Fréttablaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 22
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
2 4. nóvember 2014
www.visir.is/bilar
BÍLAR Umsjón blaðsins Finnur Thorlacius
finnurth@365.is
Útgáfufélag
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24,
105 Reykjavík,
sími 512 5000
Auglýsingar
Atli Bergmann
atlib@365.is
Sími 512 5457
Hönnun
Silja Ástþórsdóttir
siljaa@frettabladid.is
Þ
ýski lúxusbílafram-
leiðandinn BMW
verður 100 ára eftir
tvö ár, en BMW er
hvað þekktast fyrir
framleiðslu á lúxus-
fólksbílum með
mikla akstursgetu. Nú eru liðin
15 ár síðan BMW setti á mark-
að sinn fyrsta jeppa, BMW X5,
en í dag telur jeppa- og jepp-
lingalína BMW 5 bílgerðir, X1,
X3, X4, X5 og X6. Á þessum
15 árum hefur BMW selt sam-
tals 3,3 milljónir X-bíla og sam-
svarar það meira en tveggja ára
heildarsölu BMW í fyrra. Marg-
ir aðdáendur BMW settu spurn-
ingarmerki við framleiðslu X5-
jeppans í upphafi en BMW hefur
aldeilis haslað sér völl í flokki
jeppa og jepplinga þessi síð-
ustu 15 ár og vega þeir þungt í
heildar framleiðslunni.
Saga X-bíla BMW eldri
Saga X-bíla BMW er þó eldri
en X5. Árið 1980 setti BMW á
markað BMW 325ix, fjórhjóla-
drifinn fólksbíl og stóð x-ið fyrir
fjórhjóladrif, eins og það gerir
enn. Allir fólksbílar BMW sem
eru búnir fjórhjóladrifi hafa
síðan borið stafinn x í nafni sínu.
BMW X5 var sá eini í flokki nú-
verandi X-bíla BMW í fimm ár,
en árið 2004 kynnti BMW til sög-
unnar X3-jepplinginn og var
hann einn fyrsti lúxusjeppling-
urinn sem kom fram og tals-
vert löngu á undan Audi Q5- og
Mercedes Benz GLK-jepplingun-
um, sem eru hans helstu keppi-
nautar. BMW kom fram með X6
árið 2008 og X1 árið 2009.
Nýir X4 og X7
Fyrir skömmu kynnti BMW
síðan X4 og hefur hann sama
„coupe“-lag og X6 jeppinn, en er
jepplingur á stærð við X3. BMW
kom svo fram með M-útgáfur
af X5 og X6 jeppunum, afar öfl-
uga bíla með 555 hestafla V8-
vélum. BMW X5 er nú af þriðju
kynslóð og X3 og X6 eru nú af
annarri kynslóð. BMW ætlar að
bæta enn einum bíl við blóm-
lega X-flóruna því X7 er á leið-
inni og verður honum beint sér-
staklega að Bandaríkjamarkaði
líkt og X5- og X6-bílarnir voru
hugsaðir í upphafi. X7 kemur
á markað árið 2016 og þá af ár-
gerð 2017 og verður hann smíð-
aður í Spartanburg í S-Karól-
ínuríki Bandaríkjanna. X7 verð-
ur með öflugum 6 og 8 strokka
vélum og að sjálfsögðu stærri
en X5 og X6 og mun keppa við
stærstu jeppa Audi og Mercedes
Benz, sem og stóra jeppa banda-
rísku framleiðendanna.
BMW HEFUR SMÍÐAÐ
JEPPA Í 15 ÁR
Margir urðu hissa þegar BMW setti fyrsta jeppann á markað
en fyrirtækið hefur síðan selt 3,3 milljónir jeppa og jepplinga.
Eldsneytisverð hefur lækkað
mjög hratt í heiminum undan-
farið og í síðustu viku varð meiri
lækkun á bensínverði í Banda-
ríkjunum en orðið hefur í meira
en tvö ár.
Þá lækkaði verð um 10 sent,
eða 12 krónur á aðeins einni
viku. Þar má á einstaka bensín-
stöðvum sjá svo lágt verð sem
2,70 dollara á gallon, eða 85
krónur á hvern lítra. Meðalverðið
í landinu er þó um 3,14 dollarar á
gallon, eða 99 krónur. Þetta lága
verð á eldsneyti gerir lítið til að
hvetja fólk vestanhafs til kaupa á
rafmagnsbílum og tvinnbílum og
það sést í sölutölunum undan-
farið. Tvinnbílar og rafmagnsbílar
hlaðast nú upp hjá bílaumboðum
þarlendis og framleiðendur þeirra
hafa neyðst til að lækka verðið til
að koma hreyfi ngu á sölu þeirra.
Framleiðendur lækka verðið
Nýlega lækkaði Ford verðið á
Ford Focus EV, sem gengur fyrir
rafmagni, um 6.000 dollara og
það sama gerði Nissan með Leaf-
bíl sinn fyrr á árinu. Toyota hefur
þurft að hækka afslátt á tvinn- og
rafmagnsbílum sínum úr 1.400
dollurum að meðaltali fyrir ári í
2.300 dollara nú. Ford hækkaði
afslátt á rafmagnsútgáfu C-Max
úr 2.650 dollurum í 4.900 doll-
ara. Þessar aðgerðir Toyota og
Ford hafa ekki orðið til að auka
sölu þessara bíla, heldur þvert á
móti.
Sala eyðslufrekra pallbíla
hefur í staðinn verið í miklum
blóma og er söluaukning þeirra
talin í tugum prósenta hjá öllum
framleiðendum.
Bílaframleiðendum er gert af
yfi rvöldum að framleiða sífellt
eyðslugrennri bíla og því streyma
nú sífellt fleiri gerðir rafmagns-
og tvinnbíla frá þeim, sem illa
gengur að selja í Bandaríkjunum.
Sú þróun hefur þó ekki orðið í
Evrópu, en þar heldur sala raf-
magns- og tvinnbíla áfram að
aukast enda er eldsneytisverð
í álfunni miklum mun hærra en
í Bandaríkjunum, vegna hárra
skatta á eldsneyti.
Lækkun eldsneytisverðs
skaðar tvinn- og rafmagns-
bílasölu vestanhafs
Eitt það óskemmtilegasta í líf-
inu er að vera fastur í umferð-
arteppu og vita ekki hvenær úr
henni leysist. Það er ekki bara
slæmt fyrir sálarlífið heldur
kostar það bæði fólk og þjóð-
félagið ógrynni fjár.
Meðalheimili í Bandaríkj-
unum eyðir aukalega um 1.700
dollurum á hverju ári vegna um-
ferðartafa og í landinu öllu kost-
uðu þær 15.000 milljarða króna
á síðasta ári. Eins og þetta séu
ekki nógu slæmar fréttir þá er
því spáð að enn muni ástand-
ið versna og að kostnaður hvers
heimilis muni hækka um 50% til
ársins 2030.
Verst í Kaliforníu
Mestar umferðartafir eru í
Kaliforníuríki og nemur kostn-
aðurinn við þær fimmtungi af
öll kostnaðinum í landinu. Þar
situr meðalmaðurinn 65 klukku-
tíma á ári fastur í umferðinni
og víst er að á meðan skapa
íbúar þar ekki mikið virði, held-
ur versnar skap þeirra aðeins á
meðan.
Þegar talað er um kostnað af
umferðarteppum er átt við þann
viðbótareldsneytiskostnað sem
af því hlýst, tapaðar vinnustund-
ir og hækkað vöruverð sem einn-
ig hlýst af teppunum. Auk þessa
stafar mikil mengun af slíkum
teppum og kostnaðarsamar að-
gerðir sem hið opinbera stend-
ur straum af bætast við. Það er
stofnunin Centre for Econ omics
and Business Research sem
reiknað hefur út þennan kostnað
í Bandaríkjunum.
Umferðarteppur kosta Banda ríkja-
menn 15.000 milljarða króna árlega
Könnun meðal 4.300 ungmenna
í Bandaríkjunum leiddi í ljós að
það eru 39% meiri líkur til þess
að þau kaupi bíla frá sama bíla-
framleiðanda og foreldrar þeirra
gerðu, en ekki frá öðrum fram-
leiðendum. Þessar niðurstöður
benda enn eina ferðina til þess
hve uppeldi barna hefur mikil
áhrif á gerðir þeirra og það langt
fram eftir aldri. Hvað bandarísku
bílaframleiðendurna varðar var
mest tryggð við bíla frá General
Motors og var þá ekki greint á
milli Chevrolet, Cadillac, Buick
eða GMC, heldur voru miklar líkur
til þess að ungmennin keyptu
bíl frá einhverjum af þessum
framleiðendum ef foreldrarnir
áttu bíl frá GM. Þessar niður-
stöður gætu breytt því hvernig
bílaframleiðendur markaðssetja
og verðleggja bíla sína til ungs
fólks. Könnun sem þessi hefur
ekki áður verið gerð og þykja
niðurstöður hennar forvitnilegar,
en koma kannski ekki svo mikið
á óvart.
Ungmenni kaupa sama
bílamerki og foreldrarnir
BMW X5 var fyrsti jeppi þýska lúxusbílaframleiðandans.
Ford Focus EV í hleðslu.
Þung umferð á bandarískri hraðbraut.
Börn erfa skoðanir foreldra sinna á bílum.