STARA - 01.09.2014, Page 19
Starfsemi Harbinger er því tvöföld, vinna Steinunnar
að eigin sköpunarverki sem fer fram bak við luktar dyr
og vinna annarra listamanna sem setja upp sýningar
í björtum sal sem snýr að götunni. Hvatinn að opnun
sýningarrýmisins var að gefa starfandi listamönnum
frekara tækifæri til þess að setja upp sýningar á verk-
um sínum.
Myndlistarmaðurinn Bjarki Bragason opnaði
sýningarrýmið Harbinger formlega með sýningunni
Ef til vill það sem hann í / Perhaps that in which he.
Sýningin fjallar um hverfult samband raunveruleika
og skáldskapar.
Í verkum sínum rannsakar Bjarki söguna frá
sjónarhorni sagnaritarans. Hann fer af stað eins og
rannsóknarmaður og leitar ummerkja þess sem einu
sinni var. Í leit sinni skoðar hann sögulegar minjar,
staði og persónur. Á sýningunni veltir hann til að
mynda upp hinni goðsagnakenndu birtingarmynd
Gísla Oktavíusar Gíslasonar á Uppsölum sem tákn-
myndar einstæðingsins, setur sig í spor vísinda-
mannsins sem sagnaritara og veltir upp spurningum
um hvernig áhorfi er beitt gagnvart sögulegum minj-
um, þar sem rannsakandinn athugar það sem er ekki
hluti af raunverulegu lífi hans. Þar að auki veltir Bjarki
fyrir sér raunverulegum sannleika sjálfsævisagna þar
sem fortíðarþrá, fantasía og þokukennt minni geta
vegið þungt í frásögn.
Á þessari sýningu koma fram einstakir hæfileikar
Bjarka til þess að setja fram stór heimspekileg um-
hugsunarefni af mikilli næmni. Sýningin saman-
stendur af ljósmyndum, skúlptúrum, myndverkum
og hljóðverki. Útkoman er falleg og á einhvern hátt
viðkvæm. Sýningin býr yfir sterkri heild, verkin hafa
róandi áhrif og vekja áhorfandann til umhugsunar um
málefni sem standa honum stærri.
Eitt sterkasta verkið á sýningunni eru tvö svört lítillega
krumpuð blöð, í fallegum viðarrömmum. Verkið
nefnist „Á því sem það / On that which it“. Eins og í
öðrum verkum sýningarinnar er útkoman mjög mini-
malisk, en ferlið bak við verkið gerir það enn áhuga-
verðara. Á einlitum pappírnum hafði bráðnað 900 ára
gamall ís – á svörtum fletinum er því hægt að rýna í
mörg hundruð ára sögu. Þetta verk er líklega eina verk
sýningarinnar sem við vitum með vissu að segir satt en
svartur flöturinn gefur áhorfanda þess sitt eigið rými
til þess að rita söguna, fylla inn í eyðurnar og ákvarða
sjálfur hvar skáldskapurinn liggur.
Á sýningunni er ekki að finna neina lausa enda því
Bjarki gengur alla leið og vinnur einnig með sögu og
staðsetningu sýningarrýmisins, sem gefur sýningunni
enn meiri dýpt. Sýningin er því einnig kveðjustund
fiskbúðarinnar sem nú hefur verið umbreytt í sýn-
ingarsvæði fyrir listaverk. Umhverfið verður þannig að
mikilvægum þætti í upplifun sýningarinnar sem gerir
hana enn heilsteyptari.
Sýningin Ef til vill það sem hann í / Perhaps that in
which he fjallar um hverfult samband skáldskapar og
veruleika, þar sem tíminn skipar stórt hlutverk. Verkin
spegla öll hvert annað inni í sýningarrýminu, auk þess
sem speglun áhorfandans gefur honum tækifæri til
þess að upplifa sjálfan sig með verkinu.
S
T
A
R
A
1.T
B
L
2
0
14
19