Fréttablaðið - 04.11.2014, Blaðsíða 24
BÍLAR
FRÉTTABLAÐIÐ
4 4. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR
Það gengur ekkert allt of vel hjá
suður-kóreska bílaframleiðand-
anum Hyundai en hagnaður
hans minnkaði um 29% á þriðja
órðungi ársins. Það er bæði
hátt gengi s-kóreska wonsins
og dræm sala bíla Hyundai sem
skýrir þessa niðurstöðu. Hagn-
aðurinn nam þó 173 milljörðum
króna, en spáð hafði verið 204
milljarða hagnaði. Hlutabréf í
Hyundai hafa lækkað um 32% á
þessu ári og er það mesta lækkun
nokkurs af stóru bílaframleiðend-
unum á árinu. Gengi wonsins
hefur ekki verið skráð hærra
gagnvart dollar á þriðja órðungi
ársins í ár síðan árið 2008.
Búist er áfram við sterku
gengi wonsins út árið og útlitið
því ekkert of bjart fyrir Hyundai.
Mjög hefur dregið úr söluaukn-
ingu Hyundai, bæði heima fyrir
og á hinum mikilvæga markaði í
Bandaríkjunum, og er þar helst
dræmri sölu á lykilbílnum Sonata
um að kenna. Hyundai þurfti að
glíma við verkföll starfsmanna
heima fyrir og á það einnig þátt
í þessu gengi nú, þrátt fyrir að
verkföll hafi haft enn meiri áhrif
fyrir ári.
29% lækkun hagnaðar
hjá Hyundai
Japanska fyrirtækið Mitsubishi
framleiðir mun fleira en bíla og
reyndar er bílaframleiðslan að-
eins lítill hluti af framleiðslu
þessa risafyrirtækis.
Nýjasta afurð þess er flug-
vél sem ætluð er til hefðbund-
inna farþegaflutninga, en vélin
getur tekið 70 til 90 farþega.
Smíði hennar er talsvert á eftir
áætlun, en meiningin var að
markaðssetja hana fyrir fjór-
um árum.
Flugvélin heitir MRJ og stend-
ur það fyrir Mitsubishi Regional
Jet og eins og nafnið bendir til
er hún ætluð til farþegaflutninga
í innanlandsflugi. Hún er 20%
eyðslugrennri en aðrar flugvél-
ar af þessari stærð. Vélin er með
tveimur Pratt & Whitney-þotu-
hreyflum með forþjöppum sem
skila 17.600 punda þrýstingi.
Ráðgera sölu á 5.000 vélum
Mitsubishi ætlar að selja 5.000
svona vélar á næstu 20 árum,
svo það eru ekki litlar áætlan-
ir sem fyrirtækið hefur með
smíði vélarinnar. Japanar eru
ekki þekktir fyrir smíði flug-
véla og síðast voru framleidd-
ar farþegavélar þar fyrir 40
árum, en á árunum 1962 til 1974
voru smíðaðar þar NAMC YS-1-
vélar sem leystu af hólmi hæg-
fleygar DC-3 vélar sem lengi vel
höfðu þjónað farþegaflutning-
um í Japan.
Drægni nýju vélarinnar er
1.780 sjómílur. Það kostaði Mit-
subishi 200 milljarða króna að
þróa þessa vél og er hún tækni-
lega mjög vel búin.
Borist hafa 407 pantanir í
vélina nú þegar, eða um 8% af
áætlaðri næstu 20 ára smíði
hennar.
Mitsubishi í flugvélabransann
Sixtusarkapellan í Páfagarði
hefur aldrei verið leigð út og er
Porsche fyrsta fyrirtækið sem
það gerir.
Porsche ætlar að bjóða
40 gestum fyrir 5.000 evra
aðgangseyri á mann að hlusta
þar á klassíska tónlist, halda þar
himneska matarveislu og leyfa
þeim í leiðinni að njóta listaverka
Michelangelos og Raphaels.
Það er Porsche Travel Club sem
stendur að þessum viðburði.
Núverandi páfi vill leyfa svona
viðburði í kapellunni og láta
ágóðann renna til góðgerðar-
starfs fyrir fátæka og heimilis-
lausa. Þegar hann var kjörinn
kallaði hann eftir breyttri stefnu
kirkjunnar og að hún ætti að
styðja við fólk sem ætti í vanda
og er þetta ein birtingarmynd
þess. Þess má geta að páfi nn býr
sjálfur í lítilli íbúð án alls íburðar,
ólíkt forverum sínum.
Porsche vill ekki gefa það upp
hverjir verði viðstaddir þennan
menningarviðburð en er stolt
af framlagi sínu til þeirra minna
megandi. Á hverju ári heimsækja
um 6 milljónir manns Sixtusar-
kapelluna.
Hljómleikar hafa áður verið
haldnir í kirkjunni en þeir hafa
hingað til verið haldnir í tengslum
við kirkjulegt starf þar.
Porsche leigir
Sixtusarkapelluna
Tvinnbíllinn BMW i8 er 357
hestöfl og ári sprækur bíll sem
fer sprettinn í hundraðið á 4,1
sekúndu. Engu að síður ætlar
BMW að he a framleiðslu á BMW
i8S-útgáfu bílsins sem verður yfi r
500 hestöfl.
Líklega verða framleiddar tvær
gerðir, önnur með 320 hestafla
brunavél og 204 hestafla rafmót-
orum, eða samtals 524 hestöfl.
Hin gerðin væri þó öflugri, með
480 hestafla brunavél og 109
hestafla rafmótorum, eða sam-
tals 589 hestöfl. Þessar gerðir
i8 færu nær því að skreppa að
hundrað kílómetra hraða á 3
sekúndum, enda myndu þær fá
breiðari dekk og undir-
vagn úr koltre um.
Með þessum gerðum er i8 orðinn
ógnarkröftugur sportbíll enda
er útlit hans í þá veruna. BMW
hyggst hrinda þessu í fram-
kvæmd í tilefni 100 ára afmælis
fyrirtækisins árið 2016 og koma
þessar gerðir i8 á markað á því
ári.
Það er ekki M-deild BMW sem
sjá mun um þessar breytingar,
heldur er það i-deild fyrirtækisins
sem hefur með smíði rafmagns-
bíla og tvinnbíla BMW að gera.
Eitthvað hefur þetta örugglega
líka að gera með það að yfi rmað-
ur þeirrar deildar er fyrrverandi
starfsmaður Ferrari.
Öflugri BMW i8 yfir
500 hestöflin
P
orsche mun kynna
þessa viðhafnarútgáfu
Pan amera bílsins, sem
aðeins verður fram-
leiddur í 100 eintök-
um, á bílasýningunni í
Los Angeles sem hefst
nú í mánuðinum. Þar fer eng-
inn letingi því hann verður með
570 hestafla vél, enda er þessi
bíll byggður á Panamera Turbo
S. Hann er af lengri gerð Pan-
amera og því er aftursætisrým-
ið af stærri gerðinni. Bíllinn fær
sérstaka tveggja lita sprautun
þar sem svartur litur rennur út í
heslihnetubrúnan. Allir bílarnir
eru handsprautaðir. Að innan er
glæsileikinn meiri heldur en áður
hefur sést í Panamera og eðal-
leðrið sem notað er í bílnum er í
sama lit og heslihnetubrúni litur-
inn að utan.
Smíðaður af Porsche
Exclusive factory
Aftursætisfarþegar geta notið
margmiðlunarkerfis með 10,1
tommu stórum skjáum sem festir
eru aftan á framsætin. Er í þeim
innbyggt DVD-drif og skjár-
inn er snertiskjár. Á honum má
einnig fara á netið. Hver bíll er
merktur frá 1-100. Það er sér-
stök deild innan fyrirtækisins,
Porsche Exclusive Factory, sem
sér um smíði bílsins. Þessi deild
hefur verið starfrækt frá árinu
1986 en þar er kappkostað að
bjóða það allra flottasta sem nú-
tíminn getur boðið hverju sinni.
Með bílnum fæst sérhannað 5
hluta stórglæsilegt ferðatöskusett
sem saumað er úr sama leðri og
sætin í bílnum. Þessi lúxus allur
er alls ekki gefins því bíllinn mun
kosta litlar 249.877 evrur, eða
39 milljónir. Aðeins verða fram-
leiddir bílar með stýrið vinstra
megin svo ríkir Bretar gráta sig
í svefn eftir lesturinn um bílinn
góða. Þrátt fyrir allt afl bílsins
eyðir hann aðeins 6,4-10,1 lítra
bensíns, eftir því hvort honum er
ekið innanbæjar eða á utan, en
meðaleyðslan er uppgefin 7,9 lítr-
ar og mengunin er 245 g/km.
VIÐHAFNARÚTGÁFA
PORSCHE PANAMERA
Porsche Exclusive Factory er deild innan Porsche sem
smíðar sérútbúna Porsche-bíla.
Panamera.
Úr Sixtusarkapellunni.
Hyundai Sonata hefur selst illa á lykilmörkuðum.
MRJ stendur fyrir
Mitsubishi Regional Jet