Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 13

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 13
ÞRIÐJUDAGUR 18. nóvember 2014 | SKOÐUN | 13 kringumstæður sem eru kunn- uglegar. Sumir telja að þarna sé á ferðinni einhvers konar endur- röðun á upplifunum okkar að degi til og vinnsla með minni okkar. Þekkt er að heilinn nýtir mismun- andi hluta sína í svefni sem sést þegar gert er heilalínurit og virðist svo sem tilfinningar, upplifanir og jafnvel verkir séu hluti af upplifun þess sem dreymir. Undirliggjandi ástand Í samantekt um drauma almennt kemur fram að undirliggjandi ástand viðkomandi, spenna, sam- skiptavandi, streita og fleiri atriði hafi áhrif á það hvernig draum viðkomandi upplifir. Jákvæðar og neikvæðar hugsanir hafa þar að því er virðist mikil áhrif. Búið er að taka saman lista yfir þær teg- undir drauma og tengingar sem virðast algengastar og eru atriðin alls 55 og má nefna í efsta sæti skóla, kennara og lærdóm. Tölu- vert er um að verið sé að eltast við viðkomandi, meiða, detta, fljúga, fara aftur í tíma, lenda í hamför- um hvers konar, vera allsber og ýmsir draumar tengdir kynlífi og kynlífsathöfnum eru vel þekktir. Blauti draumurinn þar sem ungir karlar fá sáðlát tengist þessu og aukningu í testósterón-magni táningsins á uppvaxtarárum, en konur upplifa slíkt hið sama að því er talið er. Margvíslegar tegundir martraða og truflana er þekkt að komi fram tengt álagi, sjúkdóm- um, lyfjum, áfengis- og vímuefna- neyslu og þannig mætti lengi telja. Vangaveltur um það hvers vegna okkur dreymir eru marg- ar og ástæðurnar ekki þekktar að fullu, vinnsla með minnið eins og sagði að ofan, túlkun á taugavið- brögðum, undirmeðvitundin að sýsla með þrár og óskir, einhvers konar slökun og svo framvegis. Svo virðist sem í draumsvefni sé líkaminn líka lamaður að vissu leyti og er vitað að taugar sem næra vöðva líkamans bregðast við þessu áreiti með því að leyfa ekki eðlilegan framgang taugaboða. Þannig sé komið í veg fyrir það að við „lifum“ drauminn ef svo má að orði komast og getum gert okkur skaða, t.d. ef í draumi við erum að flýja eða forðast eitthvað. Það að ganga í svefni er hins vegar oft- ast í NONREM ástandi þó svo það sé til að rjúfa REM ástand með hreyfingu er það mun sjaldgæfara. Þannig má segja að þeir sem ganga í svefni séu almennt ekki í drauma- heimi á sama tíma. Við verðum að sofa, það vitum við í dag mætavel og einungis þannig getum við tekið áskorunum næsta dags. Vísinda- menn eiga þó enn töluvert langt í land með að leysa ráðgátuna um drauminn, ljóst er að drauma- landið er sveipað dulúð sem gerir það spennandi og seiðandi í senn. Stundum er gott að geta ekki útskýrt allt, dreymi ykkur vel! Eflaust er hægt að leggja ýmsa merkingu í fyrirsögn greinar- innar. Félagi minn Andri Snær skrifaði skemmtilega bók um það, pólitíkusar ræða það stöðugt og á undanförnum árum almenn- ingur í verulega auknum mæli. Flest höfum við skoðun á drauma- landinu sem slíku, sér í lagi ef það er Ísland sem fjallað er um. Ég ætla hins vegar ekki að minn- ast einu orði frekar á hið ástkæra ylhýra land okkar, heldur einblína á Draumalandið sjálft og ástæður þess að við þurfum að eiga slíkt og nýta það vel. Þekkingu okkar á svefni hefur fleygt fram á síðustu áratugum og eru flestir sammála um að hann er afar mikilvægur til að hvílast og hlaða batteríin. Uppbygging svefns er margslungið fyrirbæri og skipt- ist í 4 dýptarstig sem sveiflast frá léttum og yfir í djúpan svefn auk þess að skilgreinast sem svefn með og án svokallaðs REM (Rapid Eye Movement), en á þeim tíma er okkur að dreyma. Sá hluti tím- ans þar sem okkur dreymir er um fjórðungur af svefni fullorðinna en allt að helmingur hjá börnum okkar og eykst jafnan eftir því sem nær dregur morgni eða vöku- ástandi. Það er í hinu NONREM ástandi sem við hvílumst og endur- nærumst og hafa svefntruflanir alla jafna mest áhrif á hinn djúpa svefn sem fer fram á þriðja og fjórða dýptarstigi. Þá er mikilvægt að hafa í huga að eðlilegur svefn breytist með aldrinum og er einnig að vissu leyti einstaklingsbund- inn, en fullorðnir þurfa á bilinu 7-8 klukkustunda svefn á sólarhring að því er talið er, börn mun meira. Flestir kannast við það að þá dreymir, suma bara dagdrauma, en þeir eru af öðrum toga. Einhverjir muna vel það sem þá dreymdi, enn aðrir hafa einungis óljósa tilfinn- ingu fyrir því og í raun er talið að 95% einstaklinga muni ekki drauma sína, en ástæður þessa eru ekki fullkunnar. Draumar geta orðið mjög raunverulegir og jafn- vel svo að viðkomandi vaknar upp með andfælum. Í þeim rannsókn- um sem til eru varðandi draum- farir kemur fram að oftsinnis dreymir okkur einhvern sem við þekkjum eða könnumst við eða Draumalandið HEILSA Teitur Guðmundsson læknir Framtíðarsýn Landsvirkjunar er að vera framsækið raforkufyrirtæki á sviði endurnýjanlegra orkugjafa. Við störfum í alþjóðlegu umhverfi og viljum vera meðal þeirra bestu sem vinna og selja orku. Á haustfundinum munum við fjalla um þær spennandi áskoranir og tækifæri sem Íslendingar standa frammi fyrir í orkuvinnslu og raforkusölu. Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra Ávarp Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar Nýtt markaðsumhverfi – fjölbreytt eftirspurn Ragna Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar Mikilvægi rammaáætlunar – áskoranir og tækifæri Endurnýjanlegir orkugjafar og nýir virkjanakostir Óli Grétar Blöndal Sveinsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vatnsaflskostir Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri vindorku Vindorkukostir Gunnar Guðni Tómasson, framkvæmdastjóri framkvæmdasviðs Jarðvarmakostir Umræður Fundarstjóri: Brynja Þorgeirsdóttir, dagskrárgerðarmaður AF NETINU Vandamál fíkilsins Efnahagslíf heimsins hefur mörg einkenni fíkilsins sem getur ekki verið án fíkniefna. Fíkniefni mannkyns- ins, sem ekki er hægt að neita sér um, nefnist „hagvöxtur“ sem aðal- lega er knúinn áfram af tvennu: 1. Neyslu á kostnað komandi kyn- slóða með rányrkju á takmörkuðum auðlindum jarðarinnar. 2. Lánum á borð við þau sem settu efnahagskerfið á hliðina 2008 eða lánum á borð við þau sem viðhalda fjárlagahalla í Bandaríkjunum. Hvort tveggja, rányrkjuneyslan og lánin, eru hliðstæð vaxandi fíkniefnaskömmtum til að viðhalda vímunni, sem fíkillinn getur ekki verið án. Þegar ekki er hægt að halda vímunni uppi koma slæmir timbur menn, fráhvarfseinkennin í formi stöðn- unar til sögunnar og þá stefnir í áfall skjálfandi fíkils, sem hrynur saman ef hann fær ekki skammtana sína áfram. Áfallið felst efnahagslega í auknu atvinnuleysi, samdrætti og jafnvel verðhjöðnun. http://omarragnarsson.blog.is Ómar Ragnarsson Sá hluti tímans þar sem okkur dreymir er um fjórðungur af svefni full- orðinna en allt að helm- ingur hjá börnum okkar og eykst jafnan eftir því sem nær dregur morgni eða vökuástandi.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.