Víkurfréttir - 22.11.2012, Blaðsíða 13
VÍKURFRÉTTIR • fimmtudagurinn 22. nóvember 2012 13
BYKO suðurnes - Víkurbraut 4 - Sími: 421 7000
Allt klárt
FYRIR JÓLIN
4.990kr.
Vnr. 86620040-3737
KÓPAL innimálning.
4 lÍtrAr
gljástig 10
Allir litir
gerðu litAprufur heimA
föndrAðu með kópAl tÍskulitum
290kr.
Vnr: 86909000-37
3.390kr.
Vnr. 88167393
Píramídi,
20 LED ljós, 40 cm.
1.990kr.KLÚBB verð
24.990kr.Vnr. 52236871P RAHA 5 arma ljósakróna,króm og gler.
7.990kr.Vnr. 88167385Ljósahringur, 140 ljós, 60 cm.
790kr.
KLÚBB verð
hæð 45 cm
þvermál 45 cm
Íslensk gæðA
málning
12.990kr.KLÚBB verð
5.990kr.KLÚBB verð
1.190kr.Vnr. 88167170Sería, 20 LED ljós.
kynning
sérfræðingur frá
málningu kynnir vörur
frá fyrirtækinu í BykO
suðurnesjum kl. 11-18
föstudaginn 23. nóv.
Boðið upp á gómsætar,
nýbakaðar vöfflur og
kaffi laugardaginn
24. nóvember
milli kl. 11 og 14.
Allir velkomnir!
vöfflur Og kAffi Í
BykO suðurnesjum
Söngvakeppni Sjónvarpsins hefst í janúar á næsta ári og
í vor kemur í ljós hver verður
fulltrúi Íslands í Malmö í Svíþjóð
þegar lokakeppni Eurovision fer
fram þar í landi.
Alls bárust 240 lög í keppnina að
þessu sinni, sem var metfjöldi.
Valnefnd hefur nú valið tólf lög
úr innsendum lögum og meðal
þeirra sem eiga lag í keppninni í ár
er Keflvíkingurinn Elíza Newman.
„Ég hef aldrei sent inn lag eða
komið nálægt Eurovision áður. Ég
hef verið beðin um að syngja áður
en það hentaði ekki á þeim tíma,“
segir tónlistarkonan Elíza Newman
sem var að senda frá sér nýja plötu
á dögunum sem kallast Heimþrá.
Hún segir að hún hafi átt hressilegt
popplag á lager en það hafi ekki
hentað plötunni hennar sérstaklega.
„Þetta er svona poppslagari sem
ég samdi með Gísla Kristjánssyni
og Ken Rose í London.Við vissum
ekki alveg hvað við áttum að gera
við það fyrr en Eurovision kom inn
í myndina og þá vorum við sann-
færð um að það myndi passa rosa
vel í það.“ Elíza segir að það sé ekki
komið á hreint hver syngi lagið í
undankeppninni en hún sagði í
gamni að það væri algert hernaðar-
leyndarmál! „Það verður kannski
einhver yngri útgáfa af mér,“ sagði
Elíza og hló.
Lagið heitir Ég syng! en uppruna-
lega sömdu Elíza og Gísli Kristjáns-
son enskan texta við lagið. Hún fékk
svo Huldu systur sína, sem ætti að
vera Suðurnesjamönnum kunn
úr Útsvarsliði Reykjanesbæjar, til
þess að snara textanum yfir á okkar
ástkæra ylhýra móðurmál. „Hún
er svo góð í öllu sem hún tekur sér
fyrir hendur og þetta tókst svona
fjári vel,“ segir Elíza.
Á dögunum var Elíza stödd á Ís-
landi en hún hefur verið búsett í
London undanfarinn áratug eða
svo. Hún var ásamt fjöldanum
öllum af listamönnum að troða
upp á tónlistarhátíðinni vinsælu
Airwaves og hafði að sögn gaman
af. Nýja hljómplata Elízu, Heimþrá,
sem kom út fyrir skömmu er alger-
lega sungin á íslensku en stefnan er
þó sett á að gera enska útgáfu að ári
liðnu. Eins og nafn plötunnar gefur
til kynna þá örlar stundum fyrir
heimþrá hjá Elízu en hún segist
alltaf vera á leiðinni heim. „Maður
þarf bara að finna sér eitthvað
skemmtilegt að gera og þá er aldrei
að vita,“ en í London kennir Elíza
börnum tónlist í einkaskóla auk
þess sem hún vinnur í sinni eigin
tónlist. Elíza semur öll lög plöt-
unnar en Gísli Kristjánsson hjálpar
aðeins til við textagerð ásamt því að
vera upptökustjóri á plötunni.
Heimþrá var plata vikunnar hjá
Rás2 í síðustu viku og hlaut frábæra
umsögn hjá plötugagnrýnanda
Rásar 2 sem gaf henni 8,8 af 10 og
lýsti henni sem hlýrri og skemmti-
legri plötu. Elíza segir að sala
hennar fari ágætlega af stað. Geim-
steinn gefur plötuna út og Elíza
heldur sig því við heimaslóðirnar.
Nú þegar hafa tvö lög af plötunni
náð nokkrum vinsældum á Íslandi
en það eru lögin Hver vill ást? og
Stjörnuryk og vonar Elíza að það sé
það sem koma skal. Hljómurinn á
plötunni er að sögn Elízu hlýlegur
og einlægur. Hún er á því að platan
sé alveg sérstaklega íslensk. „Ég er
í raun að syngja til Íslands og þá er
gott að sjá hlutina svona utan frá.
Fjarlægðin gerir fjöllin blá, eins og
sagt er,“ segir Elíza að lokum.
Elíza spilar á útgáfutónleikum
Geimsteins á Ránni í Keflavík
fimmtudaginn 6. desember og á
Faktorý í Reykjavík 7.desember.
Syngur til Íslands
www.facebook.com/elizanewmanmusic
ElÍza NEwmaN
MENNING