Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 02.01.1909, Qupperneq 7
Yfirlit
yfir verslunarskýrslurnar 1907, með hliðsjón af fyrri árum.
i.
Skýrslurnar og tollreikningarnir.
Skýrslurnar sjálfar eru samdar eins og 1906, og sjerstök skýrsla gjörð fyrir
hverja sýslu, og þar að auki sjerstök skýrsla fyrir Reykjavík, og fjóra kaupstaði
aðra, Hafnarfjörð, ísafjörð, Akureyri og Seyðisfjörð.
Verslunarupphæðin eða verslunarmagnið hefur aldrei verið eins mikið og 1907.
Þegar þær leiðrjettingar eru gjörðar, sem nauðsynlngar eru, varð aðflutta varan
alls........................................................... 18,120 þús. kr. virði
og útflutta varan alls....................................... 12,220 — — —
Öll verslun landsmanna við önnur lönd varð 1907 ............... 30,340 þús. kr. virði
Mest viðskifti við önnur lönd voru árið 1906 og námu þá 27,614 þúsund krónum.
Verslunin 1907 er 23A miljón hærri en árið áður.
Verslunarskýrslurnar sjálfar eru að eins efni í skýrslurnar. Til þess að gjöra
þær nákvæmari, þarf að bera þær saman við tollreikningana, sem verður að álíta
alveg rjettar skýrslur, það sem þeir ná, og ennfremur þarf að draga út úr þeim upp-
hæðir, sem ekki eru landsins eign, eða sem eru tvítaldar, eins og t. d. peningar að-
og útfluttir. Þetta er gjört hjer á eftir bæði fyrir að- og útflutlar vörur.
Aðfluttar vörur 1907 eru nokkuð meiri eftir tollreikningnum, en þær eru eftir
verslunarskýrslunum. Ef öl og vinföng eru tekin fyrir sig verður munurinn á þeim
þessi 1907. Til landsins fluttust:
Tafla I.
Vörutegundir: ' Eptir tollreikn- ingum ctp1 3 c -r l-J V- 3 “• r» n 7 Mismunur Verö einingar kr. a. UpphæÖ i peningum
Ö1 pottar 424,292 408,234 16,058 42 6,744
Brennivín — 299,402 267,195 32,207 1,10 35,427
Romm,konjak,arrak,whisky — 29,376 24,267 5,109
Rauð vín og hvit borðvín — 13,127 10,223 2,904 1,65 4,811
Bitter allskonar — 454 454
öll önnur vínföng — 13,362 18,362 -s- 5,818
Við verðið á aðfluttum vínföngum á að bæta 46,982
Reikningurinn er ekki gjörður fyrir mismuninn á rommi, konjakki, bitter og
öllum öðrum vínföngum, því að hann nemur svo að segja engu. Vínandi er gjörður
að 8° brennivíni, og allar flöskur í tollreikningnum gjörðar að pottum.
a