Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 44
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð
Það er búið að vera miklir hasar í gangi síðustu vikur, en lagið fjallar um þátttöku Íslendinga í Eurovision. Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir einn
af framkvæmdastjórum keppninnar
hringdi í mig fyrir rúmum tveimur
vikum síðan og vantaði afmælislag
í tilefni af 30 ára þátttöku Íslands í
keppninni. Það má segja að ég hafi
fengið hugmyndina meðan ég talaði
við Ragnhildi í símanum,“ segir Páll
Óskar Hjálmtýsson, einn alvinsælasti
söngvari þjóðarinnar, sem var að
senda frá sér lagið „Við vinnum þetta
fyrirfram“.
„Ég átti til lag sem ég var búin að
geyma ofan í skúffu í rúm tvö ár, lag
sem ég vissi ekki alveg hvað ég ætlaði
að gera við. En þegar Ragnhildur kom
með þá skýringu að þetta væri ekki
eurovisionlag heldur um Eurovision
þá kom hugmyndin,“ útskýrir hann
alsæll. Páll Óskar kemur til með að
frumflytja lagið á sviðinu í Háskóla-
bíói næstkomandi laugardag, en þá
fer fyrra undanúrslitakvöld Söngva-
keppni Sjónvarpsins fram.
„Lagið fjallar um okkur Íslendinga
í Eurovision og viðbrögð þjóðarsálar-
innar við keppninni. Gleðibanka syn-
drome-ið svokallaða sem við höfum
haft í gegnum tíðina, þar sem við
erum alltaf svo bjartsýn og förum
fljótt að hugsa um hvar við getum
haldið keppnina. En auð vitað er betra
að við séum að sýna þessi viðbrögð
heldur en að senda keppanda út með
hálfvolgum viðbrögðum þjóðarinnar.
Við vinnum þetta fyrirfram er frábært
lag fyrir okkur hérna heima og okkar
eigin þjóðarsál,“ segir Páll Óskar,
aðspurður um inntak lagsins.
Í ljósi þess hve tímaramminn var
þröngur fékk Páll Óskar þá Braga
Valdimar Skúlason og Sigurð Sig-
tryggsson til að aðstoða sig við að
klára lagið.
„Já ég hafði samband við Braga
Valdimar og hann dró textann að
landi og betrumbætti af sinni rómuðu
snilld. Demóið af laginu gerði Little
Boots fyrir tveimur árum. Svo sáum
við Siggi Sigtryggsson um að endurút-
setja lagið og hljóðrita upp á nýtt. Ég
er hæst ánægður með þetta lag. Það
hefur gengið vel að vinna það síðustu
vikur og ég er meira að segja búinn að
taka upp myndband við lagið,“ segir
Páll Óskar ánægður með útkomuna.
Margt hefur drifið á daga poppar-
ans sívinsæla undanfarnar vikur,
en auk þess að semja nýtt lag, þá
var hann valinn söngvari ársins á
Hlustendaverðlaununum sem fram
fóru í Háskólabíói um síðastliðna
helgi. Verðlaunin eru uppskeruhá-
tíð íslenskra tónlistarmanna, þar sem
h l u s t -
e n d u r
Bylgjunnar,
FM 9 5 7 o g
X977 velja hverjir
þóttu standa sig best á
liðnu ári.
„Það var mjög óvænt, mig grunaði
ekki að ég yrði valinn úr þessum
flotta hópi söngvara sem voru til-
nefndir svo ég er alveg innilega þakk-
látur. Þetta var frábært kvöld og vel
að þessu staðið. Þessi hlutsenda net-
kosning er nauðsynlegt mótvægi við
íslensku tónlistarverðlaunin sem
óneytanlega hefur aðrar áherslur.
Þetta sýnir að það er pláss fyrir alla
í bransanum þar sem allir fá sinn
stökkball til að njóta sín, skapa sína
list og koma henni á framfæri,“ segir
Páll Óskar að lokum.
gudrunjona@frettabladid.is
Syngur um Gleðibanka-syndrome
íslensku þjóðarinnar
„Mig grunaði ekki að ég yrði valinn úr þessum flotta hópi söngvara,“
segir nýkjörinn söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum, Páll
Óskar Hjálmtýsson, sem hefur í nægu að snúast. Næst á dagskrá
er að frumflytja afmælislag Eurovision á fyrra kvöldi undan-
keppninnar sem fram fer á laugardaginn kemur í Háskólabíói.
Páll Óskar var valinn söngvari ársins á Hlustendaverðlaununum sem afhent voru í Háskólabíói um síðastliðna helgi. Fréttablaðið/Daníel ÞÓr Ágústsson.
nýjasta lag Páls
Óskars, Við vinnum
þetta fyrirfram, fjallar um
þátttöku íslendinga í eurovision.
2 . f e B R ú A R 2 0 1 6 Þ R i ð J U D A G U R26
0
1
-0
2
-2
0
1
6
2
2
:3
2
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
8
5
5
-F
1
9
4
1
8
5
5
-F
0
5
8
1
8
5
5
-E
F
1
C
1
8
5
5
-E
D
E
0
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
_
2
_
2
0
1
6
C
M
Y
K