Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 38

Fréttablaðið - 18.11.2014, Side 38
18. nóvember 2014 ÞRIÐJUDAGUR| LÍFIÐ | 26 GAF ÚT BARNABÓK Í JAPAN Types of people er styrkt af myndlistarsjóði. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN „Sýningin fjallar um ljóðræn- an skáldskap í myndlist og það eru svolítið pólitískir listamenn sem sýna þarna. Listamenn sem komast að einhverjum póli- tískum sjónarmiðum í gegnum ljóðrænu,“ segir myndlistarmað- urinn Sigurður Atli Sigurðsson, sem heldur til Mílanó í desember fyrir samsýninguna Subversion of the Sensible. „Nafnið segir sig eiginlega sjálft, þú sleppir því rökræna og þá kemstu kannski að einhverjum öðrum sannleika.“ Sigurður sýndi á Miðjarðar- hafstvíæringnum í fyrra en á sýningunni í Mílanó er úrval níu listamanna úr þeirri sýningu til þess að kynna næsta tvíæringinn. Sigurður undirbýr nú verk sitt fyrir sýninguna, Types of People. „Ég gaf út barnabók í Japan um daginn sem fjallar um týpu sem ég hef verið að vinna með síðast- liðið ár í verkum mínum og kall- ast The Sleeper. Sú týpa passar vel inn í þessa sýningu því í henni felst eins konar passíf mótspyrna. Types of People fjallar um fimm manngerðir – The Philosopher, The Loser, The Champion, The Sleeper og The Dancer.“ Types of People er hluti af verkefni sem styrkt er af Mynd- listarsjóði en afrakstur verkefn- isins verður sýndur í Marseille í Frakklandi í desember. - þij Kynnir Miðjarðarhafs- tvíæringinn í Mílanó Sigurður Atli Sigurðsson tekur þátt í sýningu á næst- unni sem fj allar um ljóðrænan skáldskap í myndlist. Ég gaf út barnabók í Japan um daginn sem fjallar um týpu sem ég hef verið að vinna með síðastliðið ár. „Gullgrafaraþátturinn Yukon Gold á National Geographic. Konan mín gerir endalaust grín að mér fyrir það, en þetta er snilld. Get horft tímunum saman.“ Jóhannes Arnljóts Ottósson, gullsmiður SJÓNVARPSÞÁTTURINN „Okkur dettur alltaf alls konar vitleysa í hug,“ segir Sigurpáll Árni Aðalsteinsson, fyrrver- andi handboltamaður, sem ásamt bróður sínum, handboltamanninum Heiðari Þór Aðalsteins- syni, opnaði tískuvöruverslunina Kasjual í Smáralind á dögunum, en þeir eru báðir frá Akureyri. „Það leiddi nú bara eitt af öðru og við duttum eiginlega óvart inn í þennan rekstur með Ella félaga okkar, sem er líka Akureyringur, en hann er einmitt að selja Sjallann núna,“ segir Sigur- páll. Þeir bræður eru báðir búsettir á Akureyri þar sem þeir reka ísbúðina Joger í Kaupvangi ásamt því að Heiðar spilar handbolta með liði Akureyr- ar. „Konan mín er mikið fyrir sunnan og heldur utan um þetta, en við erum auðvitað alltaf með annan fótinn þarna,“ bætir Sigurpáll við. Í Kasjual er að finna fatnað fyrir bæði kynin og segir Sigurpáll verslunina vera enn í mótun. „Við erum að vinna í því að fá nokkur flott merki þarna inn, ásamt því að bjóða upp á ódýrari vöru líka. Svo eru alltaf eitthvað í gangi hjá okkur og alltaf einhverjar breytingar í vændum.“ - asi Handboltabræður frá Akureyri opna fatabúð Bræðurnir Sigurpáll Árni og Heiðar Þór Aðalsteinssynir hafa opnað saman fatabúð í Smáralind. BOLTABRÆÐUR Þeir bræður Sigurpáll og Heiðar búa báðir á Akureyri en reka verslun í Reykjavík. Það leiddi nú bara eitt af öðru og við duttum eiginlega óvart inn í þennan rekstur með Ella félaga. Í vor urðu kaflaskil í sögu Spaks- mannsspjara, þegar Vala Torfadótt- ir hætti hjá fyrirtækinu og Björg Ingadóttir, hinn eigandinn, keypti hennar hlut. Aðspurð um breyting- arnar segir hún þær helst vera á rekstri. „Hönnun er alltaf í þróun og ég sem hönnuður hugsa fyrst og fremst hvað má betur fara og að sjálfsögðu hvað er fallegt á við- skiptavininum, hvað vill hann eiga og hvað hann vill borga fyrir. Þetta þarf að ganga upp. Ég er áfram sá hönnuður og er alltaf að betrum- bæta. Ef það tekst þá er ég ánægð,“ segir Björg. Bæði vegna umhverfissjónar- miða og fyrirspurna ætlar hún að bjóða viðskiptavinum, sem vilja skipta út eldri flíkum, að koma með vissar týpur aftur í sölu. „Í fyrsta lagi er þetta umhverfissjón- armið, en fyrirspurnin er líka mikil eftir því sem er uppselt. Þetta gæti mögulega verið lausn, ég er bara í smá vandræðum vegna plássleysis, annars er ég komin með konseptið,“ segir hún. „Það eru miklar breytingar í verslun og markaðssetningu, ekk- ert eins og var. Þú bíður ekkert við búðarborðið eftir að fá viðskipta- vini inn,“ segir hún. Verslunareig- endur eru að hennar mati aftar- lega í netverslun og þá aðallega litlu fyrir tækin. „Ef þú ert að fara að kaupa einhvern hlut, þá skoðar þú fyrst á netinu, þótt þú kjósir að ganga frá kaupum í versluninni. Netverslanir eru nýju búðarglugg- arnir,“ segir Björg. Miðað við strauminn af ferða- mönnum sem til landsins koma segir hún verslunina ekki aukast í samræmi við það. „Ef við erum ekki að standa okkur í markaðs- setningunni þá seljum við ferða- mönnum ekki nógu mikið. Þeir koma hingað til að skoða náttúruna og oftar en ekki fljúga þeir með lág- gjaldaflugfélögum, sem leyfa bara eina fimmtán kílóa tösku. Við þurf- um að hugsa þetta nánar og lengra og útbúa eitthvað sem myndi ýta undir verslun, til dæmis ef auka- taskan hjá flugfélögunum væri markaðssett betur. „Tax-free-task- an“ gæti þá haft áhrif,“ segir Björg. Hún segir alla þróun í verslun og markaðssetningu svo hraða, við getum gert miklu betur. „Íslending- ar versla mikið í fríum erlendis, við verðum að ná ferðamönnum þegar þeir eru hér í fríum. Við erum bara svo ánægð yfir að einhver vilji koma og heimsækja landið, en við verðum að velja hver útkoman á að vera.“ adda@frettabladid.is Þarf að gera Ísland að verslunarlandi Björg Ingadóttir hjá Spaksmannsspjörum rekur verslunina nú ein. Hún vill að Ísland verði markaðssett sem verslunarland til að fá meira út úr ferðamennsku. GETUM GERT BETUR Björg segir okkur Íslendinga geta gert mun betur í að fá erlenda gesti í verslanir okkar. MYND/GEIR ÓLAFSSON Þeir koma hingað til að skoða náttúruna og oftar en ekki fljúga þeir með lággjaldaflugfélög- um, sem leyfa bara eina fimmtán kílóa tösku.

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.