Lögmannablaðið - 01.10.2015, Page 14
14 LÖGMANNABLAÐIÐ TBL 03/15
UMFJÖLLUN
Aðalmálið að standa vörð um hagsmuni
lögmanna
REIMAR PÉTURSSON HRL. er nýkjörinn
formaður Lögmannafélags Íslands.
Reimar útskrifaðist úr lagadeild
Háskóla Íslands árið 1998 og fékk
málflutningsréttindi fyrir héraðsdómi
sama ár. Reimar starfaði fyrst eftir
útskrift sem fulltrúi hjá hæstaréttar
lögmönnunum Jóni Steinar Gunnlaugs
syni og Karli Axelssyni. Hann fór svo í
framhaldsnám í Columbia háskólanum
í New York 20022003 og fékk lög
mannsréttindi þar 2004. Eftir heim komu
snéri Reimar aftur til lögmanns starfa
og kláraði hæstaréttar lög manns
réttindin 2004. Árið 2005 fór hann að
starfa í fjármála geiranum en snéri sér
aftur að lög mannsstörfum eftir hrun.
Hann sinnti um hríð sér verkefnum
vegna fjárhagslegrar endurskipulagn
ingar en snéri sér aftur að hefðbundinni
lögmennsku árið 2010 þegar hann
stofnaði Lögmenn Lækjar götu ásamt
fleirum. Hann hefur starfað þar óslitið
síðan, fyrst og fremst við rekstur
dómmála á sviði fjármála og viðskipta.
Ritstjóri Lögmannablaðsins settist
niður með formanninum einn góðviðris-
dag í ágúst á skrifstofu hans í mið-
bænum. Það lá beinast við að spyrja
fyrst hvers vegna hann gaf kost á sér
til formennsku.
„Ég var formaður laganefndar LMFÍ
um skeið og vann þannig að málefnum
félagsins. Mér fannst það verkefni
áhugavert en það hefur að mörgu
leyti verið sótt að lögmannastéttinni
undanfarin ár að mínu mati og það var
ýmislegt sem því tengdist sem kom inn
á borð laganefndar. Þegar það lá fyrir
að Jónas myndi hætta var nefnt við mig
hvort ég hefði áhuga á að gefa kost
á mér til formennsku og ég ákvað að
slá til.“
Þú segir að það sé sótt að lögmanna
stéttinni. Hvað áttu við með því?
„Til dæmis mál sem varða trúnað
lögmanna og að ekki sé borin nægjanleg
virðing fyrir þeim mikilvæga þætti. Þá
eru líka dæmi þess að lögfræðingar
séu farnir að veita lögmannsþjónustu.
Ég tel það áhyggjuefni ef menn eru að
kynna sig sem lögmenn án þess að vera
það því það grefur undan stéttinni. Það
Nafn: Reimar Pétursson hrl.
Vinnustaður: Lögmenn Lækjargötu
Hve lengi hefur þú stundað
lögmennsku? 17 ár
Sérhæfing í lögmennsku: Dómsmál
Hversu lengi hefur þú setið í stjórn
LMFÍ? tæplega hálft ár
Hver eru helstu áhugamál þín?
Hlaup, skíði, veiði og lestur
Fjölskylduhagir: Giftur Björgu
Vigfúsdóttur ljósmyndara
Börn: Þrjú börn, fjögurra, sjö og
níu ára.
Viðtal við nýjan formann LMFÍ