Nesfréttir - 01.01.2009, Síða 2

Nesfréttir - 01.01.2009, Síða 2
Bæjarstjórn hefur samþykkt sam- hljóða að auglýsa fyrirliggjandi til- lögu að breytingu á aðalskipulagi Seltjarnarness 2006 til 2024 vegna byggingar á þrjátíu hjúkrunarrým- um fyrir eldri Seltirninga ásamt dagvist aldraðra og annarri stoð- þjónustu. Í tillögunni felst áður samþykkt stefnumörkun bæjarstjórnar um staðsetningu hjúkrunarheimilisins nágrenni kirkjunnar eins og komið hefur fram áður. Í tillögunni er sér- staklega leitast við að fyrirhuguð bygging falli sem best að landslagi, gæti að útsýni af Valhúsahæð. Jafn- framt er áformað að skapa góðar stígatengingar við Valhúsahæð og nágrenni. ÚTGEFANDI: Borgarblö›, Vesturgötu 15, 101 RVK. S: 511 1188 • 895 8298 RITSTJÓRI: Kristján Jóhannsson • ÁBYRG‹ARMA‹UR: Kristján Jóhannsson • BLAÐAMAÐUR: Þórður Ingimarsson. UMBROT: Valur Kristjánsson • NETFANG: borgarblod@simnet.is • HEIMASÍ‹A: borgarblod.is Nesfréttir koma út mána›arlega og er dreift frítt í hvert hús á Seltjarnarnesi 2 NES FRÉTTIR www.borgarblod.is Nú þegar stefnir í að mörg sveitarfélög á landinu verði rekin með mismunandi miklum halla gera áætlanir ráð fyrir að Seltjarnar-neskaupstaður verði rekinn með 50 milljóna króna rekstarafgangi þrátt fyrir að þeir ætla að halda óbreyttri útsvarsprósentu. Þetta sýnir sterka stöðu bæjarfélagsins og ber að fagna því á þessum niðurskurðar- og krepputímum. Seltjarnarneskaupstaður ætti því að geta haldið sama þjónustustigi eins og undanfarin ár. Nú má gera ráð fyrir því að fyrirtæki og heimili fari að verða enn betur vör við áhrif efnahagskreppunnar. Stjórnvöld virðast vera ráðalítil um hvernig bregðast skuli við og hvort og þá hvernig koma eigi krónunni aft- ur á lappirnar. Jón Steinsson, hagfræðingur og prófessor við Columbia- háskólann í Bandaríkjunum, sem er í viðtali við Nesfréttir að þessu sinni telur að setja beri krónuna strax á flot. Þá komi í ljós hversu mikið hún fellur í viðbót og að hreinsa öll jöklabréfin út úr Seðlabankanum. Síðan verði að reyna að reisa hana við aftur. En stjórnvöld þora ekkert að gera og bíða bara vegna hræðslu um að krónan sökkvi til botns en þá munu skuldir heimilanna og fyrirtækj- anna hækka upp úr öllu valdi. Meðan þetta gengur yfir þarf að frysta öll íslensk og erlend lán svo að þjófélagið fari ekki endanlega á hliðina. Það kostar um 150 milljarða á ári að halda upp á krónuna sem er sambæri- leg upphæð og sá halli sem verður á ríkissjóði á þessu ári. Við þurfum að fá nýjan gjaldmiðil sem fyrst, helst evru, sem virðist vera besti kosturinn í þeirri stöðu sem við erum í núna. En það eru því miður alltof margir Íslendingar sem berjast á móti því að við semjum okkur að Evrópulöndunum þar sem við eigum heima. Ef að ofstækisfull- ir þjóðernissinnar verða ofaná í þeirri umræðu og þeim átökum sem frammundan eru og þeir hafa sigur. Þá segi ég bara “verði okkur að góðu” þá eigum við ekkert betra skilið. K. Góð staða bæjarfélagsins Leiðari Nú ætla ég að fara að borða hafragraut! Nesbúinn Skipulag hjúkrunar- heimilis í auglýsingu Í síðasta tölublaði Nesfrétta var sagt að hjúkrunarheimilið ætti að rísa vestan við Seltjarnarneskirkju en það á að rísa sunnan við kirkjuna við Kirkjubraut. Engar hækkanir eru áformaðar á þjónustugjöldum stofnana Sel- tjarnarnesbæjar í fjárhagsáætl- un ársins 2009. Allar gjaldskrár lækka því verulega að raungildi á árinu þar sem þær hafa ekki fylgt verðbólgu sem verið hefur hátt í þriðja tug prósentna undanfarna mánuði. Gjaldskrár óbreyttar

x

Nesfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nesfréttir
https://timarit.is/publication/1112

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.