Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Blaðsíða 5

Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Blaðsíða 5
- 5 - IV. lillaga til þingsályktunar um skilgreining á takmörkuni milli þ.ióðkirk.'iu- og fríkirk.jusafnaða. Lögð fram af Gísla Sveins- syni. Tillö^unni var vísað til allsherjarnefndar, en málið varð ekki útrætt. lillagan var svohljóðandi: Kirkjuþingið ályktar að beina því til kirkjustjórnarinnar, að hún gefi út rökstutt álit um viðhorf þjoðkirkjunnar og embættismanna hennar, einkum biskups, til utanþ.joðkirkjusafn- aða í landinu, hver séu eðlileg og lögleg takmörk milli þess- ara aðila og hvort biskup íslands ("biskupinn yfir íslandi") hafi gagnvart fríkirkjum rétt eða skyldur og þá hverjar. V. Áskorun um hækkun styrks til Kirkjubyggingasjoðs, lögð fram af Asmundi G-uðmundssyni og Gísla Sveinssyni: Kirkjuþingið leyfir sér að skora á háttvirt Alþingi að hækka framlag til Kirkjubyggingasjóðs úr 500.000 kr. á ári í 1.000.000 kr. Tillögunni var vísað til allsherjarnefndar, er skilaði svo- felldu áliti; Allsherjarnefnd hefur á fundum sínum rætt áskorun um hækkun styrks til Kirkjubyggingasjóðs og mælir með, að^hún verði sam þykkt ébreytt. Nefndin vill þé taka fram, aö hún telur þessu máli ekki ráðið til lykta á fullnægjandi hátt, fyrr en lög- fest er þátttaka ríkissjéðs í kostnaði við kirkjubyggingar eins og gert er ráð fyrir í frumvarpi, sem fylgir 5« máli Kirkjuþingsins. Tillagan var samþykkt af þinginu einróma. VI. Áskorun um að stofnað verði tii verðlaunasamkeppni um upp- drætti að sveitakirkjum, lögð fram af Asmundi Guðmundssyni. Kirkjuþingið beinir þeim tilmælum til kirkjustjérnarinnar, að hún láti í samráði við húsameistara ríkisins efna til verð launasamkeppni um uppdrætti að sveitakirkjum, er samsvari sem bezt íslenzkum staðháttum. Nái sú samkeppni bæði til hússins og skreytingar utan og innan. Málinu var vísað til allsherjarnefndar, er skilaði svo hljéð- andi áliti: Nefndin hefur athugað málið á nokkrum fundum, og telur það mjög mikilsvert, en ekki nægilega undirbúið til samþykktar nú Ber nefndin því fram svofellda rökstudda dagskrá:

x

Gerðir kirkjuþings

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.