Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Síða 1
ÁLYKTANIR OG ÁFGREIDD MÁL
RYRSTA KIRKJUÞLNGS ÞJÚDKIRKJU ÍSLARDS,
er haldið var dagana 18.-31- okt. 1958.
Frumvarp um biskupa Djóðkirkju Islands, lagt fram af kirkju-
málaráðherra og biskup”il
Kirkjumálanefnd þingsins, þeir Magnús Már Lárusson, Þórarinn
Þórarinsson, jónas Tómasson, jón Auðuns og Þorsteinn Gísla-
son, skilaði nýju frumvarpi, er koma skyldi í stað hins, og
var það samþykkt af kirkjuþinginu með nokkrum breytingum, og
var það afgreitt í heild, sem hér segir;
Frumvarp til laga
um biskupsdæmi Þ.jóðkirk.junnar.
1. gr.
Tveir skulu vera biskupar í hinni evangelísk-lútersku Þjóð-
kirkju á Islandi. Situr annar í Reykjavík og nefnist Skál-
holtsbiskup, en hinn á Akureyri og nefnist Hólabiskup.
Biskupunum skulu búin dvalarskilyrði í Skálholti og á Holum.
Skulu þeir dveljast þar, þegar þeim þykir henta og ber skylda
til samkvæmt 6. gr.
Heimilt er kirkjumálaráðherra að ákveða, að Hólabiskup skuli
sitja á Hólum, enda hafi það áður verið samþykkt af þjónandi
þjóðkirkjuprestum og safnaðarfulltrúum biskupsdæmisins.
2. gr.
Skálholtsbiskup hefur stoórn og yfirsókn frá Austur-Skafta-
fellsprófastsdæmi til Norður-ísafjarðarprófastsdæmis, að báðum
meðtöldum, og er það Skálholtsbiskupsdæmi, en Holabiskup um
hinn hluta landsins, sem er Hólabiskupsdæmi.
3- gr.
Kosningarrétt við biskupskjör hafa prófastar og þjónandi
prestar þjóðkirkjunnar í því biskupsdæmi, er veita á. Hver
kjósandi kýs einn þeirra, er kjörgengir eru til embættisins.
Réttkjörinn biskup er sá, sem fær meira en helming greiddra
atkvæða. Nú fær enginn það atkvæðamagn, og skal embættið þá
veitt þeim þeirra þriggja, er flest fengu atkvæði, sem hlut-
aðeigandi stjórnarvöld telur bezt til þess fallinn.
Kjörgengir til biskupsembætta eru allir þeir, sem kjörgengi
hafa til prestsembættis í Þjóðkirkjunni.