Gerðir kirkjuþings - 01.12.1958, Qupperneq 7
7
VIII. Tillaga til þingsályktunar um breytt fyrirkomulag á greiðslum
fyrir aukaverk presta, flutt af Steingrími Benediktssyni og
Sigurði Gunnarssyni.
Kirkjuþingið ályktar að beina til Alþingis tilmælum um, að
úr gildi verði numin heimild presta til að taka sérstakar
greiðslur fyrir svo nefnd "aukaverk", önnur en umbeðnar
ræður við jaröarfarir og hjonavígslur.
Hinsvegar heimili löggjafarvaldið hækkun á soknargjöldum um
kr. 5,00 á hvern safnaðarmeðlim, að viðbættri vísitölu, og
greiði fjárhaldsmaður safnaðar það til hlutaðeigandi soknar-
prests. Þar, sem tveir prestar þjona sama söfnuði, skiptist
greiðslan jafnt á milli þeirra.
Greinargerð.
Aukatekjur presta hljóta að vera mjög misjafnar eftir tölu
safnaðarmeðlima, en með núgildandi fyrirkomulagi á innheimtu
þeirra skapast önnur misskipting, sem hvorki er nauðsynleg
eða æskileg, og veldur oft, manna á milli, samanburði, sem
einatt hlýtur að vera ósanngjarn og ranglátur.
Söfnuðurinn er, samkvæmt eðli sínu, fjölslcylda, þar sem eðli-
legt er að vænta þess að einstaklingarnir beri hver annars
byrði með gleði.
Málið varð ekki útrætt.
IX. Tillaga til þingsályktunar um starfssjóð hinnar evangelisk-
lútersku kirkju á Islandi, flutt af Steingrími Eenediktssýni
og Sigurði Gunnarssyni.
Kirkjuþingið ályktar að beina til Alþingis tilmælum um heim-
ild til að hækka sóknargjöldin um kr. 5 á hvern gjaldskyldan
safnaðarmeðlim að viðbættri vísitölu.
Fé það, sem þannig kemur inn, skal renna í sérstakan sjóð, sem
kirkjuráð ber ábyrgð á og veitir fé úr.
Hlutverk sjóðsins skal vera að styðja sérhvað það, sem verða
má til uppörvunar, fræðslu og uppbyggingar í kristilegu starfi.
Svofelld greinargerð fylgdi.
Þörfin á stórauknu starfi kristinnar kirkju er augljós og að-
kallandi. Hitt er jafn augljóst, að til þess að kirkjan geti
gegnt hlutverki sínu, þarf hún að hafa nokkur fjárráð umfram
það, sem henni er að lögum veitt af ríkinu.
Eðlilegast er, að þessa fjár sé aflað innan safnaðanna og sé
þannig kirkjunnar ótvíræð eign. Pyrsta og aðalverkefni þessa
sjóðs hlýtur að beinast að aukinni kristilegri fræðslu og
uppbyggingu í ræðu og riti, einkum með auknu starfi sunnudaga-
skóla og kristilegra æskulýðsfélaga.