Fréttablaðið - 18.11.2014, Qupperneq 10
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| FRÉTTIR | 10
Ábendingahnappinn má
finna á www.barnaheill.is
ÁNAUÐ Nærri 36 milljónir
manna eru enn hnepptir í þræl-
dóm, eða um hálft prósent af
íbúum jarðar. Þetta fullyrða
samtökin Walk Free, sem berj-
ast gegn þrælahaldi og hafa sent
frá sér skýrslu þar sem reynt er
að leggja mat á umfang vand-
ans.
Með þrælahaldi er þarna
átt við hvers kyns ánauð svo
sem mansal, nauðungarvinnu,
skuldafangelsi, nauðungarhjóna-
bönd og aðra kynferðisnauðung.
Verst er ástandið í Máritaníu,
ef miðað er við höfðatölu, en þar
teljast fjögur prósent íbúa lifa
við þrældóm, eða ríflega 155
þúsund manns. Pakistan kemur
þar á eftir og svo Haítí.
Flestir eru hins vegar ánauð-
ugir í Indlandi, eða rúmlega
fjórtán milljónir manna, sem þó
er lægra hlutfall en í Máritaníu.
Næstflestir eru í Kína, en ríf-
lega sextíu prósent ánauðugra
búa í sex löndum heims: Ind-
landi, Kína, Pakistan, Úsbekist-
an og Rússlandi.
Ríflega hálf milljón manna
telst búa við þrældóm í Evrópu-
ríkjum.
Alls náði rannsóknin til 167
landa, og kom þá í ljós að ekk-
ert þessara landa reyndist vera
alveg laust við þrælahald í
nútímaskilningi þess orðs.
Ástandið er einna skást á
Íslandi og Írlandi, þar sem 0,007
prósent íbúanna teljast búa við
þrælahald. - gb
Tugmilljónir í ánauð
Þrælahald í ýmsum myndum er stundað í öllum löndum heims. Samkvæmt nýrri
skýrslu er talið að um 36 milljónir manna búi enn þann dag í dag við ánauð.
Í skýrslu samtakanna kemur fram að ekkert landanna 167 er alveg laust við
þrælahald. Skást er ástandið þó á Íslandi og Írlandi, en skýrsluhöfundar segja
líklegt að 0,007 prósent íbúafjölda þessara landa séu þrælar. Samkvæmt því
eru um það bil 23 þrælar á Íslandi en 300 á Írlandi.
Þetta mat er byggt á upplýsingum úr ýmsum áttum, en varðandi Evrópu-
lönd almennt er vísað sérstaklega í grein úr tímaritinu Human Rights
Quarterly frá árinu 2013. Þegar sú grein er skoðuð kemur í ljós að teknar eru
tölur úr rannsókn á fjölda fórnarlamba mansals úr nokkrum Evrópulöndum,
og þær tölur eru svo notaðar til grundvallar sambærilegum tölum fyrir
önnur Evrópulönd. Þessar áætluðu tölur eru svo bornar saman við vitneskju
úr opinberum skýrslum og fréttir af fórnarlömbum mansals í einstökum
löndum Evrópu.
Varðandi Ísland sérstaklega er þar vísað í grein á fréttavef Iceland Review
árið 2012, en í þeirri grein er aftur á móti vísað í forsíðugrein Fréttablaðsins
frá 26. október 2012. Þar er rætt við Margréti Steinarsdóttur, framkvæmda-
stýru Mannréttindaskrifstofu Íslands, sem sagði átta fórnarlömb mansals
hafa leitað til skrifstofunnar það sem af var því ári, en alls hefði hún á átta
ára tímabili þar á undan rætt við meira en hundrað einstaklinga sem falla
undir skilgreininguna.
23 þrælar á Íslandi
VERST ER
ÁSTANDIÐ Í
MÁRITANÍU
Stuðningsfólk
forsetafram-
bjóðandans
Biram Dah
Abeid í Márit-
aníu í sumar.
Hann hefur
lengi barist
gegn þræla-
haldi, en tapaði
í kosningunum
fyrir Mohamed
Ould Abdel
Aziz, sem hefur
verið forseti
síðan 2009.
NORDICPHOTOS/AFP
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
Gjafakort
Borgarleikhússins
Gefðu töfrandi stundir í jólapakkann. Kortið
er í fallegum umbúðum, gildir á sýningu
að eigin vali og rennur aldrei út.