Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. nóvember 2014 | SKOÐUN | 13
kringumstæður sem eru kunn-
uglegar. Sumir telja að þarna sé
á ferðinni einhvers konar endur-
röðun á upplifunum okkar að degi
til og vinnsla með minni okkar.
Þekkt er að heilinn nýtir mismun-
andi hluta sína í svefni sem sést
þegar gert er heilalínurit og virðist
svo sem tilfinningar, upplifanir og
jafnvel verkir séu hluti af upplifun
þess sem dreymir.
Undirliggjandi ástand
Í samantekt um drauma almennt
kemur fram að undirliggjandi
ástand viðkomandi, spenna, sam-
skiptavandi, streita og fleiri atriði
hafi áhrif á það hvernig draum
viðkomandi upplifir. Jákvæðar og
neikvæðar hugsanir hafa þar að
því er virðist mikil áhrif. Búið er
að taka saman lista yfir þær teg-
undir drauma og tengingar sem
virðast algengastar og eru atriðin
alls 55 og má nefna í efsta sæti
skóla, kennara og lærdóm. Tölu-
vert er um að verið sé að eltast við
viðkomandi, meiða, detta, fljúga,
fara aftur í tíma, lenda í hamför-
um hvers konar, vera allsber og
ýmsir draumar tengdir kynlífi og
kynlífsathöfnum eru vel þekktir.
Blauti draumurinn þar sem ungir
karlar fá sáðlát tengist þessu og
aukningu í testósterón-magni
táningsins á uppvaxtarárum, en
konur upplifa slíkt hið sama að því
er talið er. Margvíslegar tegundir
martraða og truflana er þekkt að
komi fram tengt álagi, sjúkdóm-
um, lyfjum, áfengis- og vímuefna-
neyslu og þannig mætti lengi telja.
Vangaveltur um það hvers
vegna okkur dreymir eru marg-
ar og ástæðurnar ekki þekktar að
fullu, vinnsla með minnið eins og
sagði að ofan, túlkun á taugavið-
brögðum, undirmeðvitundin að
sýsla með þrár og óskir, einhvers
konar slökun og svo framvegis.
Svo virðist sem í draumsvefni sé
líkaminn líka lamaður að vissu
leyti og er vitað að taugar sem
næra vöðva líkamans bregðast við
þessu áreiti með því að leyfa ekki
eðlilegan framgang taugaboða.
Þannig sé komið í veg fyrir það að
við „lifum“ drauminn ef svo má að
orði komast og getum gert okkur
skaða, t.d. ef í draumi við erum að
flýja eða forðast eitthvað. Það að
ganga í svefni er hins vegar oft-
ast í NONREM ástandi þó svo það
sé til að rjúfa REM ástand með
hreyfingu er það mun sjaldgæfara.
Þannig má segja að þeir sem ganga
í svefni séu almennt ekki í drauma-
heimi á sama tíma. Við verðum að
sofa, það vitum við í dag mætavel
og einungis þannig getum við tekið
áskorunum næsta dags. Vísinda-
menn eiga þó enn töluvert langt í
land með að leysa ráðgátuna um
drauminn, ljóst er að drauma-
landið er sveipað dulúð sem gerir
það spennandi og seiðandi í senn.
Stundum er gott að geta ekki
útskýrt allt, dreymi ykkur vel!
Eflaust er hægt að leggja ýmsa
merkingu í fyrirsögn greinar-
innar. Félagi minn Andri Snær
skrifaði skemmtilega bók um það,
pólitíkusar ræða það stöðugt og
á undanförnum árum almenn-
ingur í verulega auknum mæli.
Flest höfum við skoðun á drauma-
landinu sem slíku, sér í lagi ef
það er Ísland sem fjallað er um.
Ég ætla hins vegar ekki að minn-
ast einu orði frekar á hið ástkæra
ylhýra land okkar, heldur einblína
á Draumalandið sjálft og ástæður
þess að við þurfum að eiga slíkt og
nýta það vel.
Þekkingu okkar á svefni hefur
fleygt fram á síðustu áratugum og
eru flestir sammála um að hann er
afar mikilvægur til að hvílast og
hlaða batteríin. Uppbygging svefns
er margslungið fyrirbæri og skipt-
ist í 4 dýptarstig sem sveiflast frá
léttum og yfir í djúpan svefn auk
þess að skilgreinast sem svefn
með og án svokallaðs REM (Rapid
Eye Movement), en á þeim tíma
er okkur að dreyma. Sá hluti tím-
ans þar sem okkur dreymir er um
fjórðungur af svefni fullorðinna
en allt að helmingur hjá börnum
okkar og eykst jafnan eftir því
sem nær dregur morgni eða vöku-
ástandi. Það er í hinu NONREM
ástandi sem við hvílumst og endur-
nærumst og hafa svefntruflanir
alla jafna mest áhrif á hinn djúpa
svefn sem fer fram á þriðja og
fjórða dýptarstigi. Þá er mikilvægt
að hafa í huga að eðlilegur svefn
breytist með aldrinum og er einnig
að vissu leyti einstaklingsbund-
inn, en fullorðnir þurfa á bilinu 7-8
klukkustunda svefn á sólarhring
að því er talið er, börn mun meira.
Flestir kannast við það að þá
dreymir, suma bara dagdrauma, en
þeir eru af öðrum toga. Einhverjir
muna vel það sem þá dreymdi, enn
aðrir hafa einungis óljósa tilfinn-
ingu fyrir því og í raun er talið
að 95% einstaklinga muni ekki
drauma sína, en ástæður þessa eru
ekki fullkunnar. Draumar geta
orðið mjög raunverulegir og jafn-
vel svo að viðkomandi vaknar upp
með andfælum. Í þeim rannsókn-
um sem til eru varðandi draum-
farir kemur fram að oftsinnis
dreymir okkur einhvern sem við
þekkjum eða könnumst við eða
Draumalandið
HEILSA
Teitur
Guðmundsson
læknir
Framtíðarsýn Landsvirkjunar er að vera framsækið raforkufyrirtæki á
sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Við störfum í alþjóðlegu umhverfi og
viljum vera meðal þeirra bestu sem vinna og selja orku. Á haustfundinum
munum við fjalla um þær spennandi áskoranir og tækifæri sem
Íslendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu og raforkusölu.
Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra
Ávarp
Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar
Nýtt markaðsumhverfi – fjölbreytt eftirspurn
Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar
Mikilvægi rammaáætlunar – áskoranir og tækifæri
Endurnýjanlegir orkugjafar og nýir virkjanakostir
Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs
Vatnsaflskostir
Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku
Vindorkukostir
Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs
Jarðvarmakostir
Umræður
Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarmaður
AF NETINU
Vandamál fíkilsins
Efnahagslíf heimsins
hefur mörg einkenni
fíkilsins sem getur
ekki verið án
fíkniefna.
Fíkniefni mannkyns-
ins, sem ekki er hægt að neita sér
um, nefnist „hagvöxtur“ sem aðal-
lega er knúinn áfram af tvennu:
1. Neyslu á kostnað komandi kyn-
slóða með rányrkju á takmörkuðum
auðlindum jarðarinnar.
2. Lánum á borð við þau sem settu
efnahagskerfið á hliðina 2008 eða
lánum á borð við þau sem viðhalda
fjárlagahalla í Bandaríkjunum.
Hvort tveggja, rányrkjuneyslan
og lánin, eru hliðstæð vaxandi
fíkniefnaskömmtum til að viðhalda
vímunni, sem fíkillinn getur ekki
verið án.
Þegar ekki er hægt að halda vímunni
uppi koma slæmir timbur menn,
fráhvarfseinkennin í formi stöðn-
unar til sögunnar og þá stefnir í áfall
skjálfandi fíkils, sem hrynur saman
ef hann fær ekki skammtana sína
áfram. Áfallið felst efnahagslega í
auknu atvinnuleysi, samdrætti og
jafnvel verðhjöðnun.
http://omarragnarsson.blog.is
Ómar Ragnarsson
Sá hluti tímans þar
sem okkur dreymir er
um fjórðungur af svefni full-
orðinna en allt að helm-
ingur hjá börnum okkar og
eykst jafnan eftir því sem
nær dregur morgni eða
vökuástandi.