Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 21

Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 21
KYNNING − AUGLÝSING Fjáröflun18. NÓVEMBER 2014 ÞRIÐJUDAGUR 3 Stefán Guðleifsson hefur góða reynslu af fjáröf lun með Netsöfnun.is en félagsmenn Dansfélags Reykjavíkur hafa fjár- magnað keppnisferðir með hjálp síðunnar og hefur árangurinn að sögn Stefáns verið frábær. „Ég fékk ábendingu um Net- söfnun.is fyrir þremur árum og við hjá Dansfélaginu ákváðum að prófa þessa leið. Það er skemmst frá því að segja að hún þrælvirk- ar. Keppnisfólk okkar hefur skráð sig inn í kerfið og nýtt ágóðann til að fjármagna keppnisferðir meðal annars til útlanda.“ Vöruúrvalið er að sögn Stefáns það mikið að keppnisfólkið okkar getur verið að bjóða mismunandi vörur því í einhverjum tilvikum er það að selja sama fólkinu vörur. „Auðvitað er árangurinn misjafn hjá fólkinu því það er misdug- legt að sinna sölunni. En þeir sem duglegastir eru hafa fengið út úr þessu upphæðir sem staðið hafa undir megninu af ferðakostnað- inum. Ég get hiklaust mælt með Netsöfnun.is enda er þetta ein- faldasta og öflugasta fjáröflunar- leið sem ég þekki.“ Frábær árangur Stefán Guðleifsson hjá Dansfélagi Reykjavíkur hefur góða reynslu af fjáröflun í gegnum Netsöfnun.is og segir hana öflugustu fjáröflunarleið sem hann þekki. KIWANIS NÝTTI NETSÖFNUN.IS Í LANDSSÖFNUN SINNI „Við Kiwanismenn seldum minnislykla til styrktar sjúkraklefa í varðskipinu Þór og náðum frábærum árangri með Netsöfnun.is á stuttum tíma.“ Pétur Bauer, Kiwanis. Safnarinn Baldvin Þór í Fjölni sækir vörur úr söfnuninni sinni í vöruhús Netsöfnunar ehf. Netsöfnun.is hentar meðal ann-ars þeim sem þurfa að fjármagna keppnisferðir, útskriftarferðir, tækjakaup, góðgerðarverkefni eða hvað annað sem peninga þarf til. Fjársöfnun á netinu hefur notið vax- andi vinsælda enda er hún fljótleg, ein- föld í framkvæmd og árangursrík. Net- söfnun.is hefur verið í stöðugri þróun frá því að lausnin kom fyrst fram árið 2011. Mikil þekking og reynsla hefur safnast upp varðandi söluaðferðir og vöruframboð sem Netsöfnun miðlar til notenda sinna. Netsöfnun.is býður söfnunaraðilum fjölbreytt úrval fjáröflunarvara sem þeir geta síðan boðið á einfaldan hátt í gegn- um netið. Söfnunaraðilar opna eigin vef- verslun á nokkrum mínútum og geta strax hafið sölu á þeim vörum sem þeir velja að selja. En einnig er hægt að prenta út vöru- lista og selja beint ef það hentar. Greiðsla fer fram um leið og viðskipta- vinir panta vöruna og aðstandendur fjár- öflunar geta séð í rauntíma hvernig fjár- öflunin gengur í einföldu skýrsluformi í kerfinu. Netsöfnun afhendir að lokum söfnunaraðila vörurnar á einum stað og hann kemur þeim áfram til kaupenda. Þeir sem eru á landsbyggðinni njóta sömu kjara og söfnunaraðilar á höfuðborgarsvæðinu. Afnot af Netsöfnun.is er fjáröflunaraðil- um algerlega að kostnaðarlausu. Allir geta safnað á Netsöfnun.is sér að kostnaðarlausu Netsöfnun.is er öflug lausn fyrir til dæmis íþróttafélög, félagasamtök, útskriftarhópa og einstaklinga til að afla fjármuna á einfaldan og skilvirkan hátt. Þar er boðið upp á fjölbreytt úrval fjáröflunarvara sem söfnunaraðilar geta selt í gegnum netið. Stefán hefur mjög góða reynslu af fjár- öflun með Netsöfnun.is. SJÚKRAPÚÐAR SLYSAVARNAR- FÉLAGSINS LANDSBJARGAR ERU ÁVALLT VIÐBÚNIR! Slysavarnarfélagið Landsbjörg hefur verið í fararbroddi í innflutn- ingi og sölu á sjúkrabúnaði í mörg ár. Kappkostað hefur verið að bjóða aðeins viðurkenndar vörur enda er val á sjúkrabúnaði meðal annars byggt á margra ára reynslu þeirra félaga úr björgunarsveit- um félagsins sem sinnt hafa fyrstuhjálparkennslu. Sjúkrapúðarnir hafa nú bæst við í fjölbreyttan hóp fjáröflunarvara hjá Netsöfnun.is. Einstaktfjáröflunar-tækifæri Netsöfnun.is | Skútuvogi 6 | 104 Reykjavík Sími: 588 1000 | netsofnun@netsofnun.is | www.netsofnun.is

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.