Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Side 27
föstudagur 5. desember 2008 27Helgarblað
F
orsetinn hefur enga
stjórn á henni. Hann vill
stjórna öllu og öllum í
kringum sig en hún er
eina manneskjan nálægt
honum sem hann hefur
ekkert vald yfir,“ segir Eiríkur Jóns-
son, ritstjóri Séð og heyrt, sem hefur
fylgst náið með Dorrit allt frá því hún
fór að sjást við hlið Ólafs Ragnars á
meðan hann syrgði enn eiginkonu
sína, Guðrúnu Katrúnu Þorbergs-
dóttur.
Guðrún Katrín var þjóðinni
harmdauði eftir að hún laut í lægra
haldi fyrir bráðahvítblæði í október
árið 1998. Fólk tók því þó almennt
mjög vel þegar forsetinn fór æ oftar
að sjást með glaðlega og glæsilega
huldukonu upp á arminn og þjóðin
veitti forseta sínum fúslega tilfinn-
ingalegt svigrúm, sem hann bað um
í sjónvarpsviðtali, til þess að fá að
þróa samband sitt við hina dular-
fullu Dorrit Moussaieff. Síðan þá hef-
ur mikið vatn runnið til sjávar. Kæru-
stuparið á Bessastöðum er gengið í
hjónaband og með töfrum sínum og
útgeislun stelur Dorrit ítrekað sen-
unni frá eiginmanninum.
„Dorrit storkar forsetanum og
embættinu en aldrei þjóðinni,“ seg-
ir Eiríkur og bætir við að forsetinn
sé að verða aukaatriði. „Hún Dorrit
er svolítið eins og Hillary. Ef þjóðin
ætti að gera upp á milli þeirra hjóna
myndi hún velja Dorrit. Dorrit er
ólíkt forsetanum hænd að fólki og
það er sama hvar hún kemur. Alltaf
rennur hún inn í mannhafið á með-
an forsetinn forðast það. Það er al-
veg sama hvað hún gerir, hún er allt-
af með þjóðina á sínu bandi. Jafnvel
þótt hún kunni lítið í íslensku og
bulli eitthvað fer þjóðin bara að tala
eins og Dorrit,“ segir Eiríkur og vís-
ar til þess að frasinn „stórasta land
í heimi“ var á allra vörum eftir að
Dorrit lét þessi orð falla í sigurvímu
í beinni útsendingu frá Ólympíuleik-
unum í Peking í haust.
Einstök manneskja
Fjölmiðlafólk hefur tekið Dorrit
fagnandi enda hefur hún með uppá-
tækjum sínum verið endalaus upp-
spretta skemmtilegra frétta. Tíma-
ritið Nýtt Líf valdi Dorrit Konu ársins
2006. Lára Björg Björnsdóttir var þá
blaðakona á Nýju Lífi og tók viðtal
við Dorrit af þessu tilefni: „Þegar ég
hitti Dorrit fékk ég strax á tilfinning-
una að ég væri að tala við einstaka
manneskju,“ segir Lára.
„Konu eins og hana hittir mað-
ur ekki á hverjum degi en Dorrit er
einstaklega óeigingjörn manneskja
sem lætur sig alla hluti varða. Það er
alveg sama hvert málefnið er,“ seg-
ir Lára og bætir við að það fólk sem
leyfir sér að ranghvolfa augunum
yfir henni vegna mistaka hennar og
klaufaskapar myndi fljótt skipta um
skoðun ef það fengi að hitta hana.
„Hún er einlæg, samkvæm sjálfri sér
og meinar hvert orð sem hún segir.“
Ljósmyndarinn Gunnar Þór Nil-
sen heimsótti Dorrit á glæsilegt
heimili hennar í London þegar hann
myndaði hana fyrir Nýtt Líf árið 2006.
„Hún var bara hinn fullkomni gest-
gjafi. Hún var kurteis, mannblend-
in og með einstaklega þægilega nær-
veru. Þegar tökunni lauk gerði Dorrit
sér svo lítið fyrir og skutlaði mér nið-
ur í bæ. Henni fannst alveg ómögu-
legt að senda mig með leigubíl,“ segir
Gunnar þegar hann rifjar upp kynni
sín af forsetafrúnni á heimavelli.
Tárið
Hafi einhver efast um tilfinningar
Dorritar í garð forsetans gufuðu þær
upp þegar forsetinn féll af hestbaki
og axlarbrotnaði. Þá felldi Dorrit
sögufrægt tár sem Gunnar V. Andrés-
son, þá ljósmyndari DV, festi á filmu.
„Ég frétti af því að til stæði að
kynna Dorrit fyrir íslenska hestinum
og dreif mig því á áfangastað. Þegar
ég mætti galvaskur á staðinn var mér
boðið með í reiðtúrinn,“ segir Gunn-
ar um fyrstu kynni sín af Dorrit. Hann
segir Dorrit greinlega þrautþjálfaða í
að umgangast hesta og að hún hafi
setið vel.
„ Þetta var bjartur en kaldur dag-
ur og var ferðinni heitið niður að
Rangá. Eftir aðeins tuttugu mínútna
reiðtúr verður Ólafur fyrir því óhappi
að detta af baki þegar hesturinn
hnaut með hann. Það var öllum illa
brugðið og ekki síst henni.“
Aðeins viku fyrir þennan atburð
var forsetinn staddur í opinberri
heimsókn á Austurlandi og var þar
spurður hvort hann ætti vinkonu
af erlendum toga. Forsetinn viður-
kenndi að hann ætti vinkonu en bað
þjóðina um tilfinningalegt svigrúm.
Gunnar dreif sig austur á Vopnafjörð
í þeim tilgangi að reyna að fá að vita
meira um þessa dularfullu vinkonu.
„Forsetinn sagði mér nokkurn veg-
inn það sama og fram hafði kom-
ið í fjölmiðlum en lofaði mér því að
ég myndi eflaust fljótlega fá að hitta
hana. Ég var því ekki lengi að láta sjá
mig á Leirubakkanum er ég frétti af
hestaferðinni góðu. „Á þessum tíma
var búið að upplýsa nafnið á henni
og taka viðtal við fyrrverandi mann-
inn hennar sem taldi það af og frá
að hún myndi giftast einhverjum ís-
lenskum sveitamanni.“
Það má því segja að þetta hafi ver-
ið fyrstu alvöru kynni Íslensku þjóð-
arinnar og myndir Gunnars af slys-
stað sýndu svo ekki varð um villst að
hún bar heitar tilfinningar til Ólafs
Ragnars.
Ólafur og Dorrit hafa bæði tekið
harkalegar byltur á þeim tíma sem
samband þeirra hefur staðið. Hún
var góðu heilli við hlið Ólafs þegar
hann kastaðist af hestbaki en forset-
inn var því miður hvergi nærri þeg-
ar Dorrit datt á skíðum í Aspen fyrir
nokkrum misserum og stórslasaðist.
Dorrit lær- og handleggsbrotnaði og
forsetinn hraðaði sér frá Washington
til þess að vera hjá henni á sjúkra-
beðinun. „Þetta var mjög slæmt slys.
Sjúkraliðarnir sem sóttu hana upp
í fjallið sögðu að hún hefði varla
lifað þetta af hefði hún ekki verið
með hjálm. Höggið var svo mikið að
hjálmurinn klofnaði,“ sagði Ólafur
Ragnar um slysið í Mannlífsviðtali í
upphafi árs.
Erfiður unglingur
Dorrit Moussaieff er fædd í Jerúsal-
em í janúar árið 1950 og þar bjó hún
til rúmlega tíu ára aldurs. Þá ákváðu
foreldrar hennar þau Alisa og Shlomo
Moussaieff að yfirgefa heimaborg
sína vegna ófriðar og átaka sem þar
ríktu. Seint á sjöunda áratugnum var
fjölskyldan búin að koma sér vel fyrir
í London og hefur búið þar allar göt-
ur síðan.
Dorrit sagði frá því í viðtali við
tímaritið Hello fyrir nokkrum árum
að hún hafi ekki reynst foreldrum
sínum auðveldur unglingur. Því til
staðfestingar segist hún til dæmis
hafa flust að heiman eftir ágreining
einn við foreldra sína um útivista-
tíma. Einnig segir Dorrit í viðtalinu
að henni hafi legið mikið á að verða
fullorðin foreldrum hennar til lít-
illar gleði. Dorrit hélt áfam að snið-
ganga skoðanir foreldra sinna þegar
hún stakk af með ungum hönnuði að
nafni Neil Zarach í þeim tilgangi að
giftast honum en tveimur árum áður,
þá aðeins sextán ára, fluttist hún inn
til hans.
Ótryggur eiginmaður
Dorrit gat ekki lengur beygt sig undir
strangar reglur móður sinnar í Lond-
on. Hún vildi sletta úr klaufunum
og aðeins átján ára lét hún verða að
því að giftast Neil. Foreldrar Dorrit-
ar lásu um brúðkaupið í breska dag-
blaðinu Daily Mail, en Dorrit vildi
breskt vegabréf þar sem ísraelskt
vegabréf hennar var útrunnið að
því er fram kemur í viðtali hennar
við Haaretz. Þrátt fyrir að vera opin
manneskja viðurkenndi Dorrit í við-
tali við blaðið að erfitt væri fyrir sig að
mynda ástarsambönd. Þennan varn-
armúr tókst Ólafi Ragnari þó að rjúfa
en Dorrit hafði lögnu áður brennt sig
á ótryggð fyrrverandi eiginmanns
síns. Þess sama og taldi útilokað að
íslenskur sveitamaður myndi vinna
hjarta hennar. „Ég legg mikið á mig
í samböndum. Mér hefur aldrei dott-
ið í hug að halda framhjá ástmönn-
um mínum. Af hverju ætti ég að vilja
það? Ef þú ætlar þér að vera ótrúr,
ekki giftast. Þegar ég uppgötvaði að
Zarak hafði haldið framhjá mér með
ritaranum sínum, yfirgaf ég hann,“
játar Dorrit. Hún giftist ekki aftur í
þrjátíu ár eftir þá raun.
Dorrit hefur oftar en ekki talað um
stormasamt samband föðurs síns og
afa en minnist þess þó í viðtali við
Haaretz árið 2004 að afi hennar hafi
ávallt reynst henni vel á hennar yngri
árum í Jerúsalem. „Hann keypti gjaf-
ir handa mér og leyfði mér að kaupa
sælgæti. Ég hafði það mjög gott þar.
Þau voru á meðal þeirra fyrstu í Jer-
úsalem til að eignast ísskáp og bíl. Þá
var alltaf heitur matur á boðstólum.“
Unnið fyrir Genghis Khan
Ríkidæmi Moussaieff-fjölskyld-
unnar er vel þekkt. Árið 2006 voru
eignir hennar metnar á 120 millj-
ónir punda, eða ríflega 25 milljarða
króna á núverandi gengi. Fjölskyld-
an kemst iðulega á blað yfir ríkasta
fólk Bretlands þó að hún eigi langt í
land með að ná toppnum í þeim efn-
um. Dorrit hefur sjálf efnast gríðar-
lega í athafnalífinu og skartgripasölu
í gegnum tíðina. Og eitt sinn var hún
spurð að því hvort sú staðreynd að
hún væri umtalsvert ríkari en eigin-
maður sinn truflaði hana eða Ólaf
Ragnar. „Hann er síður en svo fá-
tækur. Hann hefur sína atvinnu ekki
satt? Ég keypti handa honum erma-
hnappa í jólagjöf, en það leist hon-
um ekki á. Hann vildi frekar bækur.
Þar liggur áhugi hans og fyrir hann
þarf ekki mikinn pening.“
Shlomo Moussaeiff, faðir Dor-
ritar, er gríðarlega vinsæll eðalsk-
artgripasali í London meðal ríkra,
frægra og aðalborinna. Hann hefur
þénað feikilega á skartgripasölu en
sem dæmi má nefna herma heimild-
ir að meðalverðið á hálsmeni, í auð-
mannsverslun hans í Mayfair-hverfi
Lundúna, sé ein milljón dollara.
Skartgripasala er fjölskyldu Dorritar
í blóð borin en Moussaieff-fjölskyld-
an er hluti af stóru ættarveldi Buk-
haran-gyðinga sem hafa höndlað
með demanta í gegnum tíðina og er
samkvæmt þjóðsögum fjölskyldunn-
ar eignaður heiðurinn af því að hafa
ofið skikkju Genghis Khan.
Ást við aðra sýn
Dorrit hitti Ólaf Ragnar fyrst í há-
degisverðarboði hjá vinkonu sinni í
London. Þar spjölluðu þau um Ísland
og Ólafur hvatti hana, sem blaða-
mann, til þess að skrifa um land-
ið og tókst með frásögnum sínum
að kveikja áhuga hennar á landi og
þjóð. Ekki vildi Dorrit meina að um
ást við fyrstu sýn hefði verið að ræða
hjá henni og Ólafi en sagði í viðtali
við Morgunblaðið að líklega mætti í
þessu sambandi tala um ást við aðra
sýn en þau hittust næst hálfu ári síð-
ar á tónleikum og lögðu þá grunninn
að góðum kunningsskap sem þróað-
ist út í ástarsamband.
Dorrit giftist loks Ólafi 14. maí
2003 á sextugasta afmælisdegi Ól-
afs og kom brúðkaupið öllum að
óvörum en forsetinn hafði gert lítið
úr öllum brúðkaupsplönum í sjón-
varpsviðtali sama dag. Þau voru gef-
in saman af sýslumanninum í Hafn-
arfirði í Bessastaðastofu. Dorrit kom
fram í sjónvarpsviðtali að brúðkaup-
inu loknu og byrjaði á að ávarpa
þjóðina á sjálfu móðurmálinu. Þarna
var ekki aftur snúið. Íslenska þjóðin
var heilluð af þessari nýju forseta-
frú. Árið 2006 gerðist forsetafrúin ís-
lenskur ríkisborgari og var afar stolt
af. Dorrit ekki fyrsta íslenska for-
setafrúin af erlendu bergi brotin en
Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Ís-
lands, átti danska konu.
Lesblind, ekki heimsk
Dorrit sótti marga mismunandi
skóla í Jerúsalem sem ung stúlka þar
sem hún átti erfitt uppdráttar vegna
lesblindu sinnar. „Í fyrstu héldu þeir
að eitthvað væri að augunum í mér,
þannig að faðir minn fór með mig
til fjölmargra lækna,“ minnist Dor-
rit í viðtali við Haaretz. Faðir hennar
var líka lesblindur og gat því vel skil-
ið þá erfiðleika sem dóttir hans stóð
frammi fyrir. „Þegar ég var sögð vera
heimsk í skólanum hughreysti fað-
ir minn mig alltaf. Hann sagði mig
ekki vera heimska, heldur veika. Enn
þann dag í dag get ég ekki lesið hebr-
esku,“ segir Dorrit í viðtali við ísra-
elska blaðið. Á endanum fékk Dor-
rit einkakennslu, en viðurkennir að
hafa eytt megninu af æsku sinni í
skartgripaverslun fjölskyldunnar.
„Maður þarf hvorki að kunna að lesa
né skrifa til að selja skartgripi. Maður
þarf bara að kunna að selja.“
Pabbastelpan Dorrit
Dorrit hefur játað það opinberlega
að vera mikil pabbastelpa. Hún segir
samband sitt við föður sinn vera afar
hlýtt og sterkt. „Ef hann hefði sett
sig upp á móti því að ég giftist Ólafi,
hefði ég ekki gifst honum,“ minnist
Dorrit í viðtali Haaretz. Hún segir
loftið hafa verið lævi blandið þegar
faðir hennar og Ólafur hittust í fyrsta
sinn. Fyrstu tíu mínúturnar segir hún
föður sinn hafa gjörsamlega hunsað
Ólaf. Forsetinn náði loks að brjóta ís-
inn þegar hann varpaði fram spurn-
ingum um Mósebækurnar fimm, og
eftir það átti Ólafur óskipta athygli
Shlomo Moussaieff.
Aldrei aftur einmana
Aðeins fjórtán ára hóf Dorrit störf
við skartgripaverslun foreldra sinna
á Hilton Park Lane í London. „Ég var
afar einmana. Átti enga vini. Þetta
var erfiður tími fyrir mig og það eina
sem ég gerði var að selja skartgripi,
enda er það mér í blóð borið.“
Dorrit þurfti aldrei aftur að upp-
lifa þennan einmanaleika æsku
sinnar eftir að hjónabandi henn-
ar við Zarak lauk. Hún hafði eignast
ótal vini víðs vegar um heiminn og
árið 2001 hreppti hún þriðja sætið í
úttekt tímaritsins Harpers yfir „Best
tengda fólkið í Bretlandi“.
Líf hennar á hraðbraut ríkidæm-
is og kokteilboða þýddi að hún var
ávallt í miklum stjörnufans. Ein af
hennar bestu vinkonum er Shakira
Caine, eiginkona Hollywood-leik-
arans Michaels Caine. Þá telur vin-
alisti hennar líka stórstjörnur og
sjarmatröll á borð við Sean Connery
og fleiri.
Aldrei aftur Ísrael
Dorrit hefur gefið það út að hún vilji
Kýs
„sveita-
mann“
fremur
en flagara
Framhald á
næstu síðu
Forsetahjónin
forsetahjónin veifa
íslensku þjóðinni.
Vinamörg dorrit er vinamörg
kona, hér er hún með Jóni
Ásgeiri á góðri stundu.