Fréttablaðið - 15.12.2014, Blaðsíða 6
15. desember 2014 MÁNUDAGUR| FRÉTTIR | 6
Jólaíspinnar
frá Emmessís
1. Hver er áætlaður kostnaður við
mat vegna háspennulínu?
2. Með hvaða liði spilar Jón Arnór
Stefánsson körfuboltamaður?
3. Hvaða þekkti tískuhönnuður versl-
aði í JÖR fyrir helgi?
SVÖR
1. Um 100-150 milljónir króna 2. CAI Zara-
goza 3. John Galliano
LÖGREGLUMÁL Tvær ungar konur,
sautján og nítján ára gamlar,
veittust að þrettán ára gamalli
stúlku og móður hennar í Breið-
holtinu á laugardagskvöld.
Líkamsárásirnar áttu sér stað
rétt fyrir níu þegar konurnar
réðust á stúlkuna og tóku farsíma
hennar. Móðir stúlkunnar fór þá
á eftir konunum en þær svör-
uðu með því að ráðast á hana og
meðal annars skemma gleraugu
hennar. Samkvæmt upplýsingum
frá Lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu voru konurnar hand-
teknar síðar um nóttina og vist-
aðar í fangageymslum. - hg
Árásarmennirnir handteknir:
Ráðist á mæðg-
ur í Breiðholti
BJÖRGUN „Ég held það ætti að
vera áhersluatriði númer eitt að
vera tilbúnir til að sækja veika
eða slasaða sjómenn eða fólk
uppi á landi eða hvar sem er ef
það slasast,“ segir Árni Bjarna-
son, formaður Farmanna- og fiski-
mannasambands Íslands.
Í Fréttablaðinu á föstudag
var fjallað um það að skipverji
á frystitogaranum Örfiris ey RE
hefði fengið hjartaáfall um borð.
Það tók þyrlu Landhelgisgæslunn-
ar um þrjá tíma í stað eins að koma
á staðinn þar sem þyrlan var stödd
í verkefni fyrir Almannavarnir
við eldstöðvarnar í Bárðarbungu.
Skipverjar vöktu manninn til lífs
með því að veita honum hjarta-
hnoð og nota hjartastuðtæki sem
var um borð.
Trausti Egilsson, skipstjóri
Örfiriseyjar, sagði það óásætt-
anlegt að þyrlan væri í slíkum
verkefnum. Árni tekur undir þau
sjónar mið.
„Þetta er eini sjúkrabíllinn fyrir
sjómenn. Það er til nóg af öðrum
flugförum til að sinna svona verk-
efnum.“ Árni segir sjómenn lengi
hafa barist fyrir því að þessi mál
séu í lagi.
„Þetta var komið í gott horf
fyrir hrun en síðan fór þetta niður
eftir það. Það þarf að hafa for-
ganginn á hreinu. Hver mínúta
skiptir máli þegar svona er. Von-
andi verður þetta til þess að þeir
fari ofan í saumana á því hvern-
ig á að standa að þessu,“ segir
Árni.
- vh
Formaður FFSÍ segir gæsluþyrlu eiga að vera til staðar fyrir útköll, ekki að sinna öðrum verkefnum:
Segir forganginn þurfa að vera á hreinu
SJÚKRABÍLL FYRIR SJÓMENN Árni
Bjarnason, formaður FFSÍ, segir þyrlu
LHG vera eina sjúkrabílinn fyrir sjó-
menn.
HEILBRIGÐISMÁL Læknum á Land-
spítalanum tókst að bjarga lífi 98
af eitt hundrað sjúklingum sem
komu á spítalann á fimmtán ára
tímabili með alvarlega stungu-
áverka. Þetta sýna frumniður-
stöður nýrrar
rannsóknar þar
sem allir alvar-
legir stungu-
áverkar á Land-
spítalanum, sem
kröfðust inn-
lagnar á sjúkra-
hús á árunum
2000 til 2014,
voru skoðaðir.
Tómas Guðbjartsson, hjarta- og
æðaskurðlæknir, segir þennan
góða árangur skýrast í fyrsta
lagi af skömmum viðbragðs-
tíma neyðar bílsins, í öðru lagi
af góðum aðgangi að blóði og í
þriðja lagi keðjum á spítalan-
um sem virki vel. „Þetta er sem
sagt það sem hefur núna ítrek-
að smollið saman og með þessu
móti er hægt bjarga fólki sem er
í mjög mikilli lífshættu,“ segir
Tómas. - lvp
Ný rannsókn á Landspítala:
Björguðu 98 af
100 sjúklingum
TÓMAS
GUÐBJARTSSON
SAMFÉLAGSMÁL Björn Blöndal
borgarfulltrúi bað fatlaða afsök-
unar á röð óhappa í fréttum
Stöðvar 2 í gærkvöldi. Mikil
óánægja hefur verið með ferða-
þjónustu fatlaðra eftir að Strætó
tók við akstri þeirra. Tilkynnt
hefur verið um fjölmörg óhöpp,
fatlaðir hafa oltið úr hjólastólum
og heilabilaðir sjúklingar týnst.
Hann minnti þó á að ætlunin væri
fyrst og fremst að bæta þjón-
ustuna. Með nýja kerfinu sé unnt
að panta far með skemmri fyrir-
vara en áður. - kbg
Vill bæta ferðaþjónustu:
Biður fatlaða
afsökunar
ÓHÖPP Tilkynnt hefur verið um fjöl-
mörg óhöpp í farþegaþjónustu fatlaðra.
FRÉTTABLAÐIÐ/ HARALDUR JÓNASSON
STJÓRNSÝSLA „Mér hugnast þessi
tillaga ekki. Fyrirtækið er með
starfsstöðvar á 22 stöðum á landinu
og í mínum huga verður áfram þörf
fyrir að stærsta skrifstofan verði í
Reykjavík,“ segir Tryggvi Þór Har-
aldsson, forstjóri Rarik, um tillögu
Norðvesturnefndar ríkisstjórnar-
innar um að flytja höfuðstöðvar
fyrirtækisins á Sauðárkrók.
Nefndin hefur sent 26 tillögur
til ríkisstjórnarinnar um hvernig
efla megi fjárfestingar, byggða-
þróun og fjölga atvinnutækifærum
á Norðurlandi vestra. Fréttastofa
RÚV greindi frá því á laugardag
að tillaga um að færa höfuðstöðvar
Rarik á Sauðárkrók væri á meðal
þeirra.
Um tvö hundruð manns starfa
hjá fyrirtækinu og þar af um
fimmtíu í höfuðstöðvunum í
Reykjavík. Tryggvi segir Sauðár-
krók ekki vera ákjósanlega stað-
setningu fyrir höfuðstöðvar fyrir-
tækisins.
„Ég tel til dæmis að það sé meira
framboð af háskólamenntuðu fólki
í Reykjavík og það er í raun og
veru ástæðan fyrir því af hverju
ég tel að stærsta skrifstofan eigi að
vera í Reykjavík. En þetta er auð-
vitað á endanum ákvörðun stjórn-
valda og ef þau ákveða að fara
einhverja svona leið þá hljóta þau
að velta slíkum hlutum fyrir sér.
Mér finnst þó alls ekki tímabært
að fara á taugum yfir þessu eins
og staðan er í dag,“ segir Tryggvi.
Hann bendir á að þetta sé ekki
í fyrsta skiptið sem tillaga um að
flytja Rarik norður er lögð fram.
Árin 1996 og 2000 hafi meðal ann-
ars staðið til að færa höfuðstöðv-
arnar til Akureyrar.
Líst illa á tillögu um
að flytja Rarik norður
Forstjóri Rarik segir Sauðárkrók ekki ákjósanlegan stað fyrir höfuðstöðvar fyrir-
tækisins. Um 50 manns starfa hjá Rarik í Reykjavík. Áður verið rætt að flytja höfuð-
stöðvarnar norður. Norðvesturnefndin skilaði 26 tillögum til ríkisstjórnarinnar.
„Það er ekkert langt síðan að hug-
myndin um Sauðárkrók kom fyrst
upp frá einhverri sambærilegri
nefnd. Það heyrði ég fyrst fyrir
einhverjum fimm árum þannig að
þetta hefur áður komið upp.“
Tillögur Norðvesturnefndarinn-
ar voru kynntar ríkisstjórninni á
föstudag. Nefndin var skipuð í
maí síðastliðnum og Stefán Vagn
Stefánsson, oddviti framsóknar-
manna í Skagafirði, er formaður
hennar.
„Þetta eru alls 26 tillögur og ég
vil síður tjá mig um þær að svo
stöddu. Við erum búin að skila þeim
inn til ríkisstjórnarinnar og þær
eru þar. Verkefni okkar hlýtur þá
að vera að fara yfir þetta með odd-
vitum ríkisstjórnarflokkanna og
vinna í þessum tillögum áfram og
setja í framkvæmd þær sem sam-
staða er um að farið verði í. Það
er næst á dagskrá nefndarinnar,“
segir Stefán. haraldur@frettabladid.is
SAUÐÁRKRÓKUR Megináhersla Rarik er á raforkudreifingu en um 90 prósent af
dreifikerfum í sveitum landsins eru í umsjá fyrirtækisins.
STEFÁN VAGN
STEFÁNSSON
TRYGGVI ÞÓR
HARALDSSON
TÆKNI Þeim fjölgar sem ntoa
farsíma undir stýri til að fara
á internetið samkvæmt nýlegri
könnun MMR.
Af þeim sem tóku afstöðu sögð-
ust 10% hafa notað farsíma undir
stýri til að fara á internetið, borið
saman við 3,5% í maí 2010.
Þegar notkunin er skoðuð eftir
stuðningi við stjórnmálaflokka
kemur í ljós að þeir sem studdu
Sjálfstæðisflokkinn voru líkleg-
astir til að segjast hafa notað
farsíma undir stýri síðastliðna
12 mánuði (88,0%) en þeir sem
studdu Samfylkinguna voru ólík-
legastir til þess (72,5%). - kbg
Fleiri á netið í símanum:
10% á netinu
undir stýri
VEISTU SVARIÐ?