Lögmannablaðið - 01.12.2006, Blaðsíða 24
24 < LÖGMANNABLAÐIÐ – 4 / 2006
Tillaga um rammasamn
inga um gjafsóknarmál
Þá gerir nefndin á vegum ráðuneyt-
isins tillögu um að gerðir yrðu álíka
rammasamningar vegna lögfræðiþjón-
ustu í gjafsóknarmálum. Starfshópur
LMFÍ vísar til sömu raka og að ofan
greinir um rammasamninga um verj-
endastörf en bendir í þessu sambandi á
að í 70. gr. stjórnarskrár og 6. gr. MSE
felist hinn svokallaði réttur borgaranna
til aðgangs að dómstólum. Telur starfs-
hópurinn tillögur nefndarinnar um
rammasamning í gjafsóknarmálum
brjóta gegn þeim rétti.
Réttargæsla útlendinga
Nefndin leggur einnig til breytingar
á lögum um útlendinga nr. 96/2002
um það hvernig þóknun réttargæslu-
manna skuli ákveðin og af hverjum.
Starfshópur LMFÍ telur að núverandi
löggjöf um réttaraðstoð til hælisleit-
enda og útlendinga sem óska dval-
arleyfis skv. lögum um útlendinga
ganga í raun og veru of skammt og því
afar lítið svigrúm til að takmarka hana
enn frekar. Er það nánar rakið í skýrslu
starfshópsins.
Samantekt
Starfshópur LMFÍ telur að ná megi
fram sparnaði eða lækkun á sakar-
kostnaði í sakamálum með öðrum og
betri leiðum en lagðar eru til í skýrslu
nefndarinnar án þess að það bitni á
gæðum rannsókna eða réttarstöðu sak-
borninga, líkt og telja verður óumflýj-
anlegt nái tillögur nefndarinnar fram
að ganga. Án efa myndu óbreyttar til-
lögur nefndarinnar leiða til mun verri
stöðu sakborninga og má ganga svo
langt að fullyrða að sumar tillögurnar
brjóti gegn mannréttindum bæði sak-
borninga og einstaklinga sem hyggjast
leita réttar síns fyrir dómstólum lands-
ins, sbr. 70. gr. stjórnarskrár. Reyndir
lögmenn muni án efa draga sig út úr
verjendastörfum og muni það koma
niður á þeirri þjónustu sem sakborn-
ingar fá, auk þess sem viðbúið er að
þeim málum fjölgi sem að nauðsynja-
lausu fari í aðalmeðferð. Telur starfs-
hópurinn að tillögur nefndarinnar nái
fram afar takmörkuðum, ef nokkrum,
sparnaði og það sem verra er: Með til-
lögum sínum er nefndin að leggja til
brot af Íslands hálfu m.a. á c-lið 3.
mgr. 6. gr. MSE.