Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 19

Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 19
Dýrt er núorðið að brjóta framrúðu. M args konar ný- tísku tæknibúnað- ur og öryggiskerfi í bílum hafa gert framrúðuskipti bæði erfið, flókin og dýr. Eftir fram- rúðuskipti er mikilvægt að ganga frá og stilla skynjara og mynda- vélar í nýju framrúðunni rétt svo allt virki eins og áður. Mikill búnaður tengdur í framrúðu Í nýjum og nýlegum bílum er bún- aður eins og regnskynjari, vega- skiltalesari, radar- eða myndavél- araugu sem lesa kant- og miðlínur á yfirborði vega. Búnaðurinn getur nauðhemlað ef hindrun er fram- undan og ökumaður bregst ekki við. Hann getur stjórnað hraða bílsins og fjarlægð í næsta bíl fyrir framan ef kveikt er á skynvædd- um skriðstillinum. Allur þessi bún- aður sem fyrir fáum árum þótti sem fjarlægur framtíðardraumur er löngu kominn í bílana og gerir sannarlega sitt gagn. En gaman- ið kárnar verulega ef framrúð- an brotnar og reikningurinn fyrir rúðuskiptin birtist. Getur tvöfaldað kostnaðinn Algengt grunnverð á nýrri fram- rúðu í bíl er frá um 100 þúsund krónum. En ef um er að ræða að koma skynjurunum fyrir aftur, tengja þá og/eða endur- stilla eða endurforrita svo bún- aðinn, getur kostnaðurinn auð- veldlega tvöfaldast. Steinvalan sem skaust undan bílhjóli í rúð- una hjá manni getur því orðið ærið dýr þegar upp er stað- ið. Framrúða er í dag annað og meira en venjuleg glerrúða. Nú- tíma framrúður eru hljóð- og hitaeinangrandi, þær sía tiltek- in ljóstíðnisvið sólarljóssins til þæginda fyrir þá sem í bílnum eru. Inni í glerinu geta svo verið hitavírar og stundum líka loft- netsvírar. Krefst verkkunnáttu Því til viðbótar er margskonar tæknibúnaður inni í glerinu, eins og endurvarp hraðamælis og allskonar annarra upplýs- inga. Hluti framrúðunnar sem snýr að ökumanni er þannig eins konar sjónvarpsskjár og þá eins gott að þeir sem skipta um rúðuna ef hún brotnar, kunni til verka og geti endurstillt allan þennan búnað í nýju rúðunni. Það eru einmitt þessar endur- stillingar og uppfærsla hugbún- aðar sem getur hækkað vinnu- liðinn hvað mest. Gagnslaus búnaður Ef skipta þarf um framrúðuna er því mikilvægt að þeir sem það geri viti sínu viti. Sá öryggisbúnaður sem nefndur hefur verið og er í og á framrúðunni er vissulega ágæt- ur og enginn vafi á að hann getur stórminnkað hættu á slysum. En til þess þarf hann að virka rétt. Bún- aðurinn er gagnslaus ef hann er óvirkur að meira eða minna leyti og ergilegt að þeir sem skiptu út rúðunni reynist síðan ekki kunna að koma búnaðinum aftur í gang. Framrúðuskipti dýr vegna nýrrar tækni Mikill öryggis- og þægindabúnaður er tengdur í framrúður nýtísku bíla og það krefst verkkunnáttu að tengja hann allan aftur. Eitthvað sem ekki var nauðsynlegt fyrir örfáum árum en er mikilvægt nú. Bílar BETRA START MEÐ EXIDE RAFGEYMUM Endingargóðir og sterkbyggðir rafgeymar fyrir flestar gerðir mótorhjóla. Veldu þaulreynda vöru frá gæðaframleiðanda. PI PA R\ TB W A • SÍ A • 13 18 58 Exide rafgeymarnir fást hjá: 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 3 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 6 -0 0 6 4 1 8 5 5 -F F 2 8 1 8 5 5 -F D E C 1 8 5 5 -F C B 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.