Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.2008, Síða 44
föstudagur 5. desember 200844 Á ferðinni
Stórbrotið landSlag dimmuborgir, austan
við mývatn, er einn fallegasti staður landins þar sem öfl
náttúrunnar fá að njóta sín. dimmuborgir mynduðust
fyrir um 2000 árum þegar hraun rann úr eldgosi í Lúd-
entsborgum og Þrengslaborgum. borgirnar liggja í dal
sem fylltist smám saman af hrauni og við storknunina
mynduðust hraunstólpar sem fólk getur gengið um í dag.
storkið hraun myndaði eins konar þak sem á endanum
brast og eftir stendur svæðið sem flestir þekkja.
umsjón: ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
Það þarf ekki að fara til útlanda til að fá jólastemninguna beint í æð. Við Íslendingar eigum eina mestu nátt-
úruperlu Evrópu sem býður upp á einstaka atburði. Mývatnsstofa í Mývatnssveit býður upp á glæsilega að-
ventudagskrá fram að jólum þar sem gestum gefst færi á að upplifa hinn sanna íslenska jólaanda.
töfraland jólanna
„Við leggjum mesta áherslu á hand-
unna vöru og norðlenskan mat og
viljum að fólk fái að upplifa Mý-
vatnssveitina eins og hún gerist best
enda algjör náttúruperla á þessum
tíma,“ segir Þorgeir Gunnarsson,
forstöðumaður Mývatnsstofu, en
hún stendur nú fyrir glæsilegri að-
ventudagskrá í Mývatnssveit sem
hófst í lok nóvember og stendur
fram til jóla.
Jólasveinarnir í Dimmuborg-
um
Dagskráin er mjög fjölbreytt og er
meðal annars í boði jólahlaðborð,
jólamarkaðir, tónleikar, kaffihús
svo ekki sé talað um vinsælu jóla-
sveinana í Dimmuborgum,“ segir
Þorgeir. Jólasveinarnir í Dimmu-
borgum eru orðnir vel þekktir með-
al Íslendinga en þeir munu vera í
Dimmuborgum hvern einasta dag
fram að jólum til að heilsa upp á
gesti og gangandi. „Jólasveinarnir
hérna eru ekta íslenskir jólasveinar
og indæliskarlar,“ segir Þorgeir.
Mývatnsstofa rekur einnig póst-
hús jólasveinanna og geta börn
hvaðanæva af landinu sent þeim
póst. „Jólasveinarnir eru yfirleitt
önnun kafnir við að svara börnun-
um og er það yfirleitt Stúfur sem sér
um það. Hinir eru dáldið latir við
það,“ segir Þorgeir.
Heimagerð matvara
Aðventudagskráin er verkefni sem
búið er að vera í nokkur ár og er
hún sú stærsta í ár hingað til að
sögn Þorgeirs. Aðsóknin hefur auk-
ist jafnt og þétt og kemur fólk úr
öllum áttum í heimsókn. Þó helst
af Austfjörðum og af Norðurland-
inu. Það er þó engin ástæða fyrir
Sunnlendinga að sniðganga stað-
inn því alls kyns tilboð eru í gangi
á hótelunum í kring og því tilvalið
að gera sér ferð og skoða þennan
gullfallega stað. Og að fá að kynn-
ast handbragði og matargerð Mý-
vetninga.
„Það er gríðaleg áhersla á mat
og munað héðan úr sveitinni og er
ýmislegt á boðstólum. Það eru aðil-
ar sem búa til fetaost og hangikjöt
og svo má nefna hverarúgbrauðið,
geitakjöt og hreindýraafurðir. Að
auki skartgripir, trémunir og aðrar
jólavörur,“ segir Þorgeir.
Boðið er upp á hádegisverðar-
hlaðborð er í Vogafjósi allar helgar
og fjölskyldujólahlaðborð í Selhót-
eli. Á Fuglasafninu og Kaffi Kviku
er svo boðið upp á rjúkandi heitar
vöfflur og heitt súkkulaði.
„Á laugardaginn munu jóla-
sveinarnir fara í sitt árlega jóla-
bað í Jarðböðunum. Þeir fara bara
einu sinni á ári og það er sérstak-
lega gaman að fylgjast með þeim.
Þeir baða sig nefnilega alltaf í und-
irfötunum,“ segir Þorgeir, en hann
segir jafnframt að sumir þeirra séu
vatnshræddir og vilji bara einfald-
lega ekki fara út í. Það verður því
söguleg sjón að sjá hvernig þeir
fara að þessu. Jólasveinarnir mæta
klukkan fimm og er öllum velkom-
ið að baða sig með þeim.
Í Mývatnsstofu verður hand-
verkshópurinn Dyngjukonur með
laufabrauðsdag á laugardag, þar
sem þær leiðbeina fólki við laufa-
brauðsgerðina með gamla hand-
bragðinu. Fólki gefst þá kostur á að
skera út og læra laufabrauðsgerð.
Aðventustund verður í Reykjahlíð-
arkirkju á sunnudaginn auk hádeg-
isverðar- og fjölskylduhlaðborðs.
„Það er ótrúlega mikil stemning
þarna í náttúrunni og fegurðin er
mikil.“
Nánari upplýsingar um dagskrá
aðventunnar og gististaði í sveitinni
má nálgast á vefnum visitmyvatn.is
og í Mývatnsstofu í síma 4644390.
Stekkjastaur jólasveinarnir í
dimmuborgum eru alíslenskir
og afar indælir.
HeimiliSfang jólaSveinanna
jólasveinarnir í dimmuborgum
660 mývatn