Gerðir kirkjuþings - 1960, Síða 4

Gerðir kirkjuþings - 1960, Síða 4
2. K'-rkjuþing. -3- 1. mál. Ályktun um að bera undir álit heraðsfunda tillögur um veitingu prestsembætta. Kirkjuþing ályktar að leggja til við kirkjustjórnina, að leitað verði álits héraðsfunda um tillögur þær, sem felast í eftir- farandi uppkasti að frumvarpi til laga um breytingu á lögum nr. 32 frá 1915 um veitingu prestakalla, sem lagt hefur verið fyrir kirkju- þingið og er nú í því horfi, sem hár segir: I. Kafli. Veiting prestsembætta samkvæmt kosninqu í söfnuðunum. 1 .gr. Þegar prestakall losnar og nýr prestur er eigi kallaður til embættisins, sbr. 5.gr.. auglýsir biskup kallið með hæfilegum umsóknarfresti. 2.gr. Þá er umsóknarfrestur er á enda sendir biskup prófasti og sóknarnefndum prestakallsins skrá yfir bá, sem sótt hafa, ásamt skýrslu um aldur þeirra, náms- og embættisferil og störf. Jafnframt felur hann héraðspráfasti að kveðja kjörmenn prestakallsins saman á fund innan tiltekins tíma til viðræðna um ráðstöfun embættis- ins. Á þessum fundi skulu umsóknir og umsagnir biskups liggja frammi til athugunar. Prófastur stýrir fundi. Fundurinn er lokaður. Sé héraðsprofastur meðal umsækjenda um kallið, nefnir biskup annan prófast í hans stað. 3 .gr. Prófastur ákveður kjörfund með kjörmönnum svo fljótt sem^ unnt er og eigi síðar en næsta dag. Kjörfundur er lokaður og stýrir prófastur honum. Fer bai1 fram leynileg skrifleg atkvæðagreiðsla. Að henni lokinni eru atkvæði innsigluð og send biskupi asamt afriti af gerðabók kjörfundar. Ágreining um undirbúning eða framkvæmd kosningar úrskurðar yfirkjörstjórn. 4.gr. Þegar biskup hefur fengið atkvæði og gögn kjörfundar fer fram talning atkvæða og er sá umsækjandi rétt kjörinn, sem fengið hefur 3/4 atkvæða og skal veita honum embættið. Fái enginn umsækjenda 3/4 atkvæða skal veita þeim embættið, sem flest atkvæði fær, ef biskup mælir með skipun hans í embættið. Væli biskup með öðrum má kirkjumála ráðherra velja milli þess umsækjanda, sem flest atkvæði fékk og hins, er biskup mælir með. 5.gr. Heimilt er kjörmönnum að kalla prest. Ef fullur helmingur kjörmanna prestakallsins er einhuga um að kalla prest án umsóknar gera þeir prófasti viðvart um það þegar í stað, en hann tilkynnir það biskupi, sem felur þá prófasti að^boða kjörmenn prestakallsins á sameiginlegan fund innan viku og er þa embættið eigi auglýst. Samþykki 3/4 kjörmanna að kalla tiltekinn mann til embættisins, en um það skal leitað atkvæða á sama veg og segir í 3.gr., skal leita samþykkis biskups á kölluninni og honum falið að birta hana þeim presti eða kandidat, sem í hlut á. Taki hann köllun að fengnu samþykki biskups, skal veita honum embættið.

x

Gerðir kirkjuþings

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.