Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 02.02.2016, Blaðsíða 16
Í dag 19.45 Norwich - Tottenham Sport 5 19.45 Sunderl.-Man.City Sport 4 19.45 Arsenal - Southamp. Sport 3 19.45 Leicester - Liverpool Sport 2 19.45 West Ham - A. Villa Sport 6 20.00 WBA - Swansea Bravó 20.00 Man. Utd.-Stoke Sport 3 Nýjast Valsmenn fara til eyja sextán liða úrslitum Coca Cola bikars karla í handbolta lauk í gærkvöldi 63 dögum eftir að þau hófust 30. nóvember síðastliðinn. ÍBV var áttunda og síðasta liðið inn í átta liða úrslitin þar sem liðið tekur á móti Val í næstu viku. ÍBV vann 37-25 sigur á HK í gær þar sem theodór sigurbjörnsson skoraði 13 mörk. Valsmenn voru búnir að bíða í ellefu daga eftir að fá að vita hverjir mótherjarnir yrðu í baráttunni um sæti á bikarúrslita- helginni í laugardalshöllinni 25. til 27. febrúar næstkomandi. ÍBV og Valur Veðja Bæði á unga dansKa framHerja Valur og ÍBV sömdu bæði við danska framherja í gær en þeim er ætlað að skora mörkin fyrir liðin á komandi tímabili í Pepsi-deildinni. Hinn 22 ára gamli nikolaj Hansen verður arftaki Patrick Pedersen hjá Val en Pedersen fékk gullskóinn 2015. Hinn tví- tugi mikkel maigaard jakobsen gerði tveggja ára samning við ÍBV en jakobsen skoraði þrennu á dögunum í 4-2 sigri ÍBV á Víkingi Ó. í fótbolta.net mótinu og var síðan aftur á skotkónum á móti Kr í úrslitaleik mótsins í gær. Hlynur inn úr Kuldanum Íslenski landsliðsmaðurinn Hlynur Bæringsson má spila á ný með sundsvall dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfubolta en hann var ásamt erlendu leikmönn- um sundsvall dragons settur í bann þar sem félagið hafi ekki gert upp dómaralaun við sænska sam- bandið. Hlynur var ekki með þegar sundsvall tapaði á heimavelli á móti botnliði ecoÖrebro en íslenski landsliðs- fyrirliðinn var með 18,3 stig og 13,3 fráköst að meðaltali í þremur síðustu leikjum sínum fyrir bannið. Fótbolti afmælisdagurinn var langur en ánægjulegur fyrir íslenska landsliðs- manninn alfreð finnboga- son sem sé nú von um að fá að spila reglulega eftir ósanngjarna og furðu- lega meðferð sem hann fékk sem leikmaður gríska liðsins olympiacos. „Þetta er tvöföld gleði,“ sagði alfreð finnbogason þegar fréttablaðið náði í hann í gærkvöldi en þá var hann á leið inn í afmæliskvöldverð á veitingastað í augsburg í Þýskalandi eftir strembinn dag. „janúar er búinn að vera mjög erfiður mánuður. Það er búið að vera mikið um sveiflur varðandi lið og áhuga, kannski allt að gerast eina stundina en svo ekki neitt. mikil streita fylgdi síðustu dögum, ekki á líkama heldur meira á sálina. Ég er því mjög ánægður að þetta sé búið og ég geti farið aftur að hugsa um að spila fót- bolta,“ sagði alfreð. Vonbrigði á vonbrigði ofan „Ég fór á láni til olympiacos til að spila leiki en var ekki að spila leiki. Ég var búinn að gera allt sem ég gat gert á þessum tveimur mánuðum og ég sá enga von um breytingu á þeirri stöðu þar sem að sami þjálfari yrði áfram með liðið. Ég er mjög ánægður með þessa lendingu því ég tel að ég eigi góða möguleika á því að spila hérna. númer eitt, tvö og þrjú fyrir mér þá snýst þetta um að fá að spila leiki og að komast aftur í gang,“ sagði alfreð. „Það er búið að reyna ansi mikið á mig og það er alltaf erfitt að fá von- brigði ofan á vonbrigði en maður þarf bara að trúa á sjálfan sig. Þegar ég fæ vonandi að spila þá ætla ég mér að sýna það inn á vellinum að menn hafi haft rangt fyrir sér,“ sagði alfreð. „mér gekk í raun mjög vel í þessum leikjum sem ég spilaði með olympi- acos. Þegar ég spurði menn af hverju ég væri ekki að spila meira þá var voðalega lítið um svör. Það er mikil- vægast á þessum árum og sérstak- lega með sumarið í huga að vera að spila leiki og vera í toppstandi,“ sagði alfreð sem verður í sviðsljósinu með íslenska landsliðinu á em í frakk- landi næsta sumar. Langt frá því að vera sanngjarnt Hápunktur alfreðs hjá gríska félag- inu olympiacos var þegar hann tryggði liðinu sigur á arsenal í meistaradeildarleik á emirates. alfreð var slegið upp á forsíðum allra grísku blaðanna og stuðnings- mennirnir tóku hann tímabundið í guðatölu. Vandamálið að markið og innkoman hafi lítið sem engin áhrif á spilatímann. Hann fékk áfram fá eða engin tækifæri með olympi- acos. „mér fannst þetta langt frá því að vera sanngjarnt og ræddi þetta við þjálfarann. Það breytti voðalega litlu en það þýðir lítið að væla yfir því. Ég horfi bara björtum augum á það sem koma skal og það skiptir öllu. Það sem er búið er búið,“ segir alfreð sem er reyndari á eftir. „maður lærir rosalega mikið á þessum erfiðu tímum og ég tel mig vera betri leikmann eftir þetta eina og hálfa ár eftir að hafa upplifað ýmsa hluti. núna geta ég sýnt það í verki inn á vellinum,“ sagði alfreð. Hann hefur nú spilað í Belgíu, sví- þjóð, Hollandi, spáni og í nú síðast í grikklandi. Þýski boltinn hentar honum „Ég tel að augsburg og þýski boltinn henti mér. Það er margt sem passar en þetta er lítill klúbbur sem er að spila sitt fimmta ár í röð í Bundes- ligunni. Þeir eru að festa sig í deild- inni og náðu ótrúlegum árangri í fyrra með því að enda í fimmta sæti og komast í evrópudeildina,“ sagði alfreð sem hefur verið inn á borði hjá þessu þýska félagi í dágóðan tíma. „Þeir eru búnir að hafa áhuga á mér lengi og ég þekki fólkið hjá klúbbnum vel enda búin að þekkja þau í tvö til þrjú ár. Það er sama fólk að vinna þarna og sami þjálfari og þegar þau höfðu fyrst áhuga á mér. Það hafði mikið að segja. Ég er líka fenginn hingað til að spila og þetta passaði því allt fyrir mig,“ sagði alfreð. Spilar ekki á móti Liverpool Það er bara ein pínulítill svartur blettur á félagsskiptunum því alfreð má ekki spila með augsburg á móti liverpool í 32 liða úrslitum evrópudeildarinnar. „olympiacos er í evrópudeild- inni og því fæ ég ekki að spila. ef olympiacos hefði dottið út eða verið áfram í meistaradeildinni þá hefði ég getað spilað. Það er svekkj- andi en ekkert við því að gera, því miður,“ segir alfreð. „Bundesligan er rosalega flott deild og sú deild þar sem mig lang- að mest að spila þegar ég fór frá Hol- landi. Ég var með augum á henni af því að ég taldi að hún myndi henta mér. Það passaði ekki fjárhagslega fyrir þau þýsku lið sem höfðu áhuga á mér þá að kaupa mig þá. oft þarf maður að fara krókaleiðir að mark- miðunum,“ sagði alfreð. Hann hefur ekki áhyggjur af líkamlega þættinum þrátt fyrir fáar mínútur. „Þó að ég hafi ekki spilað marga leiki þá er ég í mjög góðu formi sem ég hef sýnt þegar ég hef spilað. nú er bara að fá að spila reglulega og það er það sem við viljum allir gera,“ sagði alfreð. 27. afmælisdagurinn er örugglega með þeim eftirminni- legri á ævinni. Í læknisskoðun klukkan sex „Þessi dagur er búinn að vera mjög langur og erfiður en um leið mjög skemmtilegur. Ég vaknaði klukkan sex í morgun til að fara í læknisskoðun og enda þetta síðan á góðum veitingastað í augsburg. Þetta var því mjög góður afmælis- dagur,“ sagði alfreð að lokum. ooj@frettabladid.is Mjög góður afmælisdagur hjá Alfreð 27 ára afmælisdagurinn var eftirminnilegur fyrir íslenska landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason sem hélt upp á daginn með því ganga frá lánsamningu við Augsburg í þýsku Bundes- ligunni. Hann er að fara spila í sjötta landinu á fimm árum. Alfreð spilar í sjöunda landinu á sex árum 2009 og 2010 Breiðablik á Íslandi 27 mörk í 39 leikjum 2010-11 og 2011-12 Lokeren í Belgíu 4 mörk í 22 leikjum Sumar 2012 Helsingborg í Svíþjóð 12 mörk í 17 leikjum 2012-13 og 2013-14 Heerenveen í Hollandi 53 mörk í 65 leikjum 2014–15 Real Sociedad á Spáni 2 mörk í 23 leikjum 2015-16 Olympiacos í Grikklandi 1 mark í 7 leikjum 2016 Augsburg í Þýskalandi Liðið er í 12. sæti þýsku deildarinnar en hefur ekki tapað í síðustu sjö leikjum (4 sigrar, 3 jafntefli). Hollenski varnar- maðurinn Paul Verhaegh er markhæstur með 5 mörk . fráBær ViKa Varð enn Betri Íslenski landsliðsmaðurinn martin Hermannsson átti frábæra viku með körfuboltaliði liu Brooklyn skólans og hann var í gær val- inn leikmaður vikunnar í neC- deildinni. martin Hermannsson var með 21,5 stig, 7,0 stoðsendingar, 5,5 frá- köst og 3,5 stolna að meðaltali í leikjum liu Brooklyn í vikunni. Hann nýtti enn- fremur 52,1 pró- sent skota sinna og 80 prósent vítaskotanna. Þetta er í annað skiptið í vetur sem hann fær þessa flottu viðurkenn- ingu. 2 . F e b r ú A r 2 0 1 6 Þ r i Ð J U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð sport 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 3 K _ N Y N Y .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 8 5 5 -E C A 4 1 8 5 5 -E B 6 8 1 8 5 5 -E A 2 C 1 8 5 5 -E 8 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.