Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 24
FÓLK|HEIMILI Ég fór í rauninni af stað með þetta verkefni í febrúar á síðasta ári. Mig hafði lengi langað til að eignast stóran og fal- legan hyrndan hrút til að hengja upp á vegg en gat ekki séð að nokkur væri að bjóða slíkt til sölu. Fólk var að kaupa innflutt dádýr eða gervihausa úr keramik en mér fannst vanta tenginguna við land og þjóð, að notuð væru þau dýr sem þrífast á Íslandi. Ég gerði eina kúpu fyrir mig og fann að aðrir voru mjög áhugasamir og ákvað því að færa út kvíarnar,“ segir Steingrímur Óli Einarsson. Aðspurður ræddi hann fyrst við bændur í leit að efnivið. „Ég komst hins vegar að því að ekki er hægt að fá kúpurnar afhentar beint frá býli. Við þurftum því að útvega leyfi hjá Matvælastofnun, héraðsdýralækni og hinum ýmsu eftirlits aðilum, sem allir eiga þökk skilið.“ Steingrímur og Óskar fá nú haus- ana afhenta hjá sláturhúsum. „Okk- ur finnst sérstaklega ánægjulegt að hugsa til þess að við erum að full- nýta íslenskar landbúnaðarafurðir og gera list úr því sem almennt er ekki nýtt.“ Hann segir að Skallagrím- ur Design byggi framtíðarsýn sína á ákveðinni fortíðarhyggju. „Allt frá því að mannskepnan byrjaði að ganga upprétt hefur hún nýtt sér bein og dýraafurðir til smíða á verk- færum og skrautmunum. Það má því segja að Skallagrimur Design sé eins konar óður til uppruna mann- kyns sem og náttúru Íslands.“ Steingrímur segir framleiðsluna hafa verið mjög frumstæða í byrjun. „Ég vann þetta í stórum potti í flug- skýli á Tungubökkum hjá föður mínum, Einari Páli Einarssyni, hon- um og sjálfum mér til mikils ama. Í sumar hitti ég svo Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson, bónda og tón- listarmann frá Vatnsnesi í Vestur- Húnavatnssýslu. Hann deildi sömu ástríðu og ég á þessum verkum og kom inn í þetta með mér af fullum krafti. Saman höfum við tvíeflst og þróað saman verklag og vinnuað- ferðir sem skila að okkar mati ein- staklega góðum árangri.“ Í dag fer grófhreinsun og hvíttun hausanna fram á Hvammstanga. „Síðan erum við með listaaðstöðu í nýsköpunarmiðstöðinni Topp- stöðinni í Elliðaárdal þar sem við fullvinnum hausana. Þeir eru ýmist náttúrulegir, lakkaðir eða klæddir hinum ýmsu efnum. Þá tökum við á móti öllum sérpöntunum með opnum hug, sækist fólk eftir út- færslum sem við eigum ekki á lager. Við höfum hingað til verið að vinna með sauði og hrúta. Til stendur að byrja með geitur og önnur dýr; jafn- vel minka, refi, hrafna og seli.“ Steingrímur segir listaverkunum hafa verið afar vel tekið. „Hingað til höfum við aðallega selt kúpurnar innanlands en finnum auk þess fyrir miklum áhuga frá útlöndum og hafa nokkrar nú þegar farið til Noregs.“ Kúpurnar eru í dag fánlegar í nýju listagalleríi Hörpu Einarsdóttur, Baugar og bein að Strandgötu 32 í Hafnarfirði, Mink Viking Portr ait að Laugavegi 11 og í verzlun Farmers & Friends að Hólmaslóð 2 úti á Granda. Verk Skallagrimur Design má sjá á heimasíðu þeirra www. skallagrimurdesign.is og á Face- book undir leitarheitinu Skalla- grimur Design – Icelandic Live- stock Art. ■ vera@365.is TENGING VIÐ LAND OG ÞJÓÐ VEGGLIST Steingrímur Óli Einarsson og Jóhannes Óskar Sigurbjörnsson fram- leiða vegglist úr íslenskum sauðahauskúpum undir nafninu Skallagrímur De- sign – Icelandic Livestock Art. Hönnunin er óður til uppruna og náttúru Íslands. LÖKKUÐ Hér er dæmi um lakkaða kúpu. Þá er tekið við öllum sérpöntunum sækist fólk eftir útfærslum sem ekki eru til á lager. MYND/ GUÐMANN ÞÓR BJARGMUNDSSON DEILA SÖMU ÁSTRÍÐU Jóhannes Óskar og Steingrímur Óli deila sömu ástríðu fyrir hauskúpum og hafa tvíeflst eftir að þeir tóku höndum saman. M Y N D / G U Ð M A N N ÞÓ R BJA RG M U N D SSO N FER VEL Á VEGG Hér er dæmi um náttúrulega útfærslu. HIN MESTA PRÝÐI Hér hefur kúpan verið klædd með steypu- járnssalla. Steingrím- ur segir kúpurnar eiga jafnt heima á miní- malísku heimili, tattú- eða koníaksstofu. M Y N D / A N N A K RISTÍN SC H EV IN G Sjá fleiri myndir á FLOTT FYRIR JÓLIN 20% afsl. af kjólum og kápum Peysukápur áður 15.990 nú 12.990 Sparikjólar áður 24.990 nú 19.990 Kjólar áður 14.990 nú 11.990 Kjólar áður 14.990 nú 11.990
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.