Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2008, Page 40
föstudagur 12. desember 200840 Helgarblað
Selfyssingurinn og athafnamaður-inn Einar Bárðarson hefur verið þjóðþekktur á Íslandi síðustu ár. Hann gat sér fyrst orð sem umboðs-maður hljómsveitarinnar Skíta- mórals fyrir um áratug auk þess að
semja nokkra smelli fyrir drengina sem leiddi
til þess að „Skímó“ varð ein vinsælasta hljóm-
sveit landsins á skömmum tíma. Einar var höf-
undur framlags Íslands í Eurovisionkeppninni
árið 2001, lagsins Angel, en uppskeran ytra var
býsna rýr. Tenórinn vinsæli Garðar Thór Cort-
es hefur aftur á móti notið góðrar uppskeru
af samvinnu sinni við Einar á undanförnum
árum, selt geisladiska í bílförmum á alþjóða-
vísu og komið fram bæði á risastórum knatt-
spyrnuleikvöngum og í tónlistarhöllum og
sungið fyrir kóngafólk og þjóðarleiðtoga sam-
hliða söngnum fyrir sauðsvartan almúgann.
Nylon-flokkurinn var svo kominn á ágætisflug
í Bretlandi þótt minna hafi farið fyrir afrekum
hans upp á síðkastið.
En nú eru breyttir tímar. Einar er kominn
heim í kreppuna á Íslandi, búinn að kaupa
sér hús í Reykjanesbæ, hættur með Believer-
útgáfufyrirtækið úti í Bretlandi, kominn í aft-
ursætið hjá viðburðafyrirtækinu Concert hér
heima og er farinn að vinna hlutastarf hjá rík-
inu. Nánar tiltekið sem aðstoðarmaður sjálf-
stæðisþingmannsins Kjartans Ólafssonar.
„Kjartan nálgaðist mig með þetta í byrjun
október og ég held að það hafi fyrst og fremst
vakað fyrir honum að ná betri tengingu við
Reykjanesið. Suðurlandskjördæmið er mjög
stórt, nær alveg frá Garðskaga austur á Höfn í
Hornafirði sem er nánast yfir landið þvert og
endilangt. Við Kjartan erum báðir Selfyssingar
og ég þekki hann að góðu einu. Þar fyrir utan
erum við skyldir, þótt við séum ekki beint ná-
skyldir, þannig að mér leist ágætlega á þetta.
Þetta var líka þegar bankastofnanir og að því
er virtist allt samfélagið var að hrynja þannig
að ég hugsaði með mér: Ætli Alþingi verði ekki
með þeim síðustu sem fara í gjaldþrot þannig
að það er kannski ágætt að vera með smá vinnu
þar,“ segir Einar hlæjandi.
Hann bætir við að hann sé líka meðvitaðri
nú um þjóðfélagsumræðuna heldur en þegar
hann var með annan fótinn í útlöndum. „Mað-
ur er orðinn fjölskyldumaður og lætur sig sam-
félagið meira varða heldur en þegar maður var
lítill tittur með stóra drauma.“
Viðbrigði að vinna fyrir annan
Einar segir aðstoðarmannastarfið vera afar
fjölbreytt. Hann þurfi að vera Kjartani innan
handar í öllu mögulegu, ekki síst þessar vik-
urnar þegar þingfundir eru stundum til að
verða klukkan fimm á morgnana. „Það eru alls
kyns samfélagsleg vandamál sem koma upp í
svona ástandi eins og við erum í. Þótt fram-
varðasveitin sé að fókusera á stóru málin er
náttúrlega fullt af litlum málum sem þarf að
standa vörð um, til dæmis heilsugæslu og lág-
marksþjónustu í kjördæminu, þótt menn hafi
skilning á því að þörf er á að beita niðurskurð-
arhnífnum.“
Einari finnst það svolítil viðbrigði að vera
farinn að vinna fyrir einhvern annan. „Þetta
er ákveðinn agi sem ég þarf að temja mér. Ekki
það að ég sé eitthvað sérstaklega erfiður í taumi
en maður þarf bara að venja sig við að vinna
að verkefnum sem hafa fleiri stefnur en manns
eigin.“
Starfshlutfall í aðstoðarmannastarfinu er
einungis þrjátíu og þrjú prósent. Einar hefur
því fleiri járn í eldinum til að sjá fjölskyldu sinni
farborða. Bæði er hann verkefnastjóri Víkinga-
heima í Reykjanesbæ og hann hefur verið feng-
inn til að aðstoða við uppbyggingu Hljóma-
hallarinnar þar í bæ. Þá stendur hann fyrir
styrktartónleikum krabbameinssjúkra barna í
Háskólabíói í lok desember, tíunda árið í röð,
en það er vitanlega í sjálfboðavinnu eins og
ávallt hefur verið. Að venju koma þar fram vin-
sælustu tónlistarmenn landsins, til að mynda
Lay Low, Sálin, Sprengjuhöllin, Bubbi Morth-
ens og Páll Óskar.
Vantaði víkingasafn
Í aðalhlutverki í Víkingaheimum, sem nánar til-
tekið er á Njarðvíkurfitjum, er skipið Íslendingur
sem Gunnar Marel Eggertsson smíðaði og sigldi
á til Ameríku í tilefni þúsund ára afmælis landa-
funda Leifs heppna árið 2000. Skipið er nákvæm
eftirlíking Gaukstaðaskipsins, sem fannst árið
1882 við Gauksstaði í Sandefjord og var talið um
þúsund ára gamalt.
„Ég sá skipið alltaf liggja við Stekkjakot í
Njarðvík en þekkti ekki alveg forsöguna þar sem
ég hef verið mikið á ferðalögum,“ lýsir Einar. „En
ég hugsaði að mér hefði alltaf fundist vanta safn
um víkingaarfleifðina okkar, þó ekki endilega
á safnaforsendum heldur þess vegna einhvers
konar fjölskyldugarð. Mér datt því í hug hvort
þetta væri ekki bara mitt næsta verkefni, finna
einhverja fjárfesta með mér til að kaupa bátinn
og gera eitthvað með hann og víkingaarfleifðina.
Ég nálgaðist því Árna Sigfússon [bæjarstjóra í
Reykjanesbæ] og félaga til að spyrja hvort menn
hefðu hugsanlega áhuga á þessu og þá kom í ljós
að þeir voru komnir langleiðina með þessa hug-
mynd sem ég var með í kollinum. Eitt leiddi af
öðru og svo var ég bara beðinn um að koma um
borð og taka þátt í þessu.“
Bygging sýningarhúss Víkingaheima er að
mestu lokið og er verið að byrja að setja þar upp
sýningu sem opnuð verður næsta vor. Á henni
verða meðal annars hlutir og munir sem fengnir
hafa verið frá Smithsonian-stofnuninni í Wash-
ington og voru til sýnis á víkingasýningu sem
þar var árið 2000. Hljómahöllin er styttra á veg
Stórir strákar „en þegar menn eru með stórar
hugmyndir verða þeir bara að taka því eins og
stórir strákar þegar niðurstaðan er „tap“.
MYND SigtrYggur Ari
„Ætli Alþingi verði ekki
með þeim síðustu sem fara í
gjaldþrot þannig að það er
kannski ágætt að vera
með smá vinnu þar.“