „Þetta
greip mig bara á flugi og ég dróst inn
í þetta. Maður er þó þakklátur fyrir
það í dag. Ég held að maður væri nú
lítilfjörlegur án tónlistarinnar.“
asgeir@dv.is
Ákveðið hefur verið að fella
niður tvær gestasýningar sem
til stóð að sýna í Þjóðleikhús-
inu í vetur. Annars vegar Creat-
ure, látbragðssýningu Kristjáns
Ingimarssonar, og hins vegar
Mysteries of Love 2, nýja dans-
sýningu Ernu Ómarsdóttur.
Ástæðan er hrun krónunnar.
Í tilkynningu frá Þjóðleikhús-
inu segir að í efnahagsþreng-
ingum undanfarinna vikna sé
það hrun krónunnar sem hafi
haft hvað mest áhrif á starfsemi
leikhússins. Leikhúsið hafi leit-
að leiða til að bregðast við stór-
auknum kostnaði við þá þætti
starfseminnar sem krefjast gjald-
eyrisviðskipta. „Einn liður í starf-
semi Þjóðleikhússins er samstarf
við erlenda listamenn, hópa og
stofnanir, enda er slíkt samstarf
talið mikilvægt til að beina nýj-
um og ferskum straumum til
landsins, og til að kynna íslenskt
leikhús erlendis. Þjóðleikhúsið
hafði gert ráð fyrir margbreyti-
legu samstarfi við erlend leikhús
og listamenn á þessu leikári, en
laun til erlendra listamanna og
aðrar greiðslur í erlendri mynt
hafa hækkað mikið, og því verð-
ur leikhúsið að skera niður í
þeim þætti starfseminnar,“ segir
meðal annars í tilkynningunni
en margir erlendir listamenn
koma að sýningum Kristjáns og
Ernu.
Einnig var um tíma útlit fyr-
ir að hætta þyrfti við sýningar á
Eternum sem norski leikstjór-
inn Reinert Mithassel stýrir og
Sædýrasafninu í leikstjórn Arth-
ur Nauzyciel frá Frakklandi. Er-
lendu samstarfsaðilarnir við
þessar sýningar komu hins veg-
ar til móts við Þjóðleikhúsið með
því að taka á sig meiri kostnað og
gera leikhúsinu þannig kleift að
sýna verkin þrátt fyrir yfirstand-
andi þrengingar í íslensku efna-
hagslífi.
KoKKagallinn
Kemur meðjólaskapið
Björgvin Halldórsson
Jólagestir hans eru
komnir til að vera.
Ljúfsár stemning
tæplega 100 manns koma að
framkvæmd tónleikanna.
Þjóðleikhúsið bregst við efnahagsþrengingunum:
tvær sýningar flautaðar af
erna Ómarsdóttir
setur ekki upp nýja danssýn-
ingu sína í Þjóðleikhúsinu í
vetur eins og ákveðið var.
Body oF LIeS
fínasta mynd en
vantar aðeins
upp á til að hún
sé frábær.