Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 8

Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 8
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð NÝ DÖGUN www.nydogun. is • www.sorg. is • sorg@sorg. is Halldór Reynisson flytur erindi í safnaðarheimili Háteigskirkju miðvikudaginn 3. febrúar kl. 20. Kaffiveitingar og allir hjartanlega velkomnir. Aðgangur ókeypis. Bjargráð í sorg Vinnuskóli Bláskógabyggðar 2013 Flokkstjóra vantar í sumarvinnu unglinga og umhirðu opinna svæða. Lágmarksaldur er 18. ár. Starfstími er frá 3. júní til 31. júlí. Starfssvæðið er annarsvegar á Laugarvatni og í Reykholti. Umsækjendur þurfa að hafa bíl til umráða. Umsóknarfrestur er til og með 24. maí n.k. og skulu umsóknir berast á skrifstofu Bláskógabyggðar eða á netfangið kristinn@blaskogabyggd.is, merktar Vinnuskóli Bláskógabyggðar. Upplýsingar gefur Kristinn í síma 860-4440. Þjónustu- og framkvæmdasvið Bláskógabyggðar Bláskógabyggð Álagning fasteignagjalda 2016. Upph fs lagning fasteign gjalda í Bláskógabyggð er nú lokið fyrir árið 2016. Sveitafélagið Bláskógabyggð hefur lokið upphafsálagningu vegna ársins 2016. Álagningaseðlar 2016 verða ekki sendir út, en hægt er að nálgast þá á www.island.is undir „Mínar síður“ og þar í pósthólfi. Innskráning á síðuna er með veflykli ríkisskattsstjóra, íslykli eða með rafrænum skilríkjum. Eins má nálgast upplýsingar um álagninguna á bæjargátt- inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, blaskogabyggd.is , en þar er farið inn á mínar síður með sama hætti og á www.island.is. Forsendur álagningarinnar er einnig að finna inni á heimasíðu Bláskógabyggðar, blaskogabyggd.is . Greiðsluseðlar verða ekki sendir út nema þess sé sérstaklega óskað, en kröfur vegna fasteignagjalda koma inná heimabanka viðkomandi gjaldanda og birtast þar, sem og inni á bæjardyrum á heimasíðu Blá- skógabyggðar. Þeim, sem óska eftir að fá heimsendan greiðsluseðil, er bent á að hafa samband við skrifstofu Bláskógabyggðar í síma 480-3000 ( mánudaga – fimmtudaga frá kl. 9.00 – 12.00 og 13.00 – 15.00, en föstudaga frá 9.00 – 12.00), eða á netfangið gudny@blaskogabyggd.is Allar nánari upplýsingar um álagningu gjalda 2016 eru veittar á skrif- stofu Bláskógabyggðar. Bláskógabyggð. Náttúra Auðnutittlingum hefur fækkað áberandi mikið í görðum landsmanna í vetur eftir frekar góð undanfarin ár. Vetrarfuglatalning Náttúrufræðistofnunar Íslands sem haldin er árlega milli jóla og nýárs rennir einnig stoðum undir það að fækkunin sé áreiðanleg. „Það er örlítil fækkun í nokkrum fuglategundum í görðum lands- manna en mest áberandi er fækkun auðnutittlinga sem hafa verið mjög algengir gestir síðustu tvo vetur. Nú í ár eru þeir hins vegar færri og menn taka eftir því,“ segir Guð- mundur A. Guðmundsson, fugla- fræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands. „Breytingin er nokkuð skörp en líklega er ekkert sem er að gerast nú í vetur sem orsakar fækkunina.“ Auðnutittlingastofninn er nokk- uð stór, telur um hundrað þúsund pör. Þeirra aðalfæða eru birkifræ og nóg er af þeirri fæðu í dag. „Því er líklegt að þeim hafi fækkað síðasta vetur þegar lítið var af birkifræjum. Nú er nóg af fæðu fyrir þá,“ segir Guðmundur sem hefur þrátt fyrir þetta litlar áhyggjur af stofninum. „Auðnutittlingur getur orpið oft yfir sumartímann og því þarf ekki að taka langan tíma fyrir stofninn að ná jafnvægi á nýjan leik.“ – sa Auðnutittlingum fækkar Verkamenn á Sri Lanka sauma þjóðfánann, en hann verður svo seldur á þjóðhátíðardaginn. Dagurinn er haldinn hátíðlegur í sextugasta og áttunda sinn þann 4. febrúar. Fréttablaðið/EPa Þjóðhátíðardagurinn undirbúinn V i ð s k i p t i I n n f l u t n i n g s b a n n íslenska ríkisins á fersku ófrosnu kjöti til Íslands stenst ekki ákvæði EES-samningsins um frjálst flæði vöru og þjónustu á innri markaði Evrópu. Þetta kemur fram í ráð- gefandi áliti EFTA-dómstólsins sem skilað var í gær. Samkvæmt áliti dómstólsins kveður EES-samningurinn á um að aðildarríkjum hans beri að leyfa innflutning á fersku kjöti, svo framarlega sem það hefur staðist heilbrigðiseftirlit í heimalandinu. Ekki sé heimilt að gera þá kröfu að afurðirnar verði frystar eins og íslensk stjórnvöld hafa alltaf krafist. Vilhjálmur Svansson, dýralæknir á tilraunastöð Háskóla Íslands að Keldum, geldur varhug við því að flytja inn ferskt kjöt til landsins og segir þetta sorgartíðindi fyrir þá sem bera lýð- og dýraheilsu fyrir brjósti. „Ísland er eyja og við njótum þeirrar landfræðilegu einangrunar þegar kemur að smitsjúkdómum í mönnum og dýrum. Staða smit- sjúkdóma íslenskra búfjárstofna er ekki sambærileg við það sem gerist erlendis,“ segir Vilhjálmur. „Land- fræðileg einangrun okkar er ákveð- in auðlind sem menn spilla með því að leyfa innflutning á fersku kjöti.“ „Dómurinn gat ekki komist að neinni annarri niðurstöðu. Það hefur legið fyrir um árabil að þessar reglur væru hluti af EES-samningn- um og að Ísland hefði ekki samið um neina undanþágu frá þeim,“ segir Ólafur Stephensen, framkvæmda- stjóri Félags atvinnurekenda. „Það verður að hafa í huga að hér er um ráðgefandi álit að ræða og það afnemur ekki sjálfkrafa gildandi reglur á Íslandi,“ segir Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra. „Það eru viss vonbrigði að EFTA- dómstóllinn hafi ekki skilning á þeim sjónarmiðum sem við höfum lagt mikla áherslu á.“ „Þetta var bara eins og lagt var upp með. Nú verður málið tekið fyrir í héraðsdómi og ég hef ekki hugmyndaflug til annars en að hann muni komast að sömu niðurstöðu,“ segir Arnar Þór Stefánsson lögmaður sem flytur málið fyrir hönd Ferskra kjötvara. sveinn@frettabladid.is Bann við innflutningi andstætt EES-samningi Í ráðgefandi áliti EFTA-dómstólsins segir að íslensk stjórnvöld þurfi að leyfa inn- flutning á fersku kjöti. Dýralæknir tilraunastöðvar að Keldum segir þetta sorgar- tíðindi. Staða smitsjúkdóma íslenskra búfjárstofna sé betri hér en erlendis. Viðskipti Umfangsmiklar breytingar verða gerðar á sjónvarpsdagskrá og fjarskiptaþjónustu 365. Til að mynda verður viðskiptavin- um boðið upp á ótakmarkað niðurhal og gagnamagn á netinu og í símanum en pakkarnir sem boðið verður upp á kallast Endalaust internet og Enda- laus GSM. Internetáskrifendur sem eru einn- ig áskrifendur að einhverjum sjón- varpstilboðspökkum fyrirtækisins fá ótakmarkað niðurhal á 1.000 krónur á mánuði. Þá fá GSM-áskrifendur ótakmark- aðar mínútur og SMS óháð því hjá hvaða símafyrirtæki móttakandi sím- talsins er. Endalaust gagnamagn fylgir áskriftarleiðinni en fyrir þetta greiða notendur 2.990 krónur á mánuði. „Núna verður þetta einfalt. Enda- laust gagnamagn, mínútur og SMS á föstu verði þannig að fólk þarf ekki að óttast óvænta reikninga vegna umframnotkunar,“ segir Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri 365. -jóe Endalaust gagnamagn Ísland er eyja og við njótum þeirrar landfræðilegu einangrunar þegar kemur að smitsjúk- dómum í mönnum og dýrum. Vilhjálmur Svansson dýralæknir á Keldum Það verður að hafa í huga að hér er um ráðgefandi álit að ræða og það afnemur ekki sjálfkrafa gildandi reglur. Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðar­ ráðherra 2 . f e b r ú a r 2 0 1 6 Þ r i ð J U D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a b L a ð i ð 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -F 1 9 4 1 8 5 5 -F 0 5 8 1 8 5 5 -E F 1 C 1 8 5 5 -E D E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.