Nesfréttir - 01.01.2009, Page 5
Dansnámskeið hjá Dansstúdíó
World Class hófust 12. janúar sl.
en þar er hægt að læra allt það
heitasta í dansinum í dag. World
Class opnaði glæsilega aðstöðu á
Suðurströnd, Seltjarnarnesi, árið
2007 og fara dansnámskeiðin fram
þar. Auk þess fara þau fram í Laug-
um í Laugardal, Spönginni í Graf-
arvogi og Mosfellsbæ. Stella Rósen-
kranz er deildarstjóri danstúdíós-
ins og leituðu Nesfréttir eftir því
hjá henni hvaða námskeið séu í
boði hjá þeim og á hvað þau væru
að leggja áherslu.
Stella segir að fólk á öllum aldri
sækir námskeiðin. Yngstu nemend-
urnir séu á aldrinum fjögurra til sex
ára og þeir elstu eru allt upp undir
fertugt. Nú leggið þið mikla áherslu
á, leikræna tjáningu og túlkun á nám-
skeiðum ykkar - er þetta allt hluti af
dansinum?
“Já, dans er ekki bara dans, hann
er túlkun,” segir Stella “Við tengj-
um leikræna tjáningu og túlkun í
dansana sem við kennum hverju
sinni og náum þannig betri tengslum
við tónlistina.
Góður dansari þarf að lifa sig inn
í tónlistina og þess vegna kennum
við nemendum okkar að hlusta á tón-
listina og skila því sem þau heyra í
hreyfingum sínum. Þetta er mjög mik-
ilvægur þáttur í því að nemendurnir
vaxi og þroski sem dansarar.”
Íþrótt og listgrein
Mjög margir hafa mikinn áhuga á
dansi en hvað er það sem er svona
skemmtilegt við dansinn? “Hvað er
ekki skemmtilegt við dansinn, segi
ég. Dans er ekki bara íþrótt heldur
listgrein. Hann veitir útrás sem er
engri lík og það hafa allir gaman af
því að dansa. Hjá okkur leggjum við
í fyrsta lagi áherslu á að nemendur
okkar hafi gaman af tímunum um
leið og þeir ná árangri. Sviti, hiti, tján-
ing, hlátur og há tónlist er það sem
gerir þetta alveg extra skemmtilegt.”
Og skráningar eru hafnar í dans-
tímana hjá ykkur. Hvar og hvernig er
hægt að skrá sig?
Skráning er hafin í síma 553 0000
en svo er líka hægt að skrá sig í
afgreiðslu World Class á Seltjarnar-
nesi, í Laugum, í Spönginni, í Grafar-
vogi og Mosfellsbæ. Nemendur geta
ennþá komið og skráð sig þó svo að
fyrsta vikan hjá okkur sé byrjuð, það
er alls ekki óalgengt að fólk komi inn
þótt tímarnir séu byrjaðir.”
Nemendasýning 6. apríl
Er eitthvað sem þú vilt sérstaklega
koma á framfæri? “Já, ég vil gjarnan
minna á nemendasýningu okkar sem
fer fram á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins þann 6. apríl nk. Í ár munum við
styðjast við Sirkus þema í uppbygg-
ingu sýningarinnar og ætlum okkur
stóra hluti. Mikið verður lagt upp
úr dansatriðum og búningum. Allir
hópar koma fram og sýna listir sínar.
Í fyrra heppnaðist sýningin einstak-
lega vel og ætlum við okkur að gera
enn betur í ár.” Stella hvetur alla þá
sem hafa áhuga á hreyfingu og góðri
tónlist að koma í prufutíma til okk-
ar. “Það er aldrei of seint að byrja og
eru allir velkomnir.”
NES FRÉTTIR 5
Ánægja og árangur í fyrirrúmi
Stella Rosenkranz með nemendur í kennslustund.