Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 35

Fréttablaðið - 18.11.2014, Blaðsíða 35
ÞRIÐJUDAGUR 18. nóvember 2014 | SPORT | 23 SUND Eygló Ósk Gústafsdóttir, nífaldur Íslandsmeistari í sundi frá helginni, keppti fyrir „nýtt“ félag um helgina. Hún kemur úr Sundfélaginu Ægi, en nú hefur Reykjavíkurfélögunum öllum verið skellt saman undir nafni ÍBR. „Það er mjög gaman að æfa núna eftir að liðin voru samein- uð,“ segir hún. „Félagsskapurinn er meiri sem og liðsheildin. Það er líka meiri keppni á æfingum og betri mórall í heildina. Maður eignast fleiri vini og allt er miklu skemmtilegra.“ Eygló varð tíðrætt um helgina sem og þegar Fréttablaðið tók hana tali um að nú fengi hún meiri keppni, jafnt á æfingum sem í mótum. Það er eitthvað sem hún þurfti á að halda. „Við vorum alveg rosalega fá í Ægi í elsta hópnum þannig að sameining Reykjavíkurfélaganna bjargaði æfingaástandinu hér á Íslandi. Ég var farin að keppa við stráka sem eru miklu yngri en ég. Nú er ég að æfa með eldri krökkum og strákum sem veita mér meiri keppni. Það ýtir við mér,“ segir hún. - tom Meiri keppni og betri mórall FÓR Á KOSTUM Eygló Ósk í Ásvallalaug um helgina. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI visir.is Meira um leiki gærkvöldsins OLÍSDEILD KARLA AKUREYRI - HAUKAR 28-21 (16-9) Mörk Akureyrar (skot): Kristján Orri Jóhannsson 10/3 (14/4), Heiðar Þór Aðalsteinsson 8 (10), Sigþór Heimisson 4 (8), Elías Már Halldórsson 4 (11), Bergvin Þór Gíslason 2 (3). Varin skot: Tomas Olason 18/1 (38/2, 47%). Mörk Haukar (skot): Þröstur Þráinsson 4/1 (4/1), Adam Baumruk 4 (8), Tjörvi Þorgeirsson 4 (10), Árni Steinn Steinþórsson 4 (14), Einar Pétursson 2 (3), Heimir Heimisson 2 (3), Egill Eiríksson 1 (1). Varin skot: Einar Ólafur Vilmundarson 7/1 (18/2, 39%), Giedrius Morkunas 7 (24/2, 29%). AFTURELDING - VALUR 28-28 (15-12) Mörk Aftureldingar (skot): Jóhann Gunnar Einarsson 6/2 (7/2), Böðvar Páll Ásgeirsson 6 (11), Örn Ingi Bjarkason 5 (10), Ágúst Birgisson 4 (5), Gestur Ingvarsson 3 (4), Jóhann Jóhannsson 2/1 (6/1), Pétur Júníusson 1 (1), Gunnar Þórsson 1 (3). Varin skot: Davíð Hlíðdal Svansson 11 (29/2, 38%), Pálmar Pétursson 5 (15/1, 33%). Mörk Vals (skot): Kári Kristjánsson 8/3 (8/3), Guðmundur Hólmar Helgason 6 (11), Elvar Frið- riksson 4 (6), Geir Guðmundsson 4 (8), Finnur Ingi Stefánsson 2 (2), Bjartur Guðmundsson 2 (2), Alexander Júlíusson 1 (3), Sveinn Sveinsson 1 (3). Varin skot: Stephen Nielsen 11 (26/2, 42%), Kristján Ingi Kristjánsson 8 (21/1, 38%). FH - FRAM 29-22 (15-9) Markahæstir: Ragnar Jóhannsson 8, Ásbjörn Friðriksson 5, Andri Berg Haraldsson 5 - Garðar B. Sigurjónsson 5, Ólafur Jóhann Magnússon 4, Ólafur Ægir Ólafsson 4. HK - STJARNAN 27-28 (12-14) Markahæstir: Leó Snær Pétursson 7, Tryggvi Þór Tryggvason 5, Þorgrímur Smári Ólafsson 5 - Egill Magnússon 8, Andri Hjartar Grétarsson 6, Ari Magnús Þorgeirsson 5, Hilmar Pálsson 4. Hrannar Eyjólfsson skoraði sigurmarkið úr víti. STAÐAN Afturelding 11 7 2 2 270-249 16 Valur 11 7 2 2 291-268 16 FH 11 7 1 3 299-271 15 ÍR 11 6 2 3 295-283 14 Akureyri 11 6 0 5 287-273 12 Haukar 11 4 3 4 270-256 11 ÍBV 10 4 1 5 267-270 9 Stjarnan 11 3 1 7 281-302 7 HK 11 2 0 9 268-305 4 Fram 10 2 0 8 207-258 4 VIÐKVÆM HÚÐ? PRÓFAÐU ALLA LÍNUNA… ÞVOTTAEFNI | HREINLÆTISVÖRUR | HÚÐVÖRUR | ANDLITSLÍNA | BARNAVÖRUR ÞRÓAÐ Í SAMVINNU VIÐ DÖNSKU ASTMA- OG OFNÆMISSAMTÖKIN …fyrir heimilið, fjölskylduna og þig. Neutral er sérstaklega þróað fyrir viðkvæma húð og inniheldur engin ilmefni, litarefni eða paraben – þannig hjálpar Neutral þér að vernda húð allra í fjölskyldunni. Skoðaðu allar Neutral vörurnar í næstu verslun eða kíktu á Neutral.is KÖRFUBOLTI Íslenska kvennalands- liðið í körfubolta mun standa í stór- ræðum næsta vetur þegar liðið tekur þátt í undankeppni EM á ný eftir sex ára hlé. Stjórn FIBA Europe ákvað á fundi sínum í lok vikunnar að frá og með næsta hausti verði undankeppni EM kvenna spiluð innan keppnistíma- bilsins og í svokölluðum „landsliðs- gluggum“ og fram undan eru því sögulegir leikir hjá kvennaliðinu. Íslenska kvennalandsliðið hefur aldrei spilað keppnisleik inni á miðju tímabili því leikir liðsins á NM, EM eða Smáþjóðaleikjum hafa verið fyrir eða eftir tímabilið. „Við stelpurnar erum búnar að bíða eftir að fá þetta tæki- færi síðan síðast og því eru þetta frábærar fréttir,“ segir Helena Sverrisdóttir, fyrirliði íslenska landsliðsins, sem spilar sem atvinnumaður í Póllandi í dag. En hvað finnst henni um þessa breyt- ingu? „Persónulega finnst mér þetta frábær breyting. Þetta þýðir að við ,sem erum að spila sem atvinnu- menn, fáum smá hlé frá okkar liðum og fáum að koma heim og spila með landsliðinu. Þetta þýðir einnig að við getum tekið meiri hvíld fyrir líkamann á sumrin. En þetta hefur líka kannski þau áhrif að við munum líklegast ekki getað teflt fram okkar sterkasta liði, þar sem ég sé ekki fyrir mér að NCAA eða skólarnir úti geti leyft leik- mönnum að taka frí frá bæði skóla og leikjum,“ segir Helena. Undankeppni EM kvenna 2017 hefst í nóvember á næsta ári en tvö landsleikjahlé með tveimur leikjum hvort verða á næstu leik- tíð, það fyrra 16. til 26. nóvember 2015 og það síðara 15. til 25. febrú- ar 2016. - óój Fá loksins alvöru landsleik inni á tímabilinu „Mér fi nnst frábært að við séum að taka þátt aft ur,“ segir Helena Sverrisdóttir, fyrirliði kvennalandsliðsins. EKKI BARA Á SUMRIN Helena Sverris- dóttir í leik í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/DANÍEL

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.