Fréttablaðið - 04.11.2014, Síða 4
4. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 4
166 manns búa á Raufar-höfn en voru 390
aldamótaárið 2000.
Í dag búa 93 karlar í þorpinu en kon-
urnar eru 73 talsins.
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS– AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is,
Hlynur Þór Steingrímsson hlynur@365.is, Laila Awad laila@365.is, Sverrir Birgir Sverrisson sverrirbs@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
FÓLK/LÍFIÐ/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Kolbeinn Kolbeinsson kkolbeins@365.is,
FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SVONA ERUM VIÐ
Elísabet Margeirsdóttir
veðurfréttamaður
Veðurspá
VÍÐA GOSMÓÐA Ljómandi fínt veður á landinu í dag, hæg suðlæg átt og bjartviðri
en við þessar aðstæður má gera ráð fyrir gosmóðu víða um land. Hvessir af suðaustri á
morgun með rigningu eða slyddu sunnan- og vestanlands.
-1°
3
m/s
1°
3
m/s
3°
5
m/s
7°
9
m/s
10-18 m/s
síðdegis,
hvassast
syðst.
8-15 m/s.
Gildistími korta er um hádegi
16°
25°
11°
12°
18°
11°
16°
13°
13°
26°
12°
20°
20°
17°
14°
14°
12°
14°
2°
3
m/s
2°
2
m/s
-3°
3
m/s
-2°
5
m/s
-2°
4
m/s
0°
4
m/s
-4°
7
m/s
6°
7°
1°
4°
5°
8°
3°
5°
4°
4°
Alicante
Aþena
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
FIMMTUDAGUR
Á MORGUN
FRAKKLAND, AP Fjöldi tilvika óút-
skýrðs og ólöglegs yfirflugs dróna
(ómannaðra smáflugvéla) yfir
tugum kjarnorkuvera í Frakk-
landi hafa hrundið af stað sér-
stakri rannsókn yfirvalda örygg-
is- og varnarmála þar í landi.
Vaknað hafa spurningar um
öryggismál, þar sem Frakkar
reiða sig mestanpart á kjarnorku
við orkuframleiðslu.
Umhverfisverndarsinnar hafa
sagt þróun mála vekja ugg. Frá
því í október hafa yfirvöld talið að
minnsta kosti 15 tilvik
þar sem flogið hefur
verið yfir kjarnorku-
ver á fimm mismun-
andi stöðum í landinu,
að því er fram kom í
máli fulltrúa stjórn-
valda í gær.
Ekki er vitað hver eða hverj-
ir standa á bak við yfirflugið eða
hvað liggur þar að baki. Ýmsar
hugmyndir hafa þó verið viðrað-
ar í þeim efnum, svo sem að þetta
gæti verið könnunarflug hryðju-
verkamanna, iðnað-
arnjósnir, aðgerð-
ir stjórnmála- eða
umhverfisverndar-
hreyfinga, eða jafn-
vel að hér gæti verið
um ólöglegt grín
spéfugla að ræða.
Segolene Royal, ráðherra
umhverfis- og orkumála í Frakk-
landi, segir engar vísbendingar
um hver kunni að standa á bak við
drónaflugið.
- óká
VÖRUHÓTEL – LAGERPLÁSS TIL LEIGU
Í SKÚTUVOGI ÁSAMT SKRIFSTOFUHÚSNÆÐI
• Lagerhúsnæði m/án þjónustu,
12m lofthæð, sprinkler
• Í boði er sveigjanleg
lagerstærð
• Glæsilegar skrifstofueiningar
í stærðum: 162m², 287m²
eða samtals 450m².
• Lyftuhús og næg bílastæði
Frábært tækifæri fyrir t.d. litlar og millistórar heildsölur sem vilja komast í hringiðu
flutningastarfssemi landsins og fá um leið fullan sveiganleika í lagerstærð. Til boða
stendur að leiga rými undir ákveðinn brettafjölda. Möguleiki að leigja eingöngu rými
í vöruhóteli eða skrifstofur. Skrifstofueiningarnar eru með vönduðum innréttingum
og skiptast í lokaðar skrifstofur, opin vinnurými og vel útbúin fundarherbergi.
Áhugasamir hafið samband
við sölumenn okkar.
s. 511-2900
MENNING Stærsta breytingin á tekjumód-
elum tónlistarmanna síðustu árin er það að
með minnkandi diskasölu er meiri áhersla á
tónleikahald, segir Sigtryggur Baldursson hjá
Útón, Útflutningsskrifstofu íslenskrar tón-
listar.
Sigtryggur segir að þetta sé hluti af þeirri
ástæðu að sprenging hefur orðið í tónleika-
haldi íslenskra tónlistarmanna á erlendri
grundu. „Menn þurfa bara að komast út að
spila,“ segir hann. Íslenskir tónlistarmenn
hafi tekið þátt í þeirri þróun eins og aðrir. Sig-
tryggur tók þátt í umræðufundi um fjármál í
íslenskri tónlist á vegum VÍB, eignastýringa-
þjónustu Íslandsbanka, í gær.
Hann segir í samtali við Fréttablaðið að
íslenskir tónlistarmenn taki sífellt meiri þátt í
tónleikahaldi erlendis. En víða í öðrum löndum
hafi menn einnig orðið varir við hið sama.
„Aukningin hefur kannski verið sérstak-
lega áberandi hérna af því að þetta er svo lítill
markaður og þetta er ákveðin vinna sem er að
skila sér,“ segir hann. Hann segir að margir
aðilar hafi komið að tengslamyndunarvinnu og
markaðssetningarvinnu sem sé farin að skila
sér. Iceland Airwaves er gott dæmi. Útón líka
og svo geirinn sjálfur,“ segir Sigtryggur.
Til dæmis um aukinn áhuga á íslenskri tón-
list bendir Sigtryggur á að Ísland sé fókusland
á Eurosonic-hátíðinni 2015. Hún verður haldin
í Hollandi. „Það voru yfir 70 íslenskir lista-
menn sem sóttu um fyrir fyrsta september og
það er nú þegar búið að bjóða sextán íslensk-
um listamönnum þarna inn,“ segir Sigtryggur.
Sigtryggur segir að það sem skorti hér á
Íslandi einna helst séu innviðir til þess að hægt
sé að reka tónlistariðnaðinn út frá viðskiptaleg-
um forsendum héðan frá Íslandi. Þetta þurfi að
gera með því að bæta viðskiptastjórn tónlistar-
mannanna.
Útón sé í mjög virku sambandi við Maríu Rut
Reynisdóttur, sem er meðal annars umboðs-
maður Ásgeirs Trausta tónlistarmanns. Henni
hafi gengið vel í viðskiptastjórninni. „Ólafur
Arnalds er dæmi um „self-management“ sem
er að virka vel,“ segir Sigtryggur. Þá bendir
hann á að Sykurmolarnir hafi stjórnað sínum
eigin málum fyrir 25 árum og það hafi gengið
vel. Sigtryggur var einmitt sjálfur trommu-
leikari í Sykurmolunum „En við vorum að
vinna með mjög góðu fólki í Englandi,“ segir
Sigtryggur. Tónlistarmennirnir þurfi alltaf að
vinna með sterkum viðskiptaaðilum.
Sigtryggur segir að Útón hafi unnið mark-
visst að því að efla viðskiptastjórn, meðal ann-
ars með fræðslufundum hér á landi.
jonhakon@frettabladid.is
Sprenging í tónleikahaldi
Íslendinga í útlöndum
Framkvæmdastjóri Útón segir að sprenging hafi orðið í tónleikahaldi íslenskra hljómlistarmanna erlendis.
Vinna við markaðssetningu er sögð hafa skilað sér. Áhersla á tónleikahald hefur aukist með minnkandi diska-
sölu. Sextán atriðum frá Íslandi hefur verið boðið að taka þátt í Eurosonic-hátíðinni í Hollandi á næsta ári.
Það voru yfir 70 íslenskir lista-
menn sem sóttu um fyrir fyrsta
september og það er nú þegar búið að
bjóða sextán íslenskum listamönnum
þarna inn
Sigtryggur Baldursson,
framkvæmdastjóri Útón
SPENNANDI TÍMAR FRAM UNDAN Sigtryggur Baldursson segir að búið sé að bjóða sextán íslenskum tónlistar-
mönnum að taka þátt í Eurosonic-hátíðinni 2015. FRÉTTABLAÐIÐ/ANDRI MARÍNÓ
ÞJÓNUSTA Fjárfestar vilja byggja
veitingastað á vegamótum við
Hrafnagjá í austanverðum þjóð-
garðinum.
Þingvallanefnd afgreiddi erindið
ekki á síðasta fundi sínum. „Nú er
unnið að stefnumótun um hvaða
þjónustu eigi að veita í þjóðgarð-
inum en engar ákvarðanir hafa
verið teknar um ýmis erindi sem
borist hafa til Þingvallanefnd-
ar,“ segir Ólafur Örn Haraldsson
þjóðgarðsvörður. - gar
Fjárfestar vilja Þingvallalóð:
Veitingastaður
við Hrafnagjá?
HÓTEL VALHÖLL Stórbruni varð á Þing-
völlum í júlí 2009. FRÉTTABLAÐIÐ/ARNÞÓR
STJÓRNSÝSLA „Engin leynd hvíldi
yfir innflutningi vopnanna gagn-
vart tollgæsluyfirvöldum,“ segir
Landhelgisgæsl-
an í yfirlýsingu
vegna tollaf-
greiðslu hríð-
skotabyssa frá
Noregi.
Landhelgisgæsl-
an segir toll-
verði hafa toll-
skoðað vélina
sem flutti byss-
urnar til Íslands. „Vopnin hafa
ekki enn verið tollafgreidd inn í
landið. Fullt samráð verður haft
við tollstjóra um þá afgreiðslu,“
segir stofnunin. Fulltrúar hennar
eiga í dag að skýra byssumálið
öðru sinni hjá allsherjarnefnd
Alþingis. - gar
Kallaður aftur fyrir Alþingi:
Lofar samráði
við tollstjórann
GEORG
LÁRUSSON
BELLEVILLE-SUR-LOIRE-VERIÐ Litlum
flygildum hefur ítrekað verið flogið yfir
kjarnorkuver í Frakklandi. NORDICPHOTOS/AFP
Yfirvöld öryggis- og varnarmála í Frakklandi kanna dularfullar ferðir dróna yfir kjarnorkuverum:
Drónaflug yfir orkuverum skelfir Frakka
DRÓNAFLUGVÉL