Víkurfréttir - 22.11.2012, Síða 24
vf.is
Fimmtudagurinn 22. nóvember 2012 • 46. tölublað • 33. árgangur
auglýsingasími víkurfrétta er 421 0001
Opið alla miðvikudaga frá kl. 8:00 – 16:00
Tímapantanir í síma 426 8540
Opið virka daga frá kl. 8:00 – 17:00
Frjáls mæting
VALUR KETILSSON SKRIFAR
FIMMTUDAGSVALS
FRÉTTAVAKT VF Í SÍMA 898 2222
vaktsími allan sÓlarHringinn
Ykkur er boðið í 140 ára afmæli!
• Tilboðsverð á
140 nýjum barnabókatitlum
• Marta Eiríksdóttir
les sögu fyrir
börnin kl. 12.00
og kynnir síðan
bók sína Mei mí
beibísitt?
• Léttar veitingar
lauGarDaGiNN 24. NÓVember í eYmuNDSSoN reYkJaNeSbæ
Skemmtum okkur saman og látum gott af okkur leiða.
Allur ágóði seldra barnabóka á 140 ára afmælis-
daginn renna til Barnaheilla.
Verið hjartanlega velkomin á Sólvallagötu 2.
Ég er sannfærður um að leið okkar að loknu þessu jarðríki liggi til himna. Flestar sálir eiga greiðan
aðgang ef þeir mæta reglulega til
messu. Ekki samt fá í magann ef þú
ert á tossalistanum yfir þá sem eru
með lélega mætingu. Nægt fram-
boð á næstunni fyrir alla að mæta
í messugjörð og iðrast. Það sem
manni dettur ekki í hug á leiðinni
um úfið hraun og svartan vegkafla!
Fyrir þrjátíu árum arkaði ég um
nærsvæðið með byssu í hendi og
hitti fyrir rjúpuna einu. Á svipuðum tíma datt nafna
mínum það snjallræði í hug að baða sig í affalli orku-
versins í Svartsengi. Eftirleikinn þarf varla að nefna.
Einstakt samspil náttúru, tækni og síðar viðskipta.
Þeir eru samt færri sem hafa notið þeirra lystisemda sem Bláa lónið hefur getið af sér. Lækningalindin
rétt austan við aðal baðstaðinn lætur lítið fyrir sér fara.
Samstarf þeirra við heilbrigðisyfirvöld hefur opnað
nýja veröld fyrir þá sem þurfa að leita sér lækninga
við húðsjúkdómnum psoriasis. Og ég sem var að setja
út á ríkisstjórnina fyrir stuttu. Heill sé heilbrigðis-
ráðherrum þessa lands að minnsta kosti. Eitthvert
fegursta dæmi um jákvæða viðleitni við náttúrulegum
lækningaaðferðum. Staðsett á miðri hraunbreiðu á
Reykjanesinu þar sem kraftmikið náttúrulegt um-
hverfi hefur endurnærandi áhrif á líkama og hug.
Grindavík er með‘etta.
Ég hef verið svo lánsamur að undanförnu að fá að fylgja sjúklingi í meðferð. Einstök upplifun að
koma á staðinn og baða sig meðal fólksins. Yndis-
legt að láta sig fljóta um í kvöldkyrrðinni, horfa upp
í stjörnubjartan himininn og leyfa ímyndunaraflinu
að fara á flug. Engu líkara en að hraungrýtið myndi
steinaldarskrímsli sem spúa eldi og reyk yfir viðstadda.
Gufumekkirnir úr lindinni magna seiðinn og galdrana
á meðan á dvölinni stendur. Vellíðanin jafnast eflaust
á við að vera fóstur í móðurkviði, umvafinn hlýju og
líkamlegri næringu. Fósturfitan borin á líkamann í
formi kísils. Andleg næring nær sínum hæstu hæðum
með líkamlegri afslöppun. Flýtur um með kút og
kork.
Húðin hitnar og blóðstreymið eykst. Gerir hana móttækilegri fyrir virkum efnum jarðsjávar-
ins. Steinefnin róa húðina og koma á hana jafnvægi,
kísillinn hreinsar og þörungarnir næra og mýkja.
Náttúruleg þrenna. Ljósaböð í eftirrétt. Dásemdin full-
komnuð með því að setjast í veitingasalinn að lokinni
meðferð, slaka á og njóta samverunnar. Kaffisopinn
guðdómlegur. Ég er jafn sannfærður um að ef himna-
ríki er til á jörðu, þá ég er þar reglulegur gestur.
Gestur í himnaríki
Tjaldsvæði rís við smábátahöfn í Gróf
Á síðasta fundi atvinnu- og hafnaráðs Reykjanesbæjar sem haldinn var föstudaginn sl. var samþykkt tillaga að tjaldsvæði Reykjanes-
bæjar við Grófina. Guðlaugur H. Sigurjónsson framkvæmdastjóri
umhverfis- og skipulagssviðs fór yfir tillögu að tjaldsvæði við smábáta-
höfnina í Gróf. Atvinnu- og hafnaráð samþykkti tillöguna, en þó með
þeim fyrirvara að tjaldsvæðið muni víkja þegar þörf verður á stækkun
smábátahafnarinnar. Framkvæmdastjóra var falið að vinna að skipu-
lagi svæðisins með umhverfis- og skipulagssviði.
Slösuðum manni var bjargað við erfiðar aðstæður úr 15
metra hæð úr í byggingakrana í
Reykjanesbæ nýverið. Unnið var
að því að hækka byggingakran-
ann þegar maðurinn klemmdist
milli eininga uppi í krananum.
Tveir sjúkraflutningamenn frá
Brunavörnum Suðurnesja fóru
upp í kranann til hans og tryggðu
öryggi hins slasaða. Þá var slökkvi-
liðsmaður hífður upp með körfubíl
slökkviliðsins og sótti hinn slasaða.
Maðurinn var fyrst fluttur á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja og síðan
á slysadeild í Reykjavík. Maður-
inn reyndist ekki eins alvarlega
meiddur og óttast var í fyrstu.
Slasaðist í 15 metra hæð í byggingakrana