Dagblaðið Vísir - DV - 12.12.2008, Blaðsíða 26
föstudagur 12. desember 200826 Fókus
u m h e l g i n a
„Ég var alltaf að fara með vini mín-
um á tónleika og var alltaf þessi plús
einn fyrir aftan nafnið hans þannig
að þetta festist bara við mig,“ seg-
ir Árni Rúnar Hlöðversson oftar en
ekki kallaður Árni plúseinn. Árni er
aðalsprauta og einn af stofnendum
sveitarinnar FM Belfast sem á eina
af áhugaverðustu plötum ársins,
How to make friends. Platan hefur
fengið frábæra dóma víðs vegar og
vann nýlega til verðlauna á tónlist-
arverðlaun Kraums sem voru veitt í
fyrsta skipti.
Kjarni sveitarinnar eru Árni og
kærasta hans Lóa Hlín Hjálmtýs-
dóttir, Árni Vilhjálmsson og Örvar
Þóreyjarson Smárason. „Reyndar er
meðlimafjöldi sveitarinnar á miklu
reiki og ég get ekki einu sinni nefnt
þá alla á nafn,“ en Árni segir að fólk
komi mikið upp á svið þegar sveitin
er að spila á tónleikum og taki þátt
í gleðinni. „Mest eru þetta þó bara
vinir okkar sem eru með okkur á
sviði og sveifla kúabjöllum og alls-
kyns dóti. Eða bara dansa,“ en það
eru fáar sveitir sem leggja jafnmikið
upp úr gleðinni og FM Belfast. „Hún
er í raun markmið hjá okkur,“ segir
Árni og bendir á að það sé jú gaman
að hafa gaman.
Gleðileg jól
Árni segir að drög að sveitinni FM
Belfast hafi orðið til í kringum jól-
in 2005. „Þá gerðum ég og Lóa lag
sem við gáfum í jólagjöf,“ segir Árni
en það var ábreiða á laginu Pump
up the jam með hljómsveitinni
Technotronic. Lagið er að finna á
plötunni og í upprunalegri mynd.
„Sú útgáfa sem er á plötunni er sú
eina og óbreytt frá því að ég og Lóa
tókum það upp fyrst.“
Árni segir hann og Lóu hafa ver-
ið búin að vera grínast með nafnið
FM Belfast fyrir annað verkefni. En
þegar lagið varð svo til ákváðu þau
að nota nafnið. Árið 2006 spiluðu
Árni og Lóa svo á tónleikum í Fær-
eyjum sem voru fyrstu tónleikar FM
Belfast. „Í framhaldi af því spiluðum
við á Airwaves og þá bættust Árni Vil
og Örvar við sveitina.“
Leiðinlegt á blokkflautu
Sjálfur hóf Árni, sem er 26 ára, tón-
listarferill sinni í herbergi í Graf-
arvogi þar sem hann er uppalinn.
„Ég fór að fikta við þetta þegar ég
var svona 16 ára,“ en það var mik-
ill áhugi Árna á rafrænni tónlist og
tölvum almennt sem að komu hon-
um af stað. „Ég fékk forrit sem hét
Impulse Tracker sem er gamaldags
tracker-forrit. Síðan varð ég mér út
um annan hugbúnað og fiktaði mig
áfram.“
Árni er sjálflærður í tónlistinni þó
hann hafi átt stutt stopp í klassísku
tónlistarnámi. „Ég lærði einu sinni á
blokkflautu. Það var leiðinlegt,“ seg-
ir Árni einlægur um þá reynslu sína.
Árni hafi unnið að hinum ýmsu
verkefnum áður en á FM Belfast fór
á flug og þá undir nafninu Árni plús-
einn. „Ég var að gera ýmislegt hér og
þar og hjálpa hinum og þessum. Ég
var til dæmis að vinna með Hair-
doctor og er enn og svo með Motion
Boys til að byrja með,“ en Árni samdi
lögin Hold me closer to your heart
og Waiting to happen ásamt Birgi Ís-
leifi sem komu sveitinni á kortið.
Óvæntar móttökur
Árni segir að móttökurnar sem FM
Belfast hefur fengið bæði á tón-
leikum og í plötusölu hafi komið
skemmtilega á óvart. „Við höfum
fengið góðan slatta af fólki á tón-
leika og vorum að vonast til að selja
kannski fyrsta upplagið af plötunni
upplestur á gljúfrasteini
Lesið verður úr nýjum bókum í stofunni á gljúfrasteini á sunnudaginn,
líkt og fyrstu tvo sunnudaga aðventunnar. Þá munu þau Sjón, Guðrún
Eva MínErvudóttir, ÁrMann jakobSSon og GuðMundur andri thorSSon
lesa úr verkum sínum í stofu skáldsins. aðgangur er ókeypis og verður
tekið hlýlega á móti gestum, eins og segir á vefsíðu gljúfrasteins.
upplestrarnir hefjast stundvíslega klukkan 16.
Kvikmyndin Four Christmases með
stjórstjörnunum Vince Vaughn og
Reese Witherspoon hefur allt að
bera til þess að vera frábær gam-
an „jólamynd“. Eina vandamálið er
að það er ekkert jólalegt við þessa
mynd.
Ég hélt að ég væri að fara að sjá
rómantíska gaman- og jólamynd en
komst fljótlega að því að ég væri að
horfa á aulagrínmynd í anda Will
Ferrell-myndanna. Ekki misskilja
mig, ég hef gaman af aulagríni, en
það er ekki það sem ég hélt að ég
væri að borga fyrir.
Myndin fjallar um parið Kate og
Brad sem á yfirborðinu virðist vera
ástfangið upp fyrir haus og sam-
stiga í öllu því sem þau vilja út úr
lífinu. Bæði eru þau skilnaðarbörn
og hafa lítinn áhuga á að stofna sína
eigin fjölskyldu - þau væru búin að
læra það að ekkert gott kemur út
úr því að stofna saman fjölskyldu.
Þau hafa lítinn áhuga á að vera ná-
lægt fjölskyldum sínum yfir jólahá-
tíðina og búa til afsakanir ár eftir ár
hvers vegna þau geti ekki heimsótt
fjölskylduna. Þetta árið ætla þau að
njóta sín á Fiji-eyjum en vegna óvið-
ráðanlegs veðurs komast þau ekki
neitt í heilan sólarhring. Á þess-
um sólarhring eru þau þvinguð til
að heimsækja allar fjölskyldurnar á
jóladag.
Reese og Vince eru afar ótrú-
verðugt par. Fréttir af slæmu sam-
bandi þeirra á meðan tökur stóðu
yfir, settu sitt strik í reikninginn, en
kemístrían á milli þeirra álíka mikil
og á milli skjaldböku og drekaflugu.
Reese nýtur sín ekki í þessu hlut-
verki og það sést langar leiðir.
Myndin er stútfull af frægum
aukaleikurum sem algjörlega bjarga
myndinni en á köflum minnir hún
aðeins of mikið á Meet the Fockers
þar sem foreldranir eru svakalega
flippaðir og ruglaðir. Nokkrir leikar-
arnir fara samt algjörlega á kostum.
Jon Favreau fer með hlutverk bróð-
ur Brads og skilar sínu. Gaman að
sjá hann og Vince Vaughn saman
á ný. Einnig sýnir Sissy Spacek frá-
bæra takta sem móðir Brads.
Four Christmases kafar aldrei
dýpra en rétt á yfirborðinu. Brand-
misheppnuð „jólamynd“
garðar á Kjar-
valsstöðum
Einn dáðasti tenórsöngvari Íslands,
Garðar Cortes, heldur tvenna há-
degistónleika á Kjarvalsstöðum á
mánudag og þriðjudag næstkom-
andi. Þar flytur hann helstu jóla-
perlur tónbókmenntanna með
píanóleikaranum Robert Sund. Á
meðal laganna sem munu hljóma
eru Happy Christmas, Mary’s Boy
Child, Rúdolf með rauða nefið, Bella
notte og Ó helga nótt. Garðar hefur
lítið sungið opinberlega í seinni tíð
en hann er skólastjóri Söngskólans í
Reykjavík og stjórnandi Óperukórs-
ins. Tónleikarnir hefjast klukkan
12.15, aðgangseyrir er 1.000 krónur
en ókeypis er fyrir eldri borgara og
námsmenn.
jóhann g.
opnar sýningu
Jóhann G. Jóhannsson opnaði
sýningu á myndverkum sínum um
síðustu helgi í vinnustofu sinni
að Hólmaslóð 4 úti á Granda.
Verkin eru 35 talsins – olíumál-
verk, vatnslitamyndir og verk
unnin með blandaðri tækni. Tólf
af þessum verkum byggjast á þrí-
hyrningsforminu sem hefur verið
Jóhanni hugleikið undanfarin ár.
Hann kallar þessar nýju tinda-
myndir Seríu 2008 / Tindar & Pýr-
amídar frá 1-12. Jóhann verður við
daglega milli klukkan 12 og 15 og
um helgar frá 14 til 17. Einnig er
hægt að mæla sér mót við hann á
öðrum tímum með því að senda
honum póst á jog@heimsnet.is
eða hringja í síma 697 6206.
Yfirborðs-
Kennd í
Kling & bang
Síðasta sýning ársins í Kling & Bang
verður opnuð á morgun, laugar-
dag, klukkan 17.00. Það er fyrsta
einkasýning Baldurs Geirs Braga-
sonar á Íslandi sem ber heitið Yf-
irborðskennd. Margræður mynd-
heimur Baldurs hverfist oftar en
ekki um sjálfan sig, að því er segir í
tilkynningu. Um leið og hann setji
fram grípandi hluti og einfaldar
myndir sem eiga sér kunnuglegar
fyrirmyndir nái vísun þeirra fyrst
og fremst til ferlis listaverksins sem
slíks. Myndmálið í verkum Baldurs
er gjarnan sótt í eitthvað tiltölulega
hversdagslegt, eins og teiknimyndir,
bíó, tölvuleiki eða myndasögur.
kvikmyndir
Four Christmases
Leikstjórn: seth gordon
Aðalhlutverk: reese Witherspoon, Vince
Vaughn, robert duvall, sissy spacek, mary
steenburgen
Ekkert jólalegt við þessa mynd
„Ég hélt að ég væri að fara að sjá
rómantíska gaman- og jólamynd. en
komst fljótlega að því að ég væri að
horfa á aulagrínmynd í anda Will
ferrell-mynda.“
Hljómsveitin FM
Belfast hefur vakið
mikla athygli fyrir
fyrstu plötu sína
How to make friends.
Platan hefur fengið
einróma lof gagn-
rýnenda og þegar
unnið til verðlauna.
Parið Árni Rúnar
Hlöðversson og Lóa
Hlín Hjálmtýsdóttir
stofnuðu sveitina
sem varð til í kring-
um jólin 2005. Þrátt
fyrir frábærar mót-
tökur ætlar sveitin
ekki að taka þátt í
Íslensku tónlistar-
verðlaunum.
Byrjaði sem
jól p KKi
FM Belfast
eru löngu byrjuð að
semja efni á næstu plötu.