Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 20
Bretar aka jú vinstra megin í umferðinni en það eiga þeir ekki að gera í öðrum löndum Evrópu þar sem er hægri um- ferð. Svo virðist sem einn bresk- ur túristi hafi ekki alveg áttað sig á þessu þar sem hann ók bíl á vinstri helmingi og tók í leið- inni niður 6 atvinnuhjólreiða- menn úr liðini Giant-Alpecin ná- lægt borginni Calpe á Spáni. Þeir voru allir fluttir á spítala en eng- inn þeirra virðist þó hafa slasast mjög alvarlega. Hjólreiðamenn- irnir sem urðu fyrir bíl Bret- ans eru John Degenkolb, Warr- en Barguil, Chad Haga, Fredrik Ludvigsson, Max Walscheid og Ramon Sinkeldam. Þjóðverjinn John Degenkolb er þeirra fræg- astur og þekktur meðal hjólreiða- áhugmanna. Afar litlar líkur eru til þess að hann geti keppt í kom- andi Paris-Roubaix hjólreiða- keppni, sem hann vann í fyrra, en til stóð að hann reyndi að verja titil sinn þar. Hann vann einnig Milan-San Remo keppnina í fyrra, sem og Saitama Criteri- um keppnina í Japan. Degenkolb hefur samtals unnið 9 dagleiðir í hinni þekktu Vuelta-hjólreiða- keppni á Spáni, sem fram fer ár hvert. Ók niður heilt hjólalið á Spáni Giant-Alpecine liðið í hjólreiðum. Toyota Corolla er lang söluhæsti einstaki bíll heims frá upphafi. Þ rjár af söluhæstu bíl- gerðum heims frá upphafi eru Ford T- Model, Volkswagen Bjallan og Toyota Cor olla. Ford T-Mod- el seldist í 16,5 millj- ón eintökum á árunum 1908 til 1927 og var söluhæsta bílgerð heims allt að árinu 1972 er Volks- wagen bjallan tók krúnuna, en hún hefur selst í 21,5 milljón- um eintaka. Þessar tvær bílgerð- ir eiga þó lítið í Toyota Corolla sem enn er í framleiðslu, allt frá árinu 1966 og hefur selst alls í 42,5 milljónum eintaka og selst nú á hverju ári í um einni milljón eintaka. Það gæti því orðið löng bið að einhver önnur bílgerð nái Toyota Corolla. Bjallan breyttist sáralítið Rétt er þó að hafa í huga að Toyota Corolla hefur breyst gríð- arlega mikið með þeim 12 kyn- slóðum bílsins sem komið hafa á markað. Bjallan hins vegar breyttist sáralítið allan sinn líf- tíma og hægt væri að setja yfir- byggingu síðustu árgerðar bjöll- unnar á undirvagn þeirrar fyrstu. Einhverra hluta vegna er ein afar söluhá bílgerð al- mennt ekki talin með er kemur að söluhæstu bílgerðum heims en það er Ford F-150 pallbíll- inn sem framleiddur hefur verið frá árinu 1948 og selst enn í um 800.000 eintökum á hverju ári. Hann hefur selst í um 38 millj- ón eintökum frá upphafi og gæti því talist með réttu næst mest selda bílgerðin á eftir To- yota Corolla. Ford F-150 hefur verið söluhæsta bílgerð Banda- ríkjanna á hverju ári síðastlið- in 33 ár. Söluhæstir hjá nokkrum fram- leiðendum Af söluhæstu bílgerðum einstakra bílaframleiðenda má nefna sem dæmi að Citroën seldi 3.872.583 eintök af Citroën 2CV á árunum 1948-1990. Fiat seldi 8,8 milljón- ir af Fiat Uno á árunum 1983 til 2004. Lada hefur selt 13,5 milljón- ir af Niva fólksbílnum sem svo al- gengur var á götum Íslands hér á árum áður. Opel hefur selt yfir 18 milljónir af Corsa bíl sínum frá 1982. Renault hefur selt 8,5 milljónir af Clio frá 1991. Porsc- he hefur selt um 850.000 af 911 bílnum frá 1963. Trabant seldist í 3 milljónum eintaka frá 1957 til 1991. Volkswagen hefur selt um 32 milljónir eintaka af Golf frá 1974 til dagsins í dag. Volvo seldi 2.862.573 eintök af 200-seríunni á árunum 1974 til 1993 og líklega þá mest af 244 gerðinni. ToyoTa Corolla TvöfalT söluhærri en bjallan Toyota Corolla hefur selst í 42,5 milljónum eintaka, en bjallan í 21,5 milljónum. Ford T-Model seldist í 16,5 milljón eintökum. Toyota hefur í huga að kaupa upp restina af hlutabréfum í Daihatsu en Toyota hefur átt meirihlut- ann í bílaframleiðandanum frá árinu 1998. Ef Toyota eignast að fullu Daihatsu getur Toyota meira stýrt markaðssetningu ódýrra bíla Daih atsu inn á ákveðna lág- verðsmarkaði og greint skýrar á milli ódýrra bíla Daihatsu og dýr- ari bíla Toyota. Auk þess getur Toyota með því lækkað kostnað í herbúðum Daihatsu, m.a. með magninnkaupum. Heyrst hefur að Toyota ætli í samstarfi við Suzuki að kaupa restina í Daihatsu og fá með því betri aðgang að stóra bíla- markaðnum í Indlandi, þar sem Suzuki er með ráðandi stöðu. Toy- ota hefur hins vegar neitað því að eiga í samstarfi við Suzuki í kaup- um á Daihatsu. Toyota keypti fyrst hlut í Daihatsu árið 1967, en á nú 51,2% hlut. Myndi nota Daihatsu eins og Renault notar Dacia Ef að Toyota kaupir Daihatsu myndi Toy ta nota merki Daihatsu líkt og Volkswagen gerir með Skoda og Seat merkin, Niss- an gerir með Datsun og Renault gerir með Dacia. Það gæti orðið stórt vopn í baráttunni við Suzuki í Indlandi en margir bílaframleiðendur horfa til þess stóra markaðar en verða að bjóða ódýra bíla þar til að eiga einhvern séns. Við þessar fréttir um hugsanleg kaup Toyota á Dai- hatsu og mögulegt samstarf við Suzuki um kaupin hækkuðu bréfin í Daihatsu um 16% í gær, um 11% hjá Suzuki og um 3,8% hjá Toy- ota. Sala Daihatsu bíla minnkaði í fyrra um 13,3%, en varð þó til þess að heildarsala Toyota varð 10,15 milljónir bíla í fyrra, hærri en 9,93 milljóna bíla sala Volks wagen. Daihatsu með sterka stöðu á nokkrum mörkuðum Daihatsu er með hæstu markaðs- hlutdeild mjög lítilla bíla (bílar með minna en 0,66 lítra vélar, eða „kei cars“) í Japan með 31% mark- aðshlutdeild og er einnig með ráð- andi stöðu í SA-Asíu og hefur verið söluhæsti bílaframleiðand- inn í Indónesíu síðastliðin 9 ár. Dai hatsu rekur sögu sína til ársins 1907 og er með höf- uðstöðvar í Osaka, næststærstu borg Japans. Toyota að eignast Daihatsu að fullu en átti 51% áður Jerry Seinfeld er mikill bílasafn- ari og á vænlegt safn verðmætra dýrgripa, margra hverra af eldri gerðinni. Hann hefur nú ákveðið að selja 3 þeirra, alla af Porsche gerð. Þetta eru 1955 árgerðin af Porsche 550 Spyder, 1958 árgerð- in af Porsche 356 A GS/GT Carr- era Speedster og 1974 árgerðin af Porsche 911 Carrera 3,0 IROC RSR. Sá fyrstnefndi er metinn á 6 milljónir dollara, 550 Spyd- er bíllinn á 2,5 milljónir dollara og sá síðastnefndi á um 1 millj- ón dollara. Samtals um 9,5 millj- ónir dollara, eða 1,24 milljarða króna. Bílarnir verða boðnir upp á Amelia Island Auction uppboð- inu sem haldið er af Gooding & Company þann 11. mars næst- komandi. Að sögn Jerry Seinfeld er ástæðan fyrir sölu þessara bíla einfaldlega sú að hann kýs að aðrir fái að njóta þeirra. Jerry Seinfeld selur 3 Porsche  Renault Zoe seldist í 18.453 ein- tökum í Evrópu á síðasta ári og var söluhæsti einstaka rafmagns- bíll álfunnar. Heildarsala Zoe í heiminum öllum var 23.086 og var hann ekki söluhæsti rafmagns- bíll heims þar sem til dæmis Niss- an Leaf og Tesla Model S seld- ust í mun fleiri eintökum. Renault Zoe var langsöluhæsti rafmagns- bíll Frakklands, með 48,1% mark- aðshlutdeild. Síðasta útgáfa Re- nault Zoe kemst 240 km á fullri hleðslu og jókst drægni hans um 25 kílómetra frá fyrri gerð bíls- ins. Renault hefur selt alls 62.228 rafmagnsbíla frá árinu 2010. Heildarsala rafmagnsbíla í Evr- ópu á síðasta ári var 97.687 bílar og jókst um 47,8% frá árinu áður. Engu að síður er það aðeins 0,61% af heildarsölu bíla í Evrópu í fyrra. Ef rafmagnsbílasala vex jafn hratt á þessu ári og því síð- asta má búast við um 145.000 bíla sölu og að rafmagnsbílar nái um 0,9% hlutdeild í heildarsölu. Það er því langt í land að rafmagns- bílar teljist til stórrar hlutdeildar í sölu bíla og það í Evrópu, sem er þó einna móttækilegust fyrir slík- um bílum. Renault Zoe mest seldi rafmagnsbíll Evrópu Söluhæstur í Evrópu en alls ekki í heiminum öllum. Daihatsu Kopen. www.visir.is/bilar BílaR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius finnurth@365.is Útgáfufélag 365 miðlar ehf. Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000 Auglýsingar Atli Bergmann atlib@365.is Sími 512 5457 Hönnun Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is bílar Fréttablaðið 2 2. febrúar 2016 ÞRIÐJUDAGUR 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -F B 7 4 1 8 5 5 -F A 3 8 1 8 5 5 -F 8 F C 1 8 5 5 -F 7 C 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.