Landshagsskýrslur fyrir Ísland - 02.01.1910, Síða 17
XI
af liundraði frá 1881 til 1908, því með því einu móti verða vörur fluttarað ár eftir
ár, að þær séu borgaðar á einhvern hátt.
2. Kornvörur. Eitt af því, sem hefir gert, að ísland verður að versla mikið,
hefir verið, að landið varð að kaupa alt korn af öðrum þjóðum. Nú á dögum er
þetta langt frá að vera svo þungt á metunum, sem það var áður. Nú er það
atriðið þyngst á metunum, að landið hefir engan iðnað, sem neinu nemur, því að
nú eru það 3. ílokks vörurnar, sem eru langmestar og kosta mest,
Kornvörur, sem fluttust til landsins, hafa verið
1904 ...................... 16.980 þús. pd. fyrir 1.745 þús. kr. eða 212 pd. á mann
1905 ...................... 17.265 — — — 1.800 — — — 213 — - —
1906 ...................... 18.576 — — — 2.032 — — — 229 — - —
1907 ...................... 17.198 — — — 2.652 — — — 208 — - —
1908 ...................... 16.148 — — — 2.201 — — — 192 — - —
Það lítur illa út, að landsmenn hafa keypt 16—37 pundum minna á mann
af kornvöru árið 1908 en gert var fjögur undanfarin ár að jafnaði. Það er fátæktar-
merki, ef það væri áreiðanlegt, að fólk hefði orðið að spara við sig brauð og fæðu,
sem gerð er úr kornmat. En þetta þarf ekki að vera svo, og eitt ár er engin veru-
leg sönnun fyrir því, að svo sje, því skýrslurnar sýna ekkerl nema það, sem aðflutt
er á árinu, en sýna ekki, hvort birgðir eru til frá fyrri árum hjá kaupmönnum,
sem minka ársaðflutninginn af því að þær eru seldar á árinu.
Ivornvörur, sem flutlust hingað, voru á mann í peningum:
1904 ..........kr. 21.81 I 1907 .......................kr. 32.14
1905 ..........— 22.36 1908 ............— 26.19
1906 ..........— 28.42
3. Munaðarvaran. Með því nafni eru hafðir í huganum áfengir drykkir,
tóbak, kaffi og sykur, tegras, kókó, súkkulaði og gosdrykkir. En undanfarin ár
hefir aldrei verið tekið nokkurt tillit til fjögra hinna síðustu vörutegunda. Kaupin
eða neyslan á fjórum fyrstu vörutegundunum hefir verið á 5rmsum tímum:
Árin Kaffi og kaffi- bætir í lOOOkr. Tóbak, vindlar o. fl. í 1000 kr. Áfengir drykkir Allsk. sykur i 1000 kr. í 1000 kr. í Alls 1000 k
1881—85 meðaltal 438 285 285 455 1463
1901—05 —527 448 477 824 2276
1906 . . . . 477 606 996 2694
1907 . . . . 591 522 643 1097 2853
1908 . . . . .... 499 517 554 997 2567
Aðflutningurinn 1908 er einnig minni á þessum vörum að verðinu til en
hann liefir verið tvö undanfarin ár.
Ef mæla skal eyðsluna eins og hún hefir verið í raun og veru, og bera
hana saman við fyrri ára eyðslu, þá verður að miða hana við það sem árlega egð-
ist á mann. Það er sýnt með eftirfarandi töflu (töflu III).