Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 44

Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 44
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð Það er búið að vera miklir hasar í gangi síðustu vikur, en lagið fjallar um þátttöku Íslendinga í Eurovision. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir einn af framkvæmdastjórum keppninnar hringdi í mig fyrir rúmum tveimur vikum síðan og vantaði afmælislag í tilefni af 30 ára þátttöku Íslands í keppninni. Það má segja að ég hafi fengið hugmyndina meðan ég talaði við Ragnhildi í símanum,“ segir Páll Óskar Hjálmtýsson, einn alvinsælasti söngvari þjóðarinnar, sem var að senda frá sér lagið „Við vinnum þetta fyrirfram“. „Ég átti til lag sem ég var búin að geyma ofan í skúffu í rúm tvö ár, lag sem ég vissi ekki alveg hvað ég ætlaði að gera við. En þegar Ragnhildur kom með þá skýringu að þetta væri ekki eurovisionlag heldur um Eurovision þá kom hugmyndin,“ útskýrir hann alsæll. Páll Óskar kemur til með að frumflytja lagið á sviðinu í Háskóla- bíói næstkomandi laugardag, en þá fer fyrra undanúrslitakvöld Söngva- keppni Sjónvarpsins fram. „Lagið fjallar um okkur Íslendinga í Eurovision og viðbrögð þjóðarsálar- innar við keppninni. Gleðibanka syn- drome-ið svokallaða sem við höfum haft í gegnum tíðina, þar sem við erum alltaf svo bjartsýn og förum fljótt að hugsa um hvar við getum haldið keppnina. En auð vitað er betra að við séum að sýna þessi viðbrögð heldur en að senda keppanda út með hálfvolgum viðbrögðum þjóðarinnar. Við vinnum þetta fyrirfram er frábært lag fyrir okkur hérna heima og okkar eigin þjóðarsál,“ segir Páll Óskar, aðspurður um inntak lagsins. Í ljósi þess hve tímaramminn var þröngur fékk Páll Óskar þá Braga Valdimar Skúlason og Sigurð Sig- tryggsson til að aðstoða sig við að klára lagið. „Já ég hafði samband við Braga Valdimar og hann dró textann að landi og betrumbætti af sinni rómuðu snilld. Demóið af laginu gerði Little Boots fyrir tveimur árum. Svo sáum við Siggi Sigtryggsson um að endurút- setja lagið og hljóðrita upp á nýtt. Ég er hæst ánægður með þetta lag. Það hefur gengið vel að vinna það síðustu vikur og ég er meira að segja búinn að taka upp myndband við lagið,“ segir Páll Óskar ánægður með útkomuna. Margt hefur drifið á daga poppar- ans sívinsæla undanfarnar vikur, en auk þess að semja nýtt lag, þá var hann valinn söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum sem fram fóru í Háskólabíói um síðastliðna helgi. Verðlaunin eru uppskeruhá- tíð íslenskra tónlistarmanna, þar sem h l u s t - e n d u r Bylgjunnar, FM 9 5 7 o g X977 velja hverjir þóttu standa sig best á liðnu ári. „Það var mjög óvænt, mig grunaði ekki að ég yrði valinn úr þessum flotta hópi söngvara sem voru til- nefndir svo ég er alveg innilega þakk- látur. Þetta var frábært kvöld og vel að þessu staðið. Þessi hlutsenda net- kosning er nauðsynlegt mótvægi við íslensku tónlistarverðlaunin sem óneytanlega hefur aðrar áherslur. Þetta sýnir að það er pláss fyrir alla í bransanum þar sem allir fá sinn stökkball til að njóta sín, skapa sína list og koma henni á framfæri,“ segir Páll Óskar að lokum. gudrunjona@frettabladid.is Syngur um Gleðibanka-syndrome íslensku þjóðarinnar „Mig grunaði ekki að ég yrði valinn úr þessum flotta hópi söngvara,“ segir nýkjörinn söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum, Páll Óskar Hjálmtýsson, sem hefur í nægu að snúast. Næst á dagskrá er að frumflytja afmælislag Eurovision á fyrra kvöldi undan- keppninnar sem fram fer á laugardaginn kemur í Háskólabíói. Páll Óskar var valinn söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum sem afhent voru í Háskólabíói um síðastliðna helgi. Fréttablaðið/Daníel ÞÓr Ágústsson. nýjasta lag Páls Óskars, Við vinnum þetta fyrirfram, fjallar um þátttöku íslendinga í eurovision. 2 . f e B R ú A R 2 0 1 6 Þ R i ð J U D A G U R26 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 5 -F 1 9 4 1 8 5 5 -F 0 5 8 1 8 5 5 -E F 1 C 1 8 5 5 -E D E 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.