Fréttablaðið - 02.02.2016, Page 16
Í dag
19.45 Norwich - Tottenham Sport 5
19.45 Sunderl.-Man.City Sport 4
19.45 Arsenal - Southamp. Sport 3
19.45 Leicester - Liverpool Sport 2
19.45 West Ham - A. Villa Sport 6
20.00 WBA - Swansea Bravó
20.00 Man. Utd.-Stoke Sport 3
Nýjast
Valsmenn fara til eyja
sextán liða úrslitum Coca Cola
bikars karla í handbolta lauk í
gærkvöldi 63 dögum eftir að þau
hófust 30. nóvember síðastliðinn.
ÍBV var áttunda og síðasta liðið
inn í átta liða úrslitin þar sem
liðið tekur á móti Val í næstu viku.
ÍBV vann 37-25 sigur á HK í gær
þar sem theodór sigurbjörnsson
skoraði 13 mörk. Valsmenn voru
búnir að bíða í ellefu daga eftir að
fá að vita hverjir mótherjarnir yrðu
í baráttunni um sæti á bikarúrslita-
helginni í laugardalshöllinni 25. til
27. febrúar næstkomandi.
ÍBV og Valur Veðja Bæði á
unga dansKa framHerja
Valur og ÍBV sömdu bæði við
danska framherja í gær en þeim er
ætlað að skora mörkin fyrir liðin
á komandi tímabili í
Pepsi-deildinni.
Hinn 22 ára gamli
nikolaj Hansen
verður arftaki
Patrick Pedersen
hjá Val en Pedersen
fékk gullskóinn 2015. Hinn tví-
tugi mikkel maigaard jakobsen
gerði tveggja ára samning við ÍBV
en jakobsen skoraði þrennu á
dögunum í 4-2 sigri ÍBV á Víkingi
Ó. í fótbolta.net mótinu og var
síðan aftur á skotkónum á móti Kr
í úrslitaleik mótsins í gær.
Hlynur inn úr Kuldanum
Íslenski landsliðsmaðurinn
Hlynur Bæringsson má spila á ný
með sundsvall dragons í sænsku
úrvalsdeildinni í körfubolta en
hann var ásamt erlendu leikmönn-
um sundsvall dragons settur í
bann þar sem félagið hafi ekki gert
upp dómaralaun við sænska sam-
bandið. Hlynur var ekki með þegar
sundsvall
tapaði á
heimavelli
á móti
botnliði
ecoÖrebro
en íslenski
landsliðs-
fyrirliðinn
var með 18,3 stig
og 13,3 fráköst að
meðaltali í þremur
síðustu leikjum
sínum fyrir
bannið.
Fótbolti afmælisdagurinn
var langur en ánægjulegur
fyrir íslenska landsliðs-
manninn alfreð finnboga-
son sem sé nú von um að
fá að spila reglulega eftir
ósanngjarna og furðu-
lega meðferð sem hann
fékk sem leikmaður gríska
liðsins olympiacos.
„Þetta er tvöföld gleði,“
sagði alfreð finnbogason
þegar fréttablaðið náði í hann
í gærkvöldi en þá var hann á
leið inn í afmæliskvöldverð
á veitingastað í augsburg í
Þýskalandi eftir strembinn dag.
„janúar er búinn að vera mjög
erfiður mánuður. Það er búið að
vera mikið um sveiflur varðandi
lið og áhuga, kannski allt að
gerast eina stundina en svo ekki
neitt. mikil streita fylgdi síðustu
dögum, ekki á líkama heldur
meira á sálina. Ég er því mjög
ánægður að þetta sé búið og ég geti
farið aftur að hugsa um að spila fót-
bolta,“ sagði alfreð.
Vonbrigði á vonbrigði ofan
„Ég fór á láni til olympiacos til að
spila leiki en var ekki að spila leiki. Ég
var búinn að gera allt sem ég gat gert
á þessum tveimur mánuðum og ég sá
enga von um breytingu á þeirri stöðu
þar sem að sami þjálfari yrði áfram
með liðið. Ég er mjög ánægður með
þessa lendingu því ég tel að ég eigi
góða möguleika á því að spila hérna.
númer eitt, tvö og þrjú fyrir mér þá
snýst þetta um að fá að spila leiki og
að komast aftur í gang,“ sagði alfreð.
„Það er búið að reyna ansi mikið á
mig og það er alltaf erfitt að fá von-
brigði ofan á vonbrigði en maður
þarf bara að trúa á sjálfan sig. Þegar
ég fæ vonandi að spila þá ætla ég mér
að sýna það inn á vellinum að menn
hafi haft rangt fyrir sér,“ sagði alfreð.
„mér gekk í raun mjög vel í þessum
leikjum sem ég spilaði með olympi-
acos. Þegar ég spurði menn af hverju
ég væri ekki að spila meira þá var
voðalega lítið um svör. Það er mikil-
vægast á þessum árum og sérstak-
lega með sumarið í huga að vera að
spila leiki og vera í toppstandi,“ sagði
alfreð sem verður í sviðsljósinu með
íslenska landsliðinu á em í frakk-
landi næsta sumar.
Langt frá því að vera sanngjarnt
Hápunktur alfreðs hjá gríska félag-
inu olympiacos var þegar hann
tryggði liðinu sigur á arsenal í
meistaradeildarleik á emirates.
alfreð var slegið upp á forsíðum
allra grísku blaðanna og stuðnings-
mennirnir tóku hann tímabundið í
guðatölu. Vandamálið að markið og
innkoman hafi lítið sem engin áhrif
á spilatímann. Hann fékk áfram fá
eða engin tækifæri með olympi-
acos.
„mér fannst þetta langt frá því að
vera sanngjarnt og ræddi þetta við
þjálfarann. Það breytti voðalega
litlu en það þýðir lítið að væla yfir
því. Ég horfi bara björtum augum á
það sem koma skal og það skiptir
öllu. Það sem er búið er búið,“ segir
alfreð sem er reyndari á eftir.
„maður lærir rosalega mikið á
þessum erfiðu tímum og ég tel mig
vera betri leikmann eftir þetta eina
og hálfa ár eftir að hafa upplifað
ýmsa hluti. núna geta ég sýnt það
í verki inn á vellinum,“ sagði alfreð.
Hann hefur nú spilað í Belgíu, sví-
þjóð, Hollandi, spáni og í nú síðast
í grikklandi.
Þýski boltinn hentar honum
„Ég tel að augsburg og þýski boltinn
henti mér. Það er margt sem passar
en þetta er lítill klúbbur sem er að
spila sitt fimmta ár í röð í Bundes-
ligunni. Þeir eru að festa sig í deild-
inni og náðu ótrúlegum árangri í
fyrra með því að enda í fimmta sæti
og komast í evrópudeildina,“ sagði
alfreð sem hefur verið inn á borði
hjá þessu þýska félagi í dágóðan
tíma.
„Þeir eru búnir að hafa áhuga
á mér lengi og ég þekki fólkið hjá
klúbbnum vel enda búin að þekkja
þau í tvö til þrjú ár. Það er sama fólk
að vinna þarna og sami þjálfari og
þegar þau höfðu fyrst áhuga á mér.
Það hafði mikið að segja. Ég er líka
fenginn hingað til að spila og þetta
passaði því allt fyrir mig,“ sagði
alfreð.
Spilar ekki á móti Liverpool
Það er bara ein pínulítill svartur
blettur á félagsskiptunum því
alfreð má ekki spila með augsburg
á móti liverpool í 32 liða úrslitum
evrópudeildarinnar.
„olympiacos er í evrópudeild-
inni og því fæ ég ekki að spila. ef
olympiacos hefði dottið út eða
verið áfram í meistaradeildinni þá
hefði ég getað spilað. Það er svekkj-
andi en ekkert við því að gera, því
miður,“ segir alfreð.
„Bundesligan er rosalega flott
deild og sú deild þar sem mig lang-
að mest að spila þegar ég fór frá Hol-
landi. Ég var með augum á henni af
því að ég taldi að hún myndi henta
mér. Það passaði ekki fjárhagslega
fyrir þau þýsku lið sem höfðu áhuga
á mér þá að kaupa mig þá. oft þarf
maður að fara krókaleiðir að mark-
miðunum,“ sagði alfreð. Hann
hefur ekki áhyggjur af líkamlega
þættinum þrátt fyrir fáar mínútur.
„Þó að ég hafi ekki spilað marga
leiki þá er ég í mjög góðu formi sem
ég hef sýnt þegar ég hef spilað. nú er
bara að fá að spila reglulega og það
er það sem við viljum allir gera,“
sagði alfreð. 27. afmælisdagurinn
er örugglega með þeim eftirminni-
legri á ævinni.
Í læknisskoðun klukkan sex
„Þessi dagur er búinn að vera
mjög langur og erfiður en um leið
mjög skemmtilegur. Ég vaknaði
klukkan sex í morgun til að fara í
læknisskoðun og enda þetta síðan
á góðum veitingastað í augsburg.
Þetta var því mjög góður afmælis-
dagur,“ sagði alfreð að lokum.
ooj@frettabladid.is
Mjög góður
afmælisdagur
hjá Alfreð
27 ára afmælisdagurinn var eftirminnilegur fyrir íslenska
landsliðsmanninn Alfreð Finnbogason sem hélt upp á daginn
með því ganga frá lánsamningu við Augsburg í þýsku Bundes-
ligunni. Hann er að fara spila í sjötta landinu á fimm árum.
Alfreð spilar í sjöunda
landinu á sex árum
2009 og 2010
Breiðablik á Íslandi
27 mörk í 39 leikjum
2010-11 og 2011-12
Lokeren í Belgíu
4 mörk í 22 leikjum
Sumar 2012
Helsingborg í Svíþjóð
12 mörk í 17 leikjum
2012-13 og 2013-14
Heerenveen í Hollandi
53 mörk í 65 leikjum
2014–15
Real Sociedad á Spáni
2 mörk í 23 leikjum
2015-16
Olympiacos í Grikklandi
1 mark í 7 leikjum
2016
Augsburg í Þýskalandi
Liðið er í 12. sæti þýsku deildarinnar en hefur ekki tapað í
síðustu sjö leikjum (4 sigrar, 3 jafntefli). Hollenski varnar-
maðurinn Paul Verhaegh er markhæstur með 5 mörk .
fráBær ViKa Varð enn Betri
Íslenski landsliðsmaðurinn martin
Hermannsson átti frábæra viku
með körfuboltaliði liu Brooklyn
skólans og hann var í gær val-
inn leikmaður vikunnar í neC-
deildinni. martin Hermannsson
var með 21,5 stig, 7,0
stoðsendingar, 5,5 frá-
köst og 3,5 stolna að
meðaltali í leikjum
liu Brooklyn í
vikunni. Hann
nýtti enn-
fremur 52,1 pró-
sent skota sinna
og 80 prósent
vítaskotanna.
Þetta er í annað
skiptið í vetur
sem hann fær
þessa flottu
viðurkenn-
ingu.
2 . F e b r ú A r 2 0 1 6 Þ r i Ð J U D A G U r14 S p o r t ∙ F r É t t A b l A Ð i Ð
sport
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
3
K
_
N
Y
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
8
5
5
-E
C
A
4
1
8
5
5
-E
B
6
8
1
8
5
5
-E
A
2
C
1
8
5
5
-E
8
F
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K