Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Side 6
6
Þar eð málið, sem í sjálfu sér er mikilvægt, þykir ekki nogu
vel undirbúið til afgreiðslu um sinn, vill nefndin beina því
til herra biskupsins, að hann haldi áfram undirbúningi þess
til næsta Kirkjuþings, og tekur fyrir næsta mál á dagskrá.
VII. Áskorun um fjárveitingu til eflingar kristilegrar og kirk;ju-
legrar starfsemi, frá biskupi:
Kirkjuþing íslenzku þjóðkirkjunnar skorar á Alþingi að taka
upp á fjárlög árlega fjárveitingu til eflingar kristilegrar
og kirkjulegrar starfsemi á vegum þjoðkirkjunnar kr. 100.000,-.
Greinargerð, er fylgdi, var svo hljóðandi:
Það er brýn nauðsyn, að kirk.jan hafi jafnan nokkurt fé hand-
bært, er hún geti varið til eflingar kristni og kirkjulífs í
landinu. Má í því sambandi meðal annars nefnas
1. Fyrirlestra- og skólaheimsóknir.
Æskilegt er, að kirkjan geti sent menn, einn eða fleiri
til fyrirlestrahalds um andleg mál, bæði í skóla landsins
og til safnaðanna.
2. lítgáfustarf semi.
Nauðsyn er á, að gefa út sérprentanir af ýmsum lögum og
reglugerðum, er varða störf presta og sóknarnefnda, leið-
beiningar til presta um sunnudagaskólahald og æskulýðs-
starfsemi og ýms nauðsynleg hjálpargögn við þá starfsemi.
Ennfremur gæti verið vel til fallið, að kirkjan gæfi við
og við út úrvals erindi um andleg mál til útbýtingar meðal
safnaða og presta, svo sem mjög tíðkast víða erlendis.
3. Æskulýðsfélög og unglingastarf.
Brýn þörf er á því að efla þá starfsemi í söfnuðum lands-
ins, bæði með því að senda erindreka til þess að aðstoða
presta í því að koma slíku starfi á fót og eins með hinu
að veita þess háttar félögum nokkurn starfsstyrk í hlut-
falli viö framlög safnaöanna sjálfra.
Mörg önnur verkefni liggja fyrir og ný skapast eftir því sem
stundir líða.
Kirkjan hefur þegar gengizt fyrir sumarnámskeiðum á Löngumýri
í Skagafirði og mótum fyrir fermingarbcrn víðsvegar um lanaið.
Hefur hún til þess notið styrks á fjárlögum, sem væntanlega
mun haldast framvegis, enda þeim styrk öllum verið varið til
þessa starfs eingöngu.
Málinu var vísað til kirkjumálanefndar, er mælti með því ein-
róma. En þingið samþykkti í einu hljóði.