Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 46

Fréttablaðið - 02.02.2016, Síða 46
Dreifing dreifing@postdreifing.is Ef blaðið berst ekki 800 1177 Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja Jóns Sigurðar Eyjólfssonar Bakþankar Manstu hvað við höfðum miklar áhyggjur af því að verða hornreaka í hruninu? Reyndin varð síðan sú að okkar biðu meiri vinsældir en við höfðum áður þekkt. Hvernig stóð á því? Jú, mann­ fólkið dýrkar harmleiki og þarna buðum við heimsbyggðinni uppá einn slíkan af bestu gerð. Við mannfólkið erum nefnilega ekki svo ólík Bakkusi hvað þetta varðar. Hann fleytir jafnvel mestu skussum meðfram himinskautum bara til að sjá þá svo þunna, lágreista og eymdarlega næsta dag. Við höfum sama háttinn á. Við tendrum uppí stjörnum og bíðum svo í von um að sjá þær springa, krýnum kónga í von um að geta krossfest þá einn daginn og dags­ daglega skemmtum við okkur við það að breyta hetjum í skúrka. Við reistum Kim Kardashian til himna svo við getum síðan hneykslast á því hvað hún væri orðin asskoti mikil um botninn. Ef við viljum mikið fjör köllum við hana dræsu. Og þegar Vigdís Hauksdóttir opnar munninn, þá er nú aldeilis hægt að sópa svekk­ elsi lífsins fram af tungunni. Nú, svo er ekki ónýtt þegar hægt er að reka naglana í frelsara einsog Andra Snæ, við héldum að tækifærið ætlaði aldr­ ei að gefast. Og ekki leiðist okkur nú að taka útrásarvíkingana af himna­ festingunum og jarða þá. Harmleikir á við þessa hafa skemmt mannskepnunni frá örófi alda og heimsbyggðin sýnir engin merki þess að vaxa uppúr leiknum. Hún hefur til dæmis aldrei verið jafn hamingjusöm og sumarið 1998 þegar Clinton skemmti okkur með brestum sínum. Það er því mikilvægt fyrir þingmenn, sem mikið ræða um Bakkus og búðir þessa dagana, að muna eftir því að byrja á réttum enda. Málið snýst ekki um það hvort mönnum sé óhætt að mæta Bakkusi í matvöruverslunum heldur hitt: er það á Bakkus leggjandi að mæta okkur bæði í Hagkaupum og Bónus? Að mæta Bakkusi í búð Opið allan sólarhringinn í Engihjalla, Vesturbergi og Arnarbakka Höfuðborgarsvæðið, meðallestur kvenna á tölublað, 18–49 ára. Prentmiðlakönnun Gallup, okt.–des. 2015. YFIRBURÐIR Fréttablaðsins staðfestir 50,7% 18,7% FB L M BL Allt sem þú þarft ... 0 1 -0 2 -2 0 1 6 2 2 :3 2 F B 0 4 8 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 8 5 5 -D D D 4 1 8 5 5 -D C 9 8 1 8 5 5 -D B 5 C 1 8 5 5 -D A 2 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 4 8 s _ 1 _ 2 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.